Fréttir - Eyjafréttir - 18.05.2000, Blaðsíða 18
18
Fréttir
Fimmtudagur 18. maí 2000
Menningarmiðstöðin í Nýjahrauni:
Miðjan á Heimatorgi
Nú liggja fyrir tillögur að Menn-
ingarmiðstöð í Vestmannaeyjum en
það er hugmyndaverkefni sem
Pétur Jónsson, landslagsarkitekt
hefur unnið í samvinnu við Vest-
mannaeyjabæ.
Eins og sést á meðfylgjandi af-
stöðumynd er gert ráð fyrir mið-
stöðinni inni í hrauninu og yrði mið-
punktur hennar hið gamla Heimatorg
sem árum saman var miðpunktur
bæjarlífs og fengi nú ámóta hlutverk á
ný. Þar er reiknað með fjölnota sal
með möguleika sem tónleikasalur,
fyrir ráðstefnur, til sýningarhalds og
annars samkomuhalds.
Ut frá Heimatorgi sitt til hvorrar
handar yrðu gosminjasafn og náttúru-
gripasafn. Gosminjasafnið yrði að
hluta til í Rafstöðvarhúsinu og yrði
fræðslu- og sögusetur um gosið 1973.
Staðsetning og umhverfi er í nánum
tengslum við miðbæinn og höfnina.
Megininngangur yrði frá Kirkjuvegi
til móts við Miðstræti og þar gert ráð
fyrir aðkomu fyrir bæði gangandi og
akandi umferð. Sjálf byggingin verð-
ur grafin inn í hraunið þar sem áður
var Njarðarstígur, rafstöðin og Heima-
torg. Einu sýnilegu ummerkin ofan-
jarðar yrðu inngangur og hvolfþak
sem standa mun upp úr hrauninu.
Frá aðalinngangi er gert ráð fyrir
130-150 m löngum aðkomugöngum.
Fyrirþeim miðjum yrði veitingahúsið
Þingvellir, á grunni samnefndrar
byggingar er hvarf undir hraun. Við
enda ganganna yrði forrými mið-
stöðvarinnar og þaðan myndi
Heimatorg blasa við. í dag eru um
15-20 m niður á torgið. Yftr fjölnota-
salnum yrði kúpull úr stáli og gleri
sem, ásamt hraunveggjunum myndaði
meginrými hraunhússins. Þar yrði
gert ráð fyrir sviði og búnaði.
Þama yrði einnig fundar- og
veitingaaðstaða auk minjagripasölu,
skrifstofu og miðasölu. Frá forrýminu
lægju einnig göng til beggja hliða,
annars vegar að náttúrugripasafni og
hins vegar að gosminjasafni.
Náttúrugripasafnið myndi byggja á
núverandi safni sem yrði stækkað og
betmmbætt. Fiskasafn með lifandi og
uppstoppuðum fiskum, fugla- og
steinasafn. Þá yrði þar risastór tankur
með lifandi sjávardýrum, milli
náttúmgripasafnsins og salarins með
sjóntengslum milli rýmanna. Þama
yrði og snertiker fyrir sjávardýr og
lundapysjur.
Gosminjasafnið yrði staðsett á hluta
af grunni gömlu Rafstöðvarinnar og
reiknað með að framhlið hennar verði
endurbyggð og myndi þannig andlit
safnsins beint á móti tanki nátt-
úrugripasafnsins. Gert er ráð fyrir að
nota rústir vélanna í Rafveituhúsinu
sem hluta af minjasafninu.
Gert er ráð fyrir að Menningarhúsið
verði hluti af nánasta umhverfi
bæjarins. Við aðalinngang verður að-
koma langferðabíla og leigubfla auk
skammtímabflastæða. Þessi stæði
munu samnýtast með öðmm bygg-
ingum í nágrenninu. Þá er gert ráð
fyrir aðalgöngustíg frá miðbænum
yfir hraunkantinn, framhjá aðalinn-
gangi og yfir á Skansinn. Við
hvolfþakið, sem fellt er að hluta inn í
hraunið, verður áningar- og útsýnis-
staður með yfirsýn yfir bæinn, höfn-
ina, Heimaklett, Eldfell og Helgafell.
Samkvæmt teikningum er heildar-
stærð miðstöðvarinnar um 2.450 m2:
Fjölnotasalur 630 m2
Náttúrugripasafn 410 m2
Gosminjasafn 400 m2
Sameiginleg rými 450 m2
Gang-, tengirými 560 m2
ÞANNIG er hugmynd Péturs að
menningarhúsinu sem hýsa á
fjölbreytta menningarstarfsemi.
"’nmynd menningarmiðstððvar 1:500
---------
Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins
Og
Rannsóknasetrið
Guðj'ón Atli Auðunsson
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins
Aðskotaefni í lífríki sjávar við ísland,
fískur og fuglar.
Opinn fyrirlestur í Rannsóknasetrinu 3. hæð
í tilefni 5 ára afmælis Setursins
Fimmtudaginn 18. maí kl: 20:00
Við minnum
á heita
matinn í
hádeginu
Svar við gátunni, eftir vin okkar Einstein, fylgir með
hverjum bakka á morgun, föstudag.
Verið velkomin í básinn okkar á Vori í Eyjum.
Kær kveðja Veisluþjónustan, S:481 2665,heimasíða:
www.eyjar.is/veisla netfang: veisla@eyjar.is.
Vorfagnaður
Vorfagnaður leikskólans Rauðagerði verður
sunnudaginn 21. maí frá klukkan 12.00 til 14.00
Allir velkomnir.
Spurt er????
Hvernig
verður
pengi
IBV
ífót-
bolt-
anum í
sumar?
Þuríður Bernódusdóttir, vinnur
hjá sýslumanni:
„Eg vona það besta
en spái 4.-5. sæti,
þori ekki að fara
ofar.“
Magnús Grímsson frá Felli:
„Það er ekki gott að
spá en ég held að
þetta verði svipað og
síðast. Þeir verða
ofarlega, ekki fyrir
neðan 3. sæti.“
Ólafur H. Sigurjónsson, skóla-
meistari: 1
„Vonandi gott.
Samkeppnin verður
hörð í sumar en ég
ætla að spá þeim I.
sæti og að þeir
i m | endujheimti
I titilinn."
Páif Zóphóníasson, tæknifræð-
ingur:
„Eg held að þeir
verði í einu af
þremur efstu sæt-
unum en ég vil
svona aðeins lá að
sjá framan í þá áður
en ég segi rneira."
Viktor Ragnarsson, rakari:
„Eg er mjög bjart-
sýnn á það. Annan
hvorn titilinn eða
báða til Eyja. Ég
blæs alveg á það þótt
einhver ælingaleikur
hafi tapast gegn
Fylki. Það er ekki
formið fyrir leiktímabilið sem
skiptir máli heldur formið á sjálfu
leiktímabilinu."