Fréttir - Eyjafréttir - 18.05.2000, Síða 21
Fimmtudagur 18. maí 2000
Fréttir
21
FIMM af sex Eyjamönnum sem taka þátt í mótinu. F.v. Sigurjón Eðvarðsson, Ómar Stefánsson, Sæþór
Gunnarsson, Sigurður Bjarni Richardsson, Símon Eðvarðsson og Arni Karl Ingason sem ekki tekur þátt
í mótinu.
íslandsmeistaramótið í motocross í Eyjum:
Stærsta mótið til þessa
Sigurður Bjarni Richardsson og
Pétur Sigurjónsson ætia að taka
þátt í niotocrosskepninni sem
haldin verður í Eyjum um næstu
helgi. Þetta er stærsta motocross-
keppni sem haldin hefur verið á
Islandi, eru keppendur 34 svo það
hvílir mikið á skipuleggjendum
mótsins í Eyjum um að vel takist til.
Sigurður Bjami hannaði og Iagði
brautina sem er um þrír kílómetrar að
lengd, en það tekur um tvær mínútur
að keyra hringinn. Sigurður Bjami
sagði að brautin hafi í raun verið
tilbúin frá náttúmnnar hendi, aðeins
hafi þurft að búa til einn stökkpall.
Sigurður og Pétur keppa báðir á
Honda 250 CR hjólum, sem em 97
kg. „Reyndar keppi ég á '93 árgerð af
hjóli en Sigurður Bjami á '98 árgerð,"
sagði Pétur. „En það skiptir ekki svo
miklu máli það er þrek og þol
mannsins á hjólinu sem þetta snýst
um,“ sagði Pétur og klappaði Sigurði
Bjama kumpánlega á bakið.
Sigurður Bjami sagði að keyrt væri
í 15 mínútur. „Það verða keyrð þrjú
svona 15 mínútna partý sem heita
moto, en eftir hverjar 15 mínútur er
fyrsta manni sýnt spjald um að tveir
hringir séu eftir. Síðan em gefin stig
fyrir hvert moto og sá sem hefur flest
stig stendur uppi sem sigurvegari í
keppninni. Stigin gilda til Islands-
meistaratitils, en þetta er íyrsta ís-
landsmeistaramótið á þessu ári.“
Sigurður Bjami hefur keppt lengi í
motocross, en hann er að koma inn
aftur eftir sjö ára keppnishvíld. Pétur
er hins vegar að taka þátt í keppni í
fyrsta skipi. ,Já ég er hættur að reka
kýr og farinn að keppa,“ sagði Pétur.
„Markmiðið hjá mér er að ljúka
keppni, en Sigurður Bjami stefnir á að
verða í topp fímmtán."
Þeir félagar vildu beina því til
foreldar að senda ekki böm sín ein á
keppnina. „Það getur stafað nokkur
hætta frá svona keppni, svo að engin
ástæða er til að böm séu á svæðinu án
þess að vera í fýlgd með fullorðnum.
Það verður rútuferð frá íþróttamið-
stöðinni klukkan 13.30 á keppnisstað,
en keppnin verður haldin sunnan og
austan við gamla hitaveitusvæðið
austur á hrauni. Við viljum líka koma
á framfæri þakklæti til styrktaraðila
keppninnar, Gámaþjónustunnar og
Þórðar á Skansinum sem lánuðu tæki
og studdu okkur á allan hátt."
Ahuginn á vélhjólum
eldist ekki af mönnum
-og flestir þeirra sem eru í torfærunni eru 30 ára og eldri
Laugardaginn 20. ntaí verður
haldin motocross keppni í Vest-
mannaeyjum, auk þess sem
keppnin er fyrsta keppni sumarins í
íslandsmeistaramótinu í motocross,
en búist er við þrjátíu til fjörutíu
þátttakendum á þessu fyrsta móti
sumarsins.
Steini Tótu sem er Vestmanna-
eyingum að góðu kunnur, er einn að-
standenda keppninnar og motocross-
keppandi til margra ára. Hann sagði
að áhugi á motocross væri alltaf að
aukast. „Fjöldi þátttakenda í moto-
cross hefui' þrefaldast á síðustu þremur
árum, sem segir nokkuð um uppgang
íþróttarinnar. Þess vegna er baráttan
alltaf að verða harðari og hjólin alltaf
að verða betri.“
Steini Tótu sagði að keppnin kæmi
til með að verða eitilhörð. „Hún hefst
fyrir hádegi á tímatöku og prufu-
keyrslu, en keppnin sjálf hefst
klukkan 14.00 eftir hádegi. Það
verður einstaklingskeppni og einnig er
mjög vinsælt að keppt sé á milli
mótorhjólategunda og ber þar hæst
Kawasaki liðið og KTM liðið, einnig
er keppt í aldursflokkum og svo
framvegis."
Steini Tótu sagði að Eyjamenn
væru óskrifað blað í þessari íþrótt.
„Þetta er í fýrsta skipti sem moto-
crosskeppni er haldin í Eyjum, svo
erfitt er að segja til um hvar þeir
standa. Það verða líklega um tíu þátt-
takendur frá Eyjum og það er fastlega
gert ráð fyrir að tveir til þrír
Eyjapeyjar muni blanda sér í slaginn
um efstu sætin. Við erum mjög
spenntir að sjá hvemig Eyjamenn
koma til með að spjara sig, en þeir
hafa verið duglegir við að koma sér
upp góðum græjum svo það er hægt
að ganga að góðri spennu og mikilli
keppni.“
Steini Tótu segist stunda þessa
íþrótt af lífi og sál bæði sem keppandi
og skipuleggjandi. „Þetta er alveg ný
braut, svo við vitum ekki við hverju
við eigum að búast, en standardinn er
mjög hár. Það er alveg ljóst að
áhuginn á vélhjólum eldist ekki af
mönnum og flestir þeirra sem eru í
torfærunni eru 30 ára og eldri. Þetta
eru sérhönnuð keppnishjól, sem ekki
má keyra nema í keppnum og á
fjöllum og hálendinu. Motocross er
talin sú íþrótt sem reynir hvað mest á
líkamann af öllum þeim í þróttum sem
stundaðar eru í heiminnum og er þá
miðað við alhliða átök á alla vöðva
líkamans.“
Steini Tótu nefndi sem dæmi um
styrkleika mótsins að meðal
þáttakenda væm allir íslandsmeistarar
síðustu fímmtán ára. „Þetta segir
mikið um styrkleika mótsins og full
ástæða til að Vestmannaeyingar mæti
og hvetji sína menn. Það verða þrjátíu
til íjömtíu hjól á ráslínunni og við
lofum hörkukeppni frá upphafi til
enda,“ sagði Steini Tótu að lokum
óþolinmóður að komast í slaginn.
Sá elsti og yngsti:
Af stað eftir
níu ára meiðsli
-segir öldungurinn
Elsti kcppandinn í hópi Vest-
mannaeyinganna er Omar Stef-
ánsson sem er 39 ára og sá yngsti er
Sæþór Gunnarsson sem er 16 ára.
„Eg keypti hjólið í mars og hef
verið leika mér í brautinni þegar veður
leyfir,“ segir Sæþór sem er á 250 cc
Honda hjóli. Aðspurður segist hann
auðvitað stefna að því að vinna en
hann heldur sig þó við jörðina í þeim
efnum. „Eg er ákveðinn í að taka þátt
í mótinu af því að mig langar til að
prófa þetta. Það að vera með skiptir
mestu og það væri flott að ná að klára
brautina," segir knapinn ungi.
„Gamli maðurinn“ í hópnum er líka
á Hondu 250 cc en þar býr meiri
reynsla að baki en hjá Sæþóri. „Eg
byrjaði að keppa 20 ára en síðast
keppti ég 1991. Það var héma í Eyjum
og ég varð í 3. sæti. Eg hef keppt
fjómm til fimm sinnum og þriðja
sætið er minn besti árangur til þessa,“
segir Ómar þegar hann rifjar upp
ferilinn í mótocrossinu.
Þegar Ómar er spurður að því
hvemig standi á þessu langa hléi frá
keppni kemur í ljós að hann er fyrst
núna að fá sig góðan af meiðslum sem
hann hlaut árið 1991. „Eg meiddist á
öxl fyrir níu ámm, fór úr axlarliðnum.
Eg fór tvisvar í aðgerð og eftir seinni
aðgerðina fékk ég mig loks góðan.“
Ómar er ákveðinn í að láta aldurinn
ekki aftra sér og er ákveðinn að sýna
yngri mönnunum hvar Davíð keypti
ölið. „Eg ætla að sjálfsögðu að bæta
árangurinn og vinna. Eg er til í slaginn
en gaman væri að sjá fleiri á mínum
aldri í mótocrossinu,“ sagði Ómar að
lokum.
ÓMAR og Sæþór eru tilbúnir í slaginn á laugardaginn.
PÉTUR er byrjandi í þessari íþróttagrein en Sigurður Bjarni á
langan feril að baki.