Fréttir - Eyjafréttir - 06.12.2001, Qupperneq 8
8
Fréttir
Fimmtudagur 6. desember 2001
SIGURLIÐ Hamursskóla, Magnús Berg Magnússon sem hampar verðlaununum, Björgvin Már Þor-
valdsson og Steinunn Hödd Harðardóttir.
Það var mikið um dýrðir í
Höllinni í síðustu viku þegar
sjöundu, áttundu og níundu
bekkingar grunnskólanna
héldu sína árlegu 1. des.
skemmtun. Liður í skemmt-
uninni var spurningakeppni
milli Barnaskólans og Ham-
arsskóla þar sem kennarar og
nemendur kepptu innbyrðis.
Kennarar Barnaskólans
lögðu félaga sína í Hamars-
skóla. Keppni nemenda var
æsispennandi og það var ekki
fyrr en í lokaspurningunni
sem úrslit réðust. Þetta var
vísbendingaspurning þar sem
spurt var unt land og var
fyrsta vísbendingin að landið
væri ekki sjálfstætt. Þetta
gripu keppendur Hamars-
skóla á lofti og sögðu
Færeyjar sem reyndist vera
rétt. Þar með varð sigurinn
þeirra. A eftir var stiginn
dans við undirleik tveggja
skólahljómsveita.
MADE in China lék fyrir dansi og heillaði söngvarinn, Haraldur Ari
Karlsson, stúlkurnar upp úr skónum.
KJARTAN Þór Ársælsson, Sigurhanna Friðþórsdóttir og Björn
Elíasson voru í sigurliði Barnaskólans.
MIKIÐ fjör var á skenimtuninni og voru bæði stúlkur og drengir klædd í sitt fínasta púss.
Tónlist fyrir alla:
KK söng sig inn
í hjörtu nemenda
Verkefni á á vegum menntamála-
ráðuneytis sem nefnist Tónlistfyrir
ctilti hefur orðið til þess að listantenn
llytja tónlist á hverju ári fyrir nent-
endur Hamarsskóla og Bamaskóla
Vestmannaeyja. Er þetta hugsað til
að gera landsbyggðinni jafnt undir
höfði og höfuðborgarsvæðinu. I
vetur var ákveðið að kynna vísna-
söng og þjóðlög. KK og Guðmundur
Pétursson voru hér á ferðinni sl.
þriðjudag og miðvikudag og fluttu
lög við góðar undirtektir nemenda
skólanna. Dagskráin var flutt fyrir
nemendur 1. til 10. bekkjar. Mjög
hefur verið vandað til verkefnisins og
fjölbreytt verkefnaval milli ára .
Aður hafa tónlistarmennimir Egill
Olafsson og Sigrún Hjálmtýsdóttir
heimsótt skólanna. Nemendur og
kennarar skólanna em að vonum
ánægðir nteð þetta framtak.
GUÐMUNDUR I’étursson og KK á tónleikunum í Hamarsskóla.
KRAKKAR á öllum aldri hlýddu á tónlist KK og Guðmundar.
Undirbúningsfélag til að
kanna nýtingu borholunnar
Á fundi bæjarráðs á föstudegi í
síðustu viku barst svohljóðandi
tillaga frá bæjarfulltrúum Sjálf-
stæðisflokksins:
..Bæjarráð Vestmannaeyja samþykk-
ir að fela Þróunarfélaginu að stofna
undirbúningsfélag með aðild Bæjar-
veitna og fleiri aðila. Væntanlegt
undirbúningsfélag hafi þann tilgang
að kanna möguleika á nýtingu bor-
holunnar við Skiphella. og hugsan-
lega á fleiri stöðum með frekari
nýtingu í þágu atvinnurekstrar þ.m.t.
fiskeldi og heilsurækt tengda ferða-
þjónustu.'1
Bæjarráð samþykkti tillöguna og
óskaði Ragnar Oskarsson eftir því að
fá að vera meðflutningsmaður að
tillögunni.