Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 06.12.2001, Page 12

Fréttir - Eyjafréttir - 06.12.2001, Page 12
12 Fréttir Fimmtudagur 6. desember 2001 Ótrúlegar lýsingar frá árinu 1968 þegar mörg hundruð sjómenn börðust fyrir lífinu í Isafjarðardjúpi - Sumir urðu að lúta í lægra haldi bæði Eglendingar og Islendingar í febrúarbyrjun 1968 brast á aftakaveður við / norðanvert Island og börðust á fimmta hundrað sjómanna við að halda skipum sínum á floti í Isafjarðardjúpi í tíu stiga gaddi og cjífurlegri ísingu. I þessu veðri fórst 659 tonna breskur togari, Ross Cleve- land, nánast við mynni Skutulsfjarðar og með honum átján menn. Heiðrún II frá Bolungarvík fórst með sex manna áhöfn undan Bjarnarnúpi og breski togarinn Notts County strandaði við Snæfjallaströnd með 1 9 menn um borð. Ekki mátti miklu muna að fleiri skip færust í ofviðrinu. ^ Bretar og Islend- ingar stóðu á öndinni er fréttist að einn maður, Harry Eddom, hefði komist af þegar Ross Cleveland fórst. Ahöfnin hafði þá verið talin af í tæpa tvo sólar- hringa. Fjórtán ára drengurfrá bænum Kleifum í Seyðisfirði, Guðmann Guð- mundsson, fann Harry nær dauða en lífi. Atburðurinn vakti heimsathygli og þótti með ólíkindunt að maðurinn skyldi lifa af þá erfiðleika sem hann hafði gengið í gegnum. Um fjörutíu breskir fjölmiðlamenn komu til lands- ins og brutust út slagsmál á Kefla- víkurflugvelli og á Fjórðungssjúkra- húsinu á Isafirði þegar fréttamenn kepptust um að fá að taka myndir af endurfundum Harrys og Ritu eigin- konu hans. í bókinni Útkall í Djúpinu eftir Óttar Sveinsson er þessum atburðum lýst. Óttar hefur talað við marga sem að málinu komu, meðal annars skip- verja um borð í Notls County. Richard Moore, sem lýsir angistinni um borð í strandaða togaranum. Varðskipsmenn á Óðni segja frá atburðunum eins og þeir upplifðu þá, en þeir sýndu mikið hugrekki við að bjarga áhöfn Notts County frá borði á strandstað við erfið skilyrði. Björgunarmenn við Isa- fjarðardjúp lýsa aðstæðum og bjarg- vættur Harrys, Guðmann Guðmunds- son, sem var ungur sveitapiltur þegar atburðurinn átti sér stað, lýsir því er hann gekk fram á skipbrotsmanninn. Síðast en ekki síst tjáir Harry Eddom sig um reynslu sína, en til þessa hefur hann lítið viljað tala um þessa örlagaríku atburði. Við grípum niður þegar Notts County hefur strandað við Snæfjallaströnd og Ross Cleveland er sokkinn. Harry Eddom veltist um á öldunum í gúmbát ásamt tveimur skipsfélögum sínunt. Félagtu' hans em mjög fáklæddir og annar þeirra er látinn þegar hér er komið sögu; króknaður úr kulda; Ef skipverjunum á Notts County þótti hlutskipti sitt vonlaust var staða Harrys Eddoms, sem var gegndrepa í gúmbátnum í úfnu ísafjarðardjúpinu. þó enn verri. Hann hugsaði heim til eiginkonu sinnar og dóttur sem hann vissi ekki HARRY Eddom ásamt Ritu, eiginkonu sinni, og sjö mánaða dóttur þeirra, Natalee, hvort hann fengi nokkurn tíma að sjá aftur: „Eg hugsaði unt Ritu og Natalee, dóttur mína, er ég lá þama í ísköldum gúmbátnum. Mun ég deyja núna? Og lífið sem hafði brosað svo við okkur Ritu." hugsaði ég. „I september höfð- um við keypt okkur hús í Cottingham í útjaðri Hull. Við Rita höfðum verið svo heppin að fá hús með litlum garði þar sem Natalee litla gæti leikið sér. Við höfðum einmitt rætt um að ég gæti verið heima um sumarið þegar hún færi að ganga. Ég sá ekki fram á að það myndi rætast. Stúlkan myndi ekki sjá pabba sinn aftur. Hún myndi ekki einu sinni muna eftir mér." Háskalegar aðstæður Varðskipsmenn töldu ljóst að ekkert væri hægt að aðhafast við strandstað Notts County eins og veðrið var. Akveðið var að svipast um eftir Heiðrúnu II og reyna að freista þess að komast í heldur meira skjól til að höggva ís af neðri ratsjánni. Torfi Geimtundsson háseti var með Pálma stýrimanni á vaktinni: „Ég var á fjögur-átta-vaktinni með Pálma. Um nóttina var ég sendur upp með honum í þessu brjálaða veðri til að hjálpa honum við íshöggið. En það var ekki mikil hjálp í mér. Aðstæð- urnar voru svo háskalegar að ég hélt mér aðallega utan um mastrið. Eitt sinn hrasaði Pálmi í tröppunum og hékk á annarri hendi. Eftir þetta skipaði hann mér að fara TORFI Geirmundsson, 17 ára háseti, við ísbarning um borð í Óðni.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.