Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 06.12.2001, Page 16

Fréttir - Eyjafréttir - 06.12.2001, Page 16
16 Fréttir Fimmtudagur 6. desember 2001 Aðalfundur Vinnslustöðvarinnar: Verulega bætt afkoma milli ára Engin lausn að flytja vandamál frá einu byggðarlagi til annars -En af hverju er þessi umræða sífellt um Vestfirði? Þegar kvótakerfið var sett á var til staðar útgerð á Vestfjörðum og þeir útgerðaraðilar voru jafnstæðir öðrum og hafa því átt sömu möguleika og aðrir innan þessa kerfis, sagði Jakob Bjarnason stjórnarformaður á fundinum HARALDUR Gíslason stjórnarmaður, Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson framkvæmdastjóri, Gunnar Birgisson stjórnarmaður, Jakob Bjarnason stjórnrformaður, Magnús Kristinsson stjórnarmaður og Þorvarður Gunnarsson endurskoðandi. Á aðalfundi Vinnslustöðv- arinnar á föstudaginn sagði Jakob Bjarnason, stjórnarformaður að reksturinn hefði á heildina litið verið með miklum ágætum á liðnu rekstrar- ári. Hann sagði þó einn skugga bera á, mikið gengistap upp á 700 milljónir króna, sem leiddi til þess að félagið var rekið með 276 milljóna króna halla. Hann kom víða við í ræðu sinni, m.a. finnst honum lítið hafa heyrst til þingmanna Suðurlandskjördæmis á meðan héðan hafa horfið 500 störf í fiskvinnslu og ekki kannast hann við viðbrögð frá Byggða- stofnun sem virðist einbeita sér að Vest- fjörðum. Á réttri leið Jakob sagði það mikið gleðiefni fyrir þá, sem að Vinnslustöðinni standa, að reksturinn skilaði á rekstrarárinu rúm- lega þúsund milljóna króna framlegð og hefur framlegð rekstrarins þá aukist um hátt í 900 milljónir króna frá vordögum 1999. „Það ár stóð stjóm félagsins frammi l'yrir gríðarlega erfiðum ákvörðunum sem m.a. fólu í sér að selja og eða leggja niður hluta af starfsemi félagsins með tilheyrandi stórfækkun starfsmanna. Stjómin tók ákvörðun, erfiða ákvörðun, en sú ákvörðun hefur að mínu mati lagt gmnninn að stöðu fyrirtækisins í dag,“ sagði Jakob. Kom fram hjá honum að fram- legðarhlutfallið hækkaði úr 4% rekstrarárið 1998/1999 í 21% rekstrarárið 1999/2000 og í 32% á síðastliðnu rekstrarári. Aætlanir félagsins gera ráð fyrir að fram- legðarhlutfall félagsins lækki í 27% á yfirstandandi rekstrarári þar sem gert er ráð fyrir verðlækkunum á afurðum félagsins. Gengisfall og hækkandi afurðaverð Jakob sagði fjóra þætti vega þyngst þegar litið er yfír síðastliðið ár. 1 fyrsta lagi hefði íslenska krónan veikst um 22% frá 1. september 2000 til 31. ágúst 2001. Gengisfallið leiddi til mikils gengistaps en að sama skapi til tekjuaukningar og þar með bættrar framlegðar. í öðru lagi hélst afurða- verð bolfisks hátt á árinu og bræðsluafurðir hækkuðu mikið þegar leið á árið. „Það er einkar ánægjulegt að sjá á ný hækkun á verði mjöls og lýsis eftir tvö ákaflega erfíð og mögur ár.“ I þriðja lagi var það sjómanna- verkfallið sem Jakob sagði að hefði kostaði félagið og starfsmenn þess mikla fjármuni. „Það er vissulega áhyggjuefni að sjómannaforystan hvetur ávallt til verkfalla á veharvertíð og beinir spjótum sínum þannig að vertíðarplássum eins og Vestmanna- eyjum. Langt verkfall á vetrar- eða loðnuvertíð veldur miklum skaða hjá fyrirtækjum eins og Vinnslustöðinni og veikir samfélögin sem þau starfa í.“ Fjórði þátturinn sem Jakob nefndi er að stjómendum og starfsfólki fé- lagsins tókst að halda föstum rekstrarkostnaði svipuðum á milli ára þrátt fyrir aukin umsvif. „Þegar litið er til baka er ekki nokkur vafí á því að það voru teknar réttar ákvarðanir á vordögum árið 1999. Þessar ákvarðanir voru erfiðar, bæði lokun og sala fískvinnslunnar í Þorlákshöfn og uppsagnir starfsmanna í Vestmannaeyjum. í Þorlákshöfn kom Vinnslustöðin að stofnun á nýju fyrirtæki, Frostfiski hf„ sem keypti frystihús félagsins þar og hóf vinnslu á fiski til útflutnings með flugi. Ekki er hægt að segja annað en vel hafi til tekist því áætluð velta Frostfísks á þessu ári er um 1.200 milljónir sem er þrisvar sinnum meiri velta en þegar starfsemin þar var í höndum Vinnslustöðvarinnar. Margt af fyrrum starfsfólki okkar í Þorláks- höfn fékk vinnu hjá hjá Frostfiski og býr líklegast við meira atvinnuöryggi en áður. í Vestmannaeyjum sagði félagið upp 70 starfsmönnum sínum. Það var nauðsynleg aðgerð en um leið sársaukafull fyrir það fólk sem fyrir uppsögnum varð. Það er von okkar að í dag hafí flestir ef ekki allir þeir sem sagt var upp fengið aðra vinnu við sitt hæfi. An þeirra aðgerða sem gripið var til er allsendis óvíst að félagið hefði náð að rétta úr sér eins og raun ber vitni. Þeir starfsmenn sem eftir standa í fyrirtækinu hafa haft góðar tekjur og búa við atvinnuöryggi." sagði Jakob. Næst kom Jakob inn á mikilvægi þess fyrir sjávarbyggðir að þar sé atvinnurekstur, sem skilar viðunandi árangri, og styrki þar með stoðir byggðarinnar. „Ekkert vekur meiri ugg í brjósti starfsmanna en að fyrirtækið, sem það starfar hjá, sé illa statt. Ovissa starfsmannanna og þar með samfélagsins alls leiðir til brottflutnings og atgervisflótta." Kvótakerfið og byggðaþróun Næst gerði Jakob að umtalsefni kvóta- kerfíð og meint áhrif þess á byggðaþróun í landinu. Sagði hann að birtar hefðu verið skýrslur og lærðar greinar urn tengsl sjávarútvegs, þar með talið kvótakerfísins, við byggða- þróun hér á landi. „Nú síðast kom út skýrsla um „Ahrif kvótasetningar aukategunda hjá krókabátum á Vestfjörðum". Ekki vil ég trúa öðru en því að Byggðastofnun gangi gott eitt til með þessari skýrslu en meira að segja Vestfirðingum sjálfum er farið að blöskra hvemig hlutimir em þar settir fram,“ sagði Jakob og taldi Vestfirðinga eiga allt gott skilið. „En stjómmálamenn verða að gera sér grein fyrir því að tilflutningur veiðiheimilda er tilflutningur frá einu sjávarplássi til annars en ekki útdeiling úr einhvetjum sameiginlegum potti til viðkomandi sjávarpláss. Það kann ekki góðri lukku að stýra að vandamál í einu byggðarlagi sé leyst með því að flytja það yfir í annað byggðarlag. En af hverju er þessi umræða sífellt um Vestfirði? Þegar kvótakerfið var sett á var til staðar útgerð á Vestfjörðum og þeir útgerðaraðilar vom jafnstæðir öðmm og hafa því átt sömu mögu- leika og aðrir innan þessa kerfis. Eg spyr: Er það fiskveiðistjóm- unarkerfmu einu um að kenna að Vestfirðingar hafa dregist aftur úr? Koma kannski einhverjir aðrir áhrifa- þættir þar við sögu? En hvað með Vestmannaeyjar? Skyldu margir gera sér grein fyrir því að á síðasta áratug töpuðust um 500 störf í fiskvinnslu hér í þessu bæjar- félagi? Að auki fækkaði störfum til sjós. Hvar er Byggðastofnun og hennar margföldunarstuðlar? Hvar er rödd þingmanna Vestmannaeyja í þessu máli? Eru þeir hræddir við að tjá skoðun sína á þessari staðreynd opinberlega? Hvers vegna heyrist ekki í þeim af þessu tilefni?" Allur floti Eyjamanna var til sölu 1978 í framhaldi af þessu spurði Jakob, hver verður staða sjávarútvegsfyrir- tækja í Vestmannaeyjum ef til stórfelldrar uppstokkunar kemur á núverandi fiskveiðistjómunarkerfi? „Em menn virkilega búnir að gleyma því að árið 1978 var nær allur skipa- floti Eyjamanna auglýstur til sölu á einu bretti. Kaupendur þá gátu keypt Eyjaflotann án þess að greiða krónu út, bara yfirtaka skuldir. Þá var ekki biðröð þeirra sem vildu komast í útgerð. Arið 1984 stóð sjávarút- vegurinn frantmi fyrir gjaldþroti þrátt fyrir að úthlutaður þorskafli væri í kringum 250 þúsund tonn, en þá þegar var fiskiskipaflotinn orðinn allt of stór. Og til hvaða ráða gripu stjómvöld? I stað þess að grípa til styrkja líkt og gert hefur verið í nágrannalöndunum var sjávarútveginum sjálfum ætlað það hlutverk að hagræða. Allar götur síðan hafa útgerðarmenn keypt óhag- kvæmar útgerðir út gegn greiðslum í formi peninga eða með yfirtöku skulda þess sem hætti eða sameinað fyrirtæki sín í þeim tilgangi að nýta skip sín og aðrar fjárfestingar með hagkvæmari hætti. Þannig hafa um 80% veiðiheimildaskipt um eigendur. Allan tímann hefur hverjum og einum verið fijálst að kaupa sér aðgang að fiskvinnslu eða útgerð. líkt og er í öðmm atvinnurekstri." Smábátar auka sinn hlut Baráttan á milli hefðbundinnar út- gerðar, í aflamarkskerfinu annars vegar og smábáta og kvótalausra báta hins vegar, hefur fengið mikla opinbera umfjöllun að undanfömu. Smábátar hafa stöðugt aukið hlutdeild sína í heildarafla margra tegunda í allmörg undangengin ár. Hve margir hér inni vita að bátar undir 10 tonnum veiddu jaftt mikið af þorski og allur frystitogaraflotinn? Hve margir vita að frystitogarar veiða minna af ýsu og steinbít en smábát- amir? Svo halda menn því fram að veiðar smábáta hafi engin áhrif á stærð ein- stakra stofna og unnt sé að gefa veiðar þeirra ftjálsar! Vestmannaeyingum er ýsuveiði sérstaklega mikilvæg. Ef við skoðum ýsuna og þróun veiða smábáta af heildarafla í henni frá 1992 sjáum við hve mikil aukningin er.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.