Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 06.12.2001, Blaðsíða 22

Fréttir - Eyjafréttir - 06.12.2001, Blaðsíða 22
22 Fréttir Fimmtudagur 6. desember 2001 Landakirkja Landakirkja - í lífi og leik Sunnudagur 9. desember Kl. 11.00 Sunnudagaskóli með undirbúningi jólanna. Við flytj- um gleðifréttir með tali og tónum, söng og gleði. Kl. 14.00 Guðsþjónusta. Kl. 20.00 Æskulýðsfundur Landakirkju og KFUM&K í safnaðarheimilinu. Unglingar í 8. til 10. bekk eru hjartanlega velkomnir. Mánudagur 10. desember Kl. 16.45 Bamastarf fatlaðra, yngri deild Þriðjudagur 11. desember Kl. 10.00 og 13.30 koma leikskólar í kirkjuheimsókn. Miðvikudagur 12. desember Kl. 10.00 og 13.30 koma Leikskólar í kirkjuheimsókn Kl. 18.00 - 19.00 Æfing hjá Litlum lærisveinum í Safn- aðarheimilinu. Kl. 20.00 Opið hús í KFUM &K-húsinu fyrir unglinga. Kl. 23.30 Jólatónleikar Sam- kórsins. Fimmtudagur 13. desember Kl. 17.30 Jólafundur TTT (tíu til tólf ára starfið) Kl. 20.00 Kóræfmg Kórs Landa- kirkju. Föstudaginn 14. desember Kl. 18.00 Eldri hópur fatlaðra, lokaæfing fyrir jólastund. Viðtalstímar prestanna eru þriðjudaga til föstudaga kl. 11.00 lil 12.00. Hvítasunnukirkjan Fimmtudagur 6. desember Kl. 20.30. Biblíufræðsla „Meistarinn er hér og vill finna þig.“ Jóh. 11:28. Föstudagur 7. desember Kl. 20.30. Unglingakvöld, allt ungt fólk velkomið. Laugardagur 8. desember Kl. 20.30. Bænasamvera, beðið fyrir landi og þjóð. Sunnudagur 9. desember Kl. 15.00. Samkoma, söngur og prédikun í krafti Guðs. Allir velkomnir. Þriðjudagur 11. desember Kl. 17.00 KRAKKAKIRKJAN, öll börn velkomin. Aðventkirkjan Fimmtudagur 6. desember Kl. 17.30 Samverustund í safnaðar- heimilinu Laugardagurinn 8. desember Kl. 10:00 Biblíurannsókn Kl. 11.00 Guðsþjónusta. Gestur hel- garinnar er Eric Guðmundsson. Allir velkomnir. §nmm Sæli kvaddur með virktum Á laugardaginn héldu Streini og OIli mikla veislu þar sem fráfarandi framkvæmdastjóri, Ársæll Sveinsson var kvaddur. Ársæll er að flytjast búferlum til Danmerkur þar sem hann og Sigrún Oskarsdóttir, kona hans hafa komið sér vel fyrir. Hún rekur skóverslunina Ástu G. á Strikinu en sjálfur fer Ársæll í byggingavinnu. Ingi Sigurðsson, sem gegnt hefur starfí byggingafulltrúa bæjarins undanfarin ár tekur við framkvæmdastjórastöðunni af Ársæli. Ingi er fremst til vinstri og Ársæll situr fyrir miðju. Sýna í í kvöld fímmtudaginn 6. desember verður haldin tískusýning á nýrri fatalínu Selmu Ragnardóttur fata- hönnuðar í versluninni Dýrinu Laugavegi 47 í Reykjavík. Þessa nýju línu hefur Selma hannað í samstarfí við Sigurdísi Hörpu Arnarsdóttur myndlistarmann, sem jafnframt mun opna sýningu á nýjum verkum sínum í versluninni. Selma og Sigurdís eru Eyjamönnum að góðu kunnar fyrir frumkvæði og áræði í sköpun sinni og ætti að vera ánægjulegt fyrir Eyjamenn að verða vitni að nýjum landvinningum þeirra á fasta- landinu. Selma sagði í stuttu spjalli að hún hefði hannað ákveðna haustlínu sem verið hafi til sölu í Dýrinu og í Flamingo í Eyjum, og hafi ákveðið að bæta inn í þá línu núna. „Það verður kynning á þessari nýju línu og þá jafnframt á mér sem nýjuin liönnuði fyrir verslunina Dýrið.“ Selma segir að ekki séu miklar breytingar í sníðagerð línunnar frá því í haust, en breytingin felst aðaílega í efnisnotkun og áferð þeirra. „Eg verð áfram með buxur, toppa, pils og vesti, en núna bætast við kjólar. Eg nota nú fínni efni, bæði í áferð og um leið dýrari.“ Hvemig kemur Sigurdís inn í þessa hönnunarvinnu? „Við höfðum lengi talað um að gera eitthvað saman og núna fannst okkur rétti tíminn til þess. „Mig langaði til að breyta um efni og fékk þá hugmynd að gaman væri að fá hana til þess að mála á nokkrar flíkur. Ég vil nú ekki fara út í það í smáatriðum hvernig hennar þáttur er Gullið er komið! Scndi lyrsö pokkinn frítt liwrttcm tií Langar þig að léttast og líða betur? 2-5 kíló á viku! Rétt leið líkamans til að léttast! Upplýsingar oggóða þjónustu veitir: Kristín s. 861-7667 Sjálfstæður Herballfc drciflngaradili artemis(®islandia.is - www.islandia.is/herbalife.gladningur hugsaður, en ef hægt er að taka einhverja líkingu má segja að tengsl séu milli minnar hönnunar og gömlu „ömmuflauelspúðanna“ sem til eru heima hjáiimmum og öfum um allt land. Ég stend hins vegar ekkert yfir Sigurdísi né stjórna hvernig hún útfærir sinn þátt í þessu, þó að ég leggi kannski ákveðnar línur. Reyndar eru ekki allar flíkurnar málaðar sem kynntar verða, en hver flík er einstök og engar tvær eins.“ Sigurdís sýnir verk sem hún kallar Stillimyndir. Hún segir að verkið og framsetning þess hafi verið lengi að gerjast í henni og sé í beinu samhengi og framhaldi af málverkum hennar og ljósmynda- verkum. Stilli- myndir er þrívítt verk sem byggist á stuttum frásögnum, eins og atriði í kvikmynd, þó án eiginlegs upphafs né endis. Þannig eru stillimyndir Sigurdísar tímalausar um leið og þær vísa til sammannlegs veruleika. Einsog áður segir verður kynningin í versl- uninni Dýrinu Laugavegi 47 í Reykjavík og hefst klukkan 20.30. í kvöld fimmtudag- inn 6. desember. Sýning Sigurdísar verður uppi út desember og er opin á verslunartíma. Myndin er eftir Sigurdísi og er hluti af stærra verki sem heitir „Stillimyndir“.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.