Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 06.12.2001, Qupperneq 24

Fréttir - Eyjafréttir - 06.12.2001, Qupperneq 24
Frétta- og auglýsingasími: 481-3310 * Fax 481-1293 Vikutilboð 6. -13. des. S.S. hangilæri, úrbeinað U7S kí. ■ áður 205S kr/kg S.S. hangiframpartur, úrbeinaður IHS kí. ■ áður 138G kr/kg Svínahamborgarahryggur m. beini SSS kf. ■ áður 1389 kr/kg Plúsapótek komið til Eyja Apótek Vestmannaeyja hefur gengið til samstarfs við Plús- apótek ehf., seni er hópur sjálf- stætt starfandi apóteka um allt land. Hanna María Siggeirsdótdr apó- tekari sagði í viðtali að ástæða þess að hún fer út í þetta samstarf væri m.a. sú að markmið Plúsapóteka væri að komast að sem hagstæðust- um samningum við birgja og þjón- ustufyrirtæki. „Þannig geta þau boðið upp á verð sem eru sambæri- leg við apótekskeðjuverð, og sam- einast um auglýsingar og markaðs- setningu. Jafnframt er hvert Plús- apótek sjálfstætt starfandi eining, sem nýtir kosti einkareskturs, hver lyfsöluleyfishafi er ábyrgur fyrir rekstri síns Plúsapóteks og ber umhyggju fyrir sínum viðskipta- vinum og býður þeim persónulega þjónustu. Þannig sameina Plúsapó- tekin bæði kosti einkareksturs og keðju,“ segir Hanna María. Plúsapótekin hafa tekið upp nýtt sameiginlegt merki og markaðs- ímynd, sem leggur áherslu á per- sónulega þjónustu og gott verð. Hanna María segir að fyrsta átakið sem Plúsapótekin gera sameigin- lega er Jólaplúsinn, sem er sérstak- lega hagstætt tilboð á ýmsum gjafa- vörum. Einnig verður sett upp sameiginleg heimasíða. „Plúsapótekið í Vestmannaeyjum verður með ýmis opnunartilboð á lyfjum í gangi fram að jólum, fylg- ist vel með. Apótek Vestmannaeyja býður upp á eftirfarandi þjónustu: neyðarþjónusta um helgar, heim- sendingar, lyfjaskömmtun fyrir ein- staklinga, blóðþrýstingsmælingar, faglega ráðgjöf og ýmislegt annað." sagði Hanna María. STJÓRN ísfélagsins hélt sérstakan hátíðarfund á laugardaginn í tilefni 100 ára afmælis félagsins. Svo skemmtilega vildi til að þetta var 1100. stjórnarfundur ísfélagsins frá upphafi. Frá vinstri, Eyjólfur Martinsson, Ágúst Bergsson, Þórarinn Sigurðsson, Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson stjórnarformaður, Guðbjörg Matthíasdóttir, Birkir Leósson endurskoðandi, Hörður Óskarsson fjármálastjóri og Ægir Páll Friðbertsson framkvæmdastjóri. Kynning fnstudag 7. des. kl. 16 ■ 13 S.S. hangikjöt eg Egilsmalt og appelsín Jólakökudiskur 569,- áíur685,- Jólakaffistell, 18 stk. 1496,- áður 1796,- Jólaglös, 3 stk. 249,- áður329,- Lambijóla m. pappír 349, - áíur 398,- Celebrations konfekt, 288 gr. 559, - áiur 689,- Morpiparkökur 249, - áður299,- öuni kerti 38 stk. 849,- áður879,- Rútuferðir - Bus TOURS Móttaka ferðamanna, skóla- og íþróttahópa ÓDÝRASTIKOSTURINN í EYJUM 0)4811909/896 6810 • Fax 481 1927 Sendibílaakstur - iiinanbæjar Vilhjálmur B ® 481-2943 * 897-1178 ergsteii stAúim tisson ísfélagið kaupir frystitogara -með 1900 tonna karfakvóta ísfélagið hefur keypt frystitogar- ann Snorra Sturluson af Granda h/f ásamt 1.900 tonna karfakvóta. Kaupverðið, á skipinu og kvót- anum, hefur verið greitt að fullu með 11,5% hlut í Isfélaginu og er Grandi þar með orðinn einn stærsti hluthafí Isfélagsins. 1 fréttatilkynningu frá Isfélaginu segir ennfremur: „Isfélag Vest- mannaeyja hf. er með þessum kaupum að auka bolfiskkvótann um 1.045 þorskígildi eða sem nemur þriðjungi í þorskígildum talið. Eiginfjárstaðan er styrkt og áhætta félagsins gerð dreifðari. Með kaup- unum fetar félagið sig inn á nýjar brautir í starfsemi sinni. Stjómendur ísfélagsins stefna að því að styrkja kvótastöðu félagsins enn frekar í framhaldi af þessum kaupum." Ægir Páll Friðbertsson fram- kvæmdastjóri segir þessi kaup liður í endurskipulagningu á skipastóli félagsins. „Við höfum byggt upp landvinnsluna og bræðslurnar, eins höfum við nýlega tekið í notkun nýtt uppsjávarvinnslukerfi og næsta skref okkar er útgerðin," sagði Ægir Páll og bætti við að stefnan væri að reka landvinnsluna með svipuðu sniði og gert hefur verið undanfarna mánuði. Ægir Páll sagði að Snorri Sturlu- son verði gerður út sem frystitogari og því nýr kafli að hefjast í rekstr- inum. Má búast við frekari breytingum á' skipastólnum? „Við munum skoða þau mál á næstunni en engar ákvarðanir hafa verið teknar.“ Ekki hefur verið ákveðið nafn á skipið. Snorri Sturluson sem er 1286 brúttótonn, 75 m langur og tæplega tólf m breiður er upphaflega smíð- aður 1973 en var breytt verulega árið 1996, m.a. var þá skipt um vél og spil.Búist er við að 27 manna áhöfn. II : n ii ii Heimsiglingin gengur að óskum ii : : ii ii Heimsigling Guðna Ólafssonar VE gengur vel en skipið lagði af stað heim 25. nóvember sl. Að sögn Guðna Sigurðssonar hjá Sæhamar var allt gott að frétta af þeim í gærmorgun þegar hann talaði við Sigmar Sveinsson skip- stjóra. „Þeir voru staddir 18,51° norður og 159,51° austur í blíð- skaparveðri og er skipstjórinn mjög ánægður með stöðugleikann í skip- inu, þeir láta vel af dvölinni um borð og báru fyrir bestu kveðjur heim,“ sagði Guðni. Sjö skipverjar eru um borð en vonir stóðu til að skipið kæmi til Eyja fyrir þrettándann en ekki lítur út fyrir að það takist. II : : n ii

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.