Vesturland - 23.10.2014, Qupperneq 1
MIKIÐ ÚRVAL DEKKJA Á BETRA VERÐI - DEKKJAHOLLIN.IS
iG50 V902AiG35
PF-3D PF-5
Vetrardekkin færðu á
dekkjahollin.is
1. Leitar eftir stærð
2. Setur dekkin í körfu
3. Velur flutningsmáta
4. Gengur frá greiðslu
Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi friðlýstra og
friðaðra húsa og mannvirkja, sbr. reglur nr. 577/2014. Samkvæmt
úthlutunarreglunum er heimilt að veita styrki úr sjóðnum til:
viðhalds og endurbóta á friðlýstum og friðuðum húsum og
mannvirkjum.
viðhalds annarra mannvirkja sem hafa menningarsögulegt,
vísindalegt eða listrænt gildi.
byggingarsögulegra rannsókna, þar með talið skráningu húsa
og mannvirkja, og miðlun upplýsinga um þær.
Umsóknir eru metnar með tilliti til varðveislugildis, t.d. vegna
byggingarlistar, menningarsögu, umhverfis, upprunaleika og tæknilegs
ástands ásamt gildis fyrir varðveislu byggingararfleifðarinnar.
Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar, m.a. úthlutunarreglur, er að finna
á heimasíðu Minjastofnunar Íslands, www.minjastofnun.is.
Umsóknarfrestur er til 1. desember 2014. Umsóknir sem berast eftir að
umsóknarfresti lýkur koma ekki til álita við úthlutun.
Minjastofnun Íslands hefur eftirlit með að styrkt verkefni séu viðunandi af
hendi leyst og í samræmi við innsend umsóknargögn. Bent er á
leiðbeiningarit um viðhald og endurbætur friðaðra og varðveisluverðra húsa
sem finna má á heimasíðu Minjastofnunar Íslands, undir gagnasafn og á
Húsverndarstofu í Borgarsögusafni Reykjavíkur/Árbæjarsafni.
Suðurgötu 39,101 Reykjavík
Sími: 570 1300
www.minjastofnun.is
husafridunarsjodur@minjastofnun.is
Minjastofnun Íslands
auglýsir eftir umsóknum um styrki úr
húsafriðunarsjóði
fyrir árið 2015
íshúsið
ísvélar
Rétt ísun – hærra skilaverð!
30
ára reyns
la
198
3 - 2013
www.ishusid.is ∑ S:566 6000 Fáðu tilboð! Eigum ísvélar á lager
isvelar.is
23. Október 2014
17. tölublað 3. árgangur UMHVERFISVOTTUÐ PRENTUN
„Menntun núna“
Samstarf við hagsmunaaðila um þróun verkefnisins
Tilraunaverkefnin „Menntun núna“ í Breiðholti og Norðvesturkjördæmi ásamt Fjölmenningarsetrinu stóðu
fyrir tveimur ráðstefnum undir yfirskrift-
inni „Íslenska og fjölmenningarsamfé-
lagið.“ Fyrri ráðstefnan fór fram á Ísafirði
8. október, og sú seinni í Breiðholti 10.
október. Á ráðstefnunni í Edinborgarhús-
inu á Ísafirði var áherslan á fyrirmyndar-
verkefni tengd íslenskunámi innflytjenda
og ólíkar kennsluaðferðir. Á ráðstefnunni
í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi í
Breiðholti var rætt um móttöku og þátttöku
innflytjenda í íslensku samfélagi.
Markmið ráðstefnanna var að vekja
athygli á þeirri þróun sem orðið hefur á
íslenskunámi síðustu ár og undirstrika mik-
ilvægi samstarfs og samþættingar er kemur
að móttöku, þjónustu og fræðslu til inn-
flytjenda. Illugi Gunnarsson menntamála-
ráðherra og Hanna Birna Kristjánsdóttir
innanríkisráðherra fluttu erindi á ráðstefn-
unum auk fulltrúa fræðsluaðila, Innflytj-
endaráðs, Fjölmenningaráðs Reykjavíkur-
borgar, sveitarfélaga og Borgarbókasafns.
„Menntun núna“ verkefnin eru að undirbúa
tilraunaverkefni um móttökuviðtal og hefur
óskað eftir samstarfi við hagsmunaðila um
þróun verkefnisins með það fyrir augum að
þróa ferli og módel sem innleiða mætti á
landsvísu í lok verkefnisins.
Verkefnastjóri í Norðvesturkjördæmi
er Geirlaug Jóhannsdóttir sveitarstjórn-
armaður í Borgarbyggð en verkefnastjóri
í Breiðholti er Stefanía G. Kristinsdóttir.
Geirlaug Jóhannsdóttir verkefnastjóri ásamt Sindra Sigurgeirssyni formanni bændasamtakanna og bónda á bakkakoti í borgar-
firði, en ekki er fráleitt að að álíta bændur sýni verkefninu ,,Menntun núna” áhuga.