Fréttir - Eyjafréttir - 16.01.2003, Blaðsíða 4
4
Fréttir
Fimmtudagur 16. ianúar 2003
EYJAMAÐUR VIKUNNAR
Róluvöllurinn fyrir
utan húsið mitt
fallegasti staður sem ég hef séð
Allra veðra von er heiti á tónleikum
sem ungirog efnilegir tóniistarmenn í
Eyjum standa fyrir á iaugardaginn.
Einn þeirra sem hefur haft veg og
vanda að undirbúningi tónieikanna er
meðiimur hljómsveitarinnar Made in
China, Haraldur Ari Karlsson. Hann
er Eyjamaður vikunnar.
Fullt nafn? Haraldur Ari Karlsson.
Fæðingardagur og ár? 12.
september 1987.
Fæðingarstaður?E\nhver fæðingar-
deild á spítala Vestmannaeyja.
Fjölskylda? Sigga Bjama í
bankanum og Kolla systir mín.
Hvað ætlaðirþú að verða þegar
þú yrðir stór? Jahh, það er auðséð
hvað ég ætla að verða núna en ég
ætlaði að verða smiður og stefni
enn á það.
Hvernig bíl vildir þú helst eiga?
Ford Mustang.
Uppáhaldsmatur? Það er Pizza,
takkó og kjúlli.
Hvaða tónlist kemurþér í gott
skap? Punk rock (háskóla rokk)
Hvaða frægu persónu vildirþú
helst hitta? Ég held hún viti hver
hún er.
Aðaláhugamál? Það
er óhætt að segja það
að tónlist er mitt eina
áhugamál.
Fallegasti staður sem
þú hefur komið á?
Róluvöllurinn sem er
fyrir utan húsið mitt.
Uppáhalds-
íþróttamaður eða
íþróttafélag? Ég veit ekki um neitt.
Stundarþú einhverja íþrótt? Nei.
Ertu hjátrúarfull? Nei.
Uppáhalds sjónvarpsefni? Já, ætli
það sé ekki Silfur Egils.
Besta bíómynd sem þú hefur
séð? Það veit ég ekki.
Ertu hjátrúafullur? Já og nei, ég
trúi bara að það gerist allt fyrir
ástæðu.
Hvað finnst þér gera fólk
aðlaðandi? Ef það er kvenfólk
Hvað finnstþér gera fólk
fráhrindandi? Ef það er með
leiðinlega stæla.
Hvernig tókust tónleikarnir í
fyrra? Þeirgangabaramjögvel.
En það er alltaf eitthvað sem má
fara betur.
Haraldur Ari Karlsson er
Eyjamaður vikunnar
Eruð þið búnir að vera lengi að
undirbua tónleikana? Já, við erum
eiginlega ekki búnir að hafa mikinn
tíma í það. Við erum að semja alveg
á fullu núna og gaman að segja frá
því að ég var að klára að semja lag
með Hreim Erni.
Eruð þið með einhver frumsamin
lög núna?óá við spilum eitt núna.
En það eru fleiri á leiðinni.
Eruð þið bjartsýnir á góða
mætingu? Já ég er ekki frá því að
það eigi einhver eftir að mæta.
Eitthvað að lokum? Gerið það
sem ykkur langar, lifið samkvæmt
draumum ykkar.
1 1
1 ' ’• ''í/ m MATGÆÐINGUR VIKUNNAR
Humarrétturinn
Pikkaló
Ég þakka Gumma fyrir áskorunina og þakka honum
ennfremur fyrir uppskriftina að einu gæsinni sem luinn
hefur veitt.
Humarrétturinn Pikkaló
1 kg humar
5-6 msk olía
8 tómatar
salt og pipar
3 tsk. karrý
2 tsk. hvítlauksduft
1 peli rjómi
1 paprika
1 haus iceberg
nokkrir dropar tabascosósa
Humarinn þerraður og kryddaður. steiktur í olíunni. Allt
grænmetið saxað niður og sett á pönnuna og síðan
rjóminn settur út á, látið malla á pönnunni í smástund.
Borið frant með hvítlauksbrauði og hrísgrjónum.
Ekki er verra að hafa gott hvítvín með þessu.
Léttsteiktar toppskarfabringur
(Uppskrtff fyrir fjóra)
Bringur af 3 skörfum
salt og pipar
2 msk olía
Hitið ofninn í 180°. Hitið olíuna á pönnu og brúnið
bringumar í mínútu á hvorri hlið.
Setjið pönnuna í ofninn og látið bringumar steikjast í 5-6
mínútur.
Sósa
5 dl vatn og villibráðarkraftur
2 dl malt
1-2 msk rifsberjahlaup
30 gr smjör
30 gr hveiti
1 peli rjómi
salt og pipar
Hitið soðið og hrærið berjahlaupið út í.
Búið til smjörbollu og þykkið sósuna eftir þörfúm. Sjóðið
í 10 mín, bætið þá ijómanum út í, sjóðið í 2-3 mín.
Kryddið með salti og pipar.
Ég vil að endingu skora á Pál Marvin Jónsson. Hann lumar á ýmsu sem er
mjög gott og tala ég þar af reynslu.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærs föður okkar,
tengdaföður, afa, sonar og bróður.
Gylfa Harðarsonar
Vestmannabraut 33
Gylfi Anton Gylfason, Linda Hrönn Ævarsdóttir,
Ólafur Þór Gylfason. Ingibjörg Amarsdóttir,
Unnur Heiða Gylfadóttir, Þröstur Friðberg Gíslason,
Bjarki Týr Gylfason, Sigríður Reynisdóttir,
Unnur Jónsdóttir,
bamaböm og systkini hins látna.
Atvinna - skrifstofustarf
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum auglýsir eftir
starfsmanni á skrifstofu embættisins. Um er að ræða
tímabundna ráðningu, 1 ár.
Umsóknir skulu berist embættinu eigi síðar en í
föstudaginn 31. janúar 2003.
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
BÓN
Á laugardögum frá klukkan 9.00 í Áhaldahúsinu
Sápuþvottur, tjöruhreinsun, bón, ryksugun, þrif að
innan.
Þetta er liður í fjáröflun ÍBV knattspyrna kvenna með
hjálp ESSÓ
Olíufélaqið hf
vww.esso.is
Á döfinni t
Janúar
13-27. Leiklistarnámskeið hjá Leikfélagi Vestmannaeyja.
16. Bingó í Þórsheimilinu kl. 20.30.
17. Iþróttamaður ársins valinn. Þórsheimilið kl. 20.00.
17. Nýársfagnaður Líknar í Akóges kl. 20.00.
18. ALLRA VEÐRA VON. Tónleikar unglingahljómsveita í Höllinni frá
kl. 20.00 - 01.00. Aðgangseyrir kr. 800.-
20. Fundur með þingmönnum Suðurlands um atvinnumál kl. 17.00Í
Alþýðuhásinu.
23. 30 ára upphaf Heimaeyjargoss minnst. Blisför frá þremur stöðum
kl. 19.10. Við norðurenda íþróttamiðstöðvar, við kyndistöðina
hjá malarvellinum og frá Ráðhúsinu.
23. Stutt athöfn á Básaskersbryggju kl. 20.50.
24. Essó deild kvenna: ÍBV - Víkingur kl. 20.00.