Fréttir - Eyjafréttir - 16.01.2003, Qupperneq 15
Fimmtudagur ló.janúar 2003
Fréttir
15
kstrarstjóri Landflutninga í Eyjum:
skoðun á Herjólfi er eitthvað að
Þorlákshöfn í ákveðnum veðmm. Það
má ekki einblína of mikið á þessa einu
ferju. Ég er viss um að það em til
ferjur sem gætu hentað okkur og ég
skil eiginlega ekki alveg út af hverju
það er verið að einblína svona mikið á
þessa tilteknu feiju.“
Björgvin segist hafa rætt þetta
nokkuð við skipstjómarmenn á Herj-
ólfi og þá sérstaklega við Láms
skipstjóra.
„Ég held að það sé raunhæft að
koma siglingunni niður í tvo tíma. Þá
eram við að tala um skip sem gengur
20 til 22 mflur og getur siglt við flest
skilyrði. Við megum nefnilega ekki
gleyma því að Heijólfur er hluti af
almannavamakerfinu þannig að það er
mjög mikilvægt að skipið komist
þegar við þurfum á því að halda.“
Hafa Samskipsmenn verið ánægðir
með reksturinn?
, Já, það hafa þeir verið. Þetta er vel
smíðað og sterkt skip. Reyndar er
komið viðhald á suma hluti, eðlilega,
enda er skipið tíu ára gamalt. Við
höfum svolítið verið að fá það í
hausinn, samanber þegar hliðarskrúf-
an bilaði í sumar. Þetta er mjög gott
skip og er mjög gott í rekstri.“
Em Eyjamenn of kröfúharðir gagnvart
Hetjólfi?
„Nei, það finnst mér ekki. Við
eigum rétt á því að vera kröfuharðir.
Þetta er hagsmunamál okkar allra og
það em margar skoðanir og þær eiga
allar rétt á sér. Smá gagnrýni heldur
manni á tánum, þannig að það er bara
gott mál. Það væri fyrst eitthvað að ef
Herjólfur sigldi hér á milli og enginn
hefði skoðun á því.“
HERJÓLFUR
Verður alltaf litla bamið
-FRA því að við tókum við hefur farþegum á ársgrundvelli fjölgað úr 85.000 í yfir 110.000 á síðasta ári. Það er gaman að segja frá því líka
að Herjólfur er „stærsta“ hótel á landinu með yfír 28000 gistingar á ári, segir Björgvin.
Er þetta starf sem þú tekur með heim?
,Já, það var verið að hringja í mig
allan sólahringinn og fólki þótti það
alveg sjálfsagt. Eins þurfti maður að
vera tilbúinn ef eitthvað kom upp á,
veður var slæmt og fleira. Það þurfti
að koma tilkynningum til fjölmiðla ef
eitthvað var og þeir á fréttastofunni
hafa verið mjög hjálplegir að lesa fyrir
okkur tilkynningar. Reksturinn á
svona feiju er vinna allan sólahring-
inn, skipið siglir 360 daga á ári og það
er farið að nota skipið allt öðmvísi en
áður. Frá því að við tókum við hefur
farþegum á ársgmndvelli fjölgað úr
85.000 í yfir 110.000 á síðasta ári. Það
er gaman að segja frá því líka að
Herjólfur er „stærsta“ hótel á landinu
með yftr 28000 gistingar á ári. Þeir
ráku upp stór augu þeir sem vom að
bjóða í þvottinn þegar við vomm að
byrja þegar við lögðum fram magn-
tölumar."
Ertu sáttur við að hætta núna?
„Já, ég er það. Ég er búinn að gera
fullt af góðum hlutum hér og er
ánægður með rekstur Landflutninga í
heild sinni. Hér em mjög góðir
starfsmenn og Samskip er orðið stórt
og sýnilegt fyrirtæki í Eyjum, hjá
fyrirtækinu vinna um fjömtíu starfs-
menn. Auðvitað verður þetta alltaf
litla bamið manns, maður tók þátt í að
koma þessu á koppinn."
Sendi konunni sms
Björgvin bætti við að starfíð hafi verið
mjög lifandi og skemmtilegt og alltaf
hafi verið nóg að gera. „Það var
kominn tími hjá manni að taka næsta
skref sem þeir hjá Samskip hafa nú
boðið mér. Það verður gríðarlegur
skóli að fara út og búa í öðm landi
fyrir fjölskylduna en mér h'st mjög vel
á þetta þó ákvörðunin hafi verið erfið
á sínum tíma.“
Björgvin segir að þegar þeir hringdu
og buðu honum starfið hafi þau hjónin
verið að ganga í gegnum greiðslumat
vegna kaupa á einbýlishúsi á Bröttu-
götu 15. „Við vomm búin að ákveða
að kaupa héma og búa bara hér.
Konan var úti á Kýpur þegar þeir
hringdu í mig og buðu mér starfið. Það
er ekkert sérlega gott gsm samband
þangað út þannig að ég sendi henni
sms skilaboð:, AHt gott að frétta, allir
hressir, var að fá vinnu í Englandi,
heyri í þér.“ Þannig að hún sat þama
úti í sjokki."
Þegar hún svo sneri aftur heim til
íslands höfðu kaupin gengið í gegn og
Björgvin á fullu við að dytta að nýja
húsinu. En hún var í gamla húsinu
okkar á Asaveginum að þrífa og
pakka niður. „Þannig að við töluðumst
eiginlega ekkert við í tvær vikur. Svo
eitt sunnudagskvöld þegar það mesta
var gengið yfir settumst við niður og
ræddum málin. Ég átti að svara fyrir
hádegi daginn eftir þannig að það
þurfti að taka ákvörðun. Hún setti
þetta í hendumar á mér og sagði að ég
yrði að ráða þessu. Ég ákvað eftir tals-
verða umhugsun að láta slag standa og
pmfa þetta, þá komum við bara heim
aftur, það er auðvelt að koma heim
aftur.“
Sölustjóri í öllu Bretlandi
Starfið sem Björgvin bauðst var sölu-
stjórastaða yfir Bretlandi og stökkið
því stórt fyrir rekstrarstjórann í Eyjum.
„Þetta er mikið stökk en nú er bara að
standa sig. Það sem þeir em að sjá í
mér er reynsla mín af flutningi á fiski.
Til Bretlands kemur mikið af fiski og
hann fullunninn þar. Skrifstofan er í
Stallingborough sem er í úthverfi
Grimsby. Þetta er mjög þekkt svæði
fyrir matvælaiðnað og er hreint. Lenti
t.d. ekki í gin og klaufaveikinni. Það
er mikið af íslenskum fyrirtækjum á
svæðinu, bæði SIF og SH sem reyndar
gætu verið sameinuð þegar þetta
kemur á prent.“
Björgvin sagði tólf manns í vinnu
hjá Samskip á skrifstofunni í Grimsby.
„Öll hafnarvinna er unnin í verktaka-
vinnu. Það em fimm í yfirstjóm á
skrifstofunni og ég verð eini Islend-
ingurinn þar.“
Auðveldara að keyra í
Englandi en í Reykjavík
Em þá bara Englendingar í vinnu hjá
Samskip úti?
,Já, sá sem ég er að hluta að taka
við af kom heim og tók við forstjóra-
starfinu hjá Jónar - transport sem
Samskip á einnig. Þá réðu þeir Breta
yfir skrifstofuna en það er þannig að ef
hægt er að koma því við að hafa
íslending úti á skrifstofunum þá er það
gert hjá Samskipum. Við Islendingar
emm bara svo ferkantaðir að sumu
leyti að við viljum bara tala íslensku
til að skilaboðin komist til skila. Við
emm ekkert öðmvísi en aðrar þjóðir
hvað þetta varðar."
Björgvin gerði þriggja ára samning
við fyrirtækið og er hann svo fram-
lengjanlegur, eftir því hvemig honum
og íjölskyldunni líst á.
Björgvin er ekki ókunnugur í Bret-
landi, segist hrifinn af Englandi og
Englendingum. „Ég hef nú oft komið
til Bretlands, sigldi þama í gamla daga
með Gísla Sigmars á Katrínu. Það
hefur verið skemmtilegt að koma til
Bretlands í gegnum tíðina og eitt
skemmtilegasta sumarfrí sem við
hjónin höfum farið í var þegar við
sigldum út með gámaskipi og með í
för var Siggi tollari og Marta kona
hans. Við keyrðum um Bretland í
vikutíma. Það var öðmvísi ferðamáti
en það er alger lúxus að ferðast með
þessum gámaskipum.
Varstu ekki í vandræðum að keyra
„vitlausu" megin á götunni?
„Það er nú svoleiðis að mér finnst
betra að keyra í Bretlandi heldur en í
Reykjavík. Það eina sem mér finnst
vont við breska kerfið er að gírkassinn
í bílunum er eins og hjá okkur þannig
að þegar maður situr hægra megin í
bfinum við stýrið þá er fyrsti gírinn frá
manni og fram, það getur ruglað
mann. Þannig að ég mæli með því að
þegar þú ert að fara að keyra í
Bretlandi í fyrsta skipti, þá fáir þú þér
sjálfskiptan bfl.“
Bjartsýnn á framtíð Eyjanna
Björgvin segist nokkuð bjartsýnn á
framtíð Samskipa í Eyjum.,Jiins er ég
bjartsýnn fyrir hönd Eyjamanna, að
vísu fylgir þróun á veiðum og
kvótamálum byggðarlaginu mikið en
ég sé t.d. ekki að það fækki mikið
meira héma í Eyjum. Menn virðast
halda kvótanum mikið í bænum sem
er brýnt. Eins er eignarhlutur í stærstu
fyrirtækjunum Eyjamanna eins og
nýlegt dæmi í Vinnslustöðinni sýnir,
það er gríðarlega mikilvægt."
Björgvin kom svo aftur inn á
göngin. „Það myndi breytast mikið
mynstrið uppi á landi ef það kæmu
göng héma, þá sérstaklega á Suður-
landi og eins myndi þetta opna
möguleika fyrir Suðausturland en
forflutningar á útflutningsvöm em
dýrir. Við verðum að halda þessari
umræðu gangandi, þróunin er mjög
hröð í gangagerð og svo fer að koma
tími á að endumýja hér lagnir á milli.
Það er dýrt og það væri hægt að nýta
þetta svolítið saman, hvort sem um er
að ræða stokk eða almennileg göng.
Við verðum fyrst almennilega sam-
keppnishæfir þegar við getum keyrt á
milli 24 tíma á sólahring. Svo ekki sé
minnst á ferðamannaþjónustuna og
mótin sem haldin em hér á sumrin,
hvað verða þau stór þegar flutnings-
getan verður ótakmörkuð? Og ekki
síst hvað verða þau mörg í bæjarfélagi
sem gefið hefur sig út fyrir að vera
íþróttabær? Ég er mjög hrifinn af
málflutningi Inga Sigurðssonar bæjar-
stjóra í samgöngumálum. Að mínu
mati er það nú þannig að göng til Eyja
em ekki einkamál Eyjamanna þau em
hagsmunamál fyrir Suðurland allt.“
Erum á pari í flutningunum
Guðfinnur Þór Pálsson heitir sá sem
tekur við af Björgvin. Hann segir að
Guðfinnur Þór sé nýkominn frá námi í
Danmörku. „Hann er markaðshag-
fr æðingur og kemur með opnum huga
til Eyja. Konan hans er þroskaþjálfi
sem er einnig mjög gott fyrir okkur.
Það er líka ánægjulegt að við erum á
pari í þessum flutningum, þau em
einnig með tvö böm þannig að það em
íjórir inn og fjórir út. Hann hefur verið
fljótur að koma sér inn í hlutina
héma.“
Björgvin sagði að lokum að þau
eigi nú eftir að sakna Eyjanna og eigi
eftir að koma hér oft. „Hér eigum við
okkar vini og kunningja og eins hefur
verið mjög ánægjulegt að starfa með
öllu starfsfólki Samskipa. Þá er svo
fallegt héma og gríðarlega gott
mannlíf. Eyjamar munu alltaf eiga
stórt pláss í okkar hjörtum og
minningum. Svo em bömin okkar
bæði Vestmannaeyingar. Ég vil óska
byggðarlaginu alls velfamaðar og ég
veit náttúmlega ekki hvort við eigum
afturkvæmt hingað en það er þó aldrei
að vita. Maður veit aldrei sína ævi fyrr
en öll er.“
svenni @ eyjafrettir. is