Fréttir - Eyjafréttir - 16.01.2003, Side 16
16
Fréttir
Fimmtudagur 16.janúar2003
Litið um öxl og fram á við um áramót
Við áramót er ágætt að líta
yfir farinn veg og meta árið út
frá þeim tækifærum sem
buðust og því sem betur
mætti fara. Fréttir báðu
nokkra bæjarbúa að rifja upp
síðasta ár og hvað þeim
fannst markverðast. Það
kemur ekki á óvart að
atvinnumál eru ofarlega í
huga fólks sem og sam-
göngumál. Þá finnst nokkrum
viðmælendum að bæjarbúar
mættu temja sér jákvæðara
hugarfar og benda á að
Vestmannaeyjar eru ákjósan-
legur kostur og tækifærin allt
um kring.
Varð afi á árinu
Agúst Halldórsson í Olíufélaginu segir
ekki spurningu um hvað var mark-
verðast í hans lífi. „Ég varð afi á
síðasta ári og hefði ekki triiað því hvað
það er mikil upplifun að hljóta þennan
titil. Það er frábær tilfinning og litli
sólargeislinn er sannkallaður gleði-
gjafi.“ ^
Þegar Agúst er spurður út í stöðu
mála í Eyjum þá segir hann ekki neitt
eitt standa upp úr. „Ég er frekar
bjartsýnn í eðlinu og vil frekar velta
upp björtu hliðunum og því sem er
jákvætt en því sem miður fer. Ég tel
bættar samgöngur og tjölgun ferða
með Herjólfi vera skref í rétta átt. Það
þýðir fjölgun ferðamanna og eflingu
ferðamannaiðnaðarins. Tilraunir með
áframeldi á þorski í Klettsvík finnst
mér vera spennandi og ég bind vonir
við að vel muni takast til í þeim
efnum. Það skapar atvinnu og ég vona
að önnur og ný tækifæri bjóðist en ég
lít þannig á að það birti til hjá okkur á
þessu ári,“ sagði Agúst.
Skipti um vinnu
Friðsteinn Vigfússon, vélstjóri, segir
að hann hafi skipt um vinnu á síðasta
ári þannig að það standi helst upp úr
hjá honum. „Ég hef miklar áhyggjur
af því hvað plássum á fiskiskipum
hefur fækkað í Vestmannaeyjum en
fiskveiðar og fiskvinnsla eru undir-
staða alls hér. Ég fagna því að
Eyjamenn eru komnir með meirihluta
í Vinnslustöðinni og menn eru gera
allt sem þeir geta til að halda okkar
hlut í fyrirtækjum í Vestmannaeyjum.
Ég vona að áform um fiskeldi og
aukna atvinnuuppbyggingu gangi
eftir. Þá vona ég að bæjarstjórnin
hætti þessu dægurþrasi og bæjar-
fulltrúar snúi bökum saman og beiti
sér að alefli fyrir aukinni nýsköpun og
alvöru framfaramálum."
Friðsteinn segir jákvæða þróun hafa
orðið varðandi samgöngumál með
aukinni ferðatíðni Herjólfs. „Flugsam-
göngur milli Vestmannaeyja og
Reykjavíkur mættu batna, mér finnst
hafa orðið afturför hjá okkur varðandi
flugið. Flugfélag Islands þyrfti að
koma inn í flugið aftur þar sem þeir
bjóða upp á betri flugvélar. Ég hef
áhyggjur af atvinnuástandinu en vona
að úr rætist og að árið verði okkur
hagstætt," segir Friðsteinn.
Stolt af syninum
Sigurbima Ámadóttir, launadeild
ísfélagsins, segir að hjá henni standi
ferðalag lil Tælands á síðasta ári helst
upp úr. „Það kom á óvart hvað landið
er fallegt og einnig hvað fólkið er
vinsamlegt og virðist sælt og ánægt
þrátt fyrir fátækt. Þá útskrifaðist sonur
minn úr Vélskólanum síðastliðið vor
og ég er auðvitað stolt af honum og
ánægð með það.
Ef ég fer yfir árið hér í Eyjum þá er
Ijörið í kringum bæjarstjórnar-
kosningamar mér minnisstætt. Þá var
þjóðhátíðin sérstæð vegna þess hvað
veðrið var leiðinlegt og ekki síður
fyrir það hversu vel tókst að vinna úr
aðstæðum og bjarga því sem bjargað
var. Ástandið í atvinnumálum var
ekki nógu gott á síðasta ári sérstaklega
ef tekið er tillit til fiskvinnslu.
Atvinnutækifæri hefðu þurft að vera
fleiri og atvinnulífið íjölbreyttara en
ég vona að ný tækifæri skapist á
árinu."
Annasamt ár að baki
Margrét Hjálmarsdóttir, starfsmaður
Rannsóknaseturs, segir síðasta ár hafa
verið sérlega annasamt þar sem hún er
í fullri vinnu og í fjarnámi í rekstrar-
fræði frá Háskólanum á Akureyri.
„Auk þess er ég með heimili þannig
að það hefur verið nóg að snúast en ég
endaði árið með því að taka það rólega
um jólin með fjölskyldunni.
Ef ég lít yfir árið þá voru bæjar-
stjórnarkosningar sem settu auðvitað
sinn svip á árið. Það er slæmt hvað
margir eru á atvinnuleysisskrá en ég
tel að átaksverkefni á vegum fyrir-
tækja og bæjaryfirvalda skipti miklu
máli. Það verður ráðin manneskja á
vegum bæjarins til að aðstoða
starfsmann Svæðisvinnumiðlunar
Friðsteinn
Suðurlands við að kynna fyrirtækjum
möguleika á átaksverkefnum og ég tel
að það skipti miklu máli. Þá er að
koma Fræðslumiðstöð sem ég tel
skipta miklu máli en mér fmnst vanta
bjartsýni í fólk því þó svo að það
gangi ekki allt upp hjá okkur þá
hjálpar að líta björtum augum á
hlutina. Ég hef trú á samfélaginu hér
og er bjartsýn á framtíð Eyjanna en öll
uppbygging tekur ákveðinn tíma,“
segir Margrét.
Dóttirin byrjaði að búa
Unnur Katrín Þórarinsdóttir, þjónustu-
fulltrúi, segir að í hennar lífl standi
ferð til Portúgals upp úr á síðasta ári.
„Þá fannst mér skemmtilegt að eldri
dóttir mín keypti sér sína fyrstu ibúð
og fór að búa með kærastanaum. Ef
ég skoða ástand mála í Eyjum þá eru
atvinnumál ekki í nógu góðum
farvegi. Samgöngumál þarf að endur-
skoða þó svo að fleiri ferðir með
Herjólfi séu til mikilla bóta. Ef farið
er yfir þetta eins og það er núna þá er
það ekki ásættanlegt. Ég er ekki að
segja að við þurfum tvær ferðir alla
daga vikunnar allt árið en mér finnst
að fimmtudaga, föstudaga og sunnu-
daga þurfi tvær ferðir, líka yfir
vetrarmánuðina."
Unnur segir Vestmannaeyinga ekki
nógu jákvæða og umræðuna innan-
bæjar oft niðurdrepandi. „Ég tek sjálf
þátt í þessu spjalli en við þurfum að
vera bjartsýnni og jákvæðari í okkar
garð. Það hefur ýmsa kosti að búa hér
í Eyjum og það er gott að ala upp böm
héma. Báðir mínar dætur eru í
Reykjavík og ég er oft spurð að þvf
hvort ég ætli ekki að flytja til þeirra og
nánast eins og fólk reikni með því að
við fömm. Mér finnst Eyjar vera
ákjósanlegur kostur að búa á og ég
veit að grasið er ekkert grænna hinum
megin. Við eigum að hlúa að því sem
höfum þannig að hver og einn íbúi
njóti sín,“ segir Unnur.
Flutti í nýtt hús
Anna Elísabet Sæmundsdóttir, trygg-
ingafulltrúi, segir að fjölskyldan hafi
flutt í nýtt hús á árinu og frábært
hversu krökkunum lfki vel í hverlinu
en þar er mikið af krökkum.
Unnur Katrín
sömu möguleikar á samgöngum og til
dæmis milli Reykjavíkur og Selfoss.
Mitt fólk býr flest fyrir norðan og mér
finnst auðvitað ókostur hvað það er
langt þangað.
Vestmannaeyjar eru útgerðarsam-
félag og ég vona að hægt verði að
byggja meira á þeirri sérstöðu. Hér er
hellings þekking, fólk býr yfir mikilli
reynslu af fiskvinnslu og öllu í
kringum hana. Fólkið er hörkudug-
legt og svolítið mótað af vertíðar-
stemningu og því skorpufólk. Þetta
sérkenni er meira ríkjandi hér en á
Sauðarkróki en atvinnulífið þar
byggist á sjávarútvegi og landbúnaði.
Fiskeldi hlýtur að vera framtíðin og
vonandi verður hægt að byggja það
upp hér í Eyjum, ekki endilega
frumeldi heldur líka áframeldi. I
framhaldinu gætu opnast frekari
möguleikar á vinnslu afurða á
neytendamarkað," segir Anna
Elísabet.
Göng innan fimm ára
Þorkell Húnbogason, gistihúseigandi,
segir hugmyndir um þorskseiðaeldi
vera það athyglisverðasta sem fram
kom á síðasta ári.
„Þorskseiðaeldi kemur til með að
skapa atvinnu. ef af verður, og störf
fyrir háskólamenntað fólk og þar með
fjölbreyttara atvinnulíf. Hefðbundin
fiskvinnsla í landi er á undanhaldi,
fullkomnari tækni þýðiraukin afköst
en samhliða fækkar störfum. Þar af
leiðandi þarf eitthvað annað að koma
til. Fjölgun ferða með Hetjólfi breytti
ótrúlega miklu fyrir Eyjamenn og
Anna Elísabct
Sigurbirna
„Það var skemmtilegt hvað margir
ættingjar og vinir notuðu tækifærið og
heimsóttu Eyjamar. Þetta var því
gestkvæmt sumar ásamt því hvað það
var sólríkt og gott. Mér finnst mikill
kostur hvað stutt er í allt hér en þar
sem við bjuggum í Danmörku fór
klukkutími í ferðir til og frá leikskóla.
Þttr af leiðandi hefur maður meiri tíma
fyrir bömum þegar vinnutíma lýkur.“
Anna Elísabet segir atvinnumál
vera aðalmálið og það þurfi átak í
þeim málum. „Mér finnst atvinnumál
skipta meim máli en samgöngur þó
svo ákveðin tengsl séu þama á rnilli.
Ég gerði mér grein fyrir þv> ég væri
að flytja á eyju og þar af leiðandi ekki
ferðaþjónustuna. Ég er samt sem áður
óánægður með hvað heyrist lítið um
göng sem samgönguleið. Þau myndu
skapa ótrúlega möguleika í atvinnu-
málum til dæmis mætti setja upp
stórskipahöfn fyrir utan hafnargarða
sem gæti orðið lokahöfn fyrir
Evrópusiglingar.
Ég vil að menn fari að hugsa alvar-
lega um þennan möguleika. Frekar en
nýtt skip vil ég sjá Herjólf lengdan um
15 til 20 metra. Þá er upplagt að setja í
hann tvær nýjar vélar því þá verður
gangurinn betri en með þessu ættu að
sparast tveir milljarðar sem mætti
nota upp í göng. Mér finnst að menn
ættu að stefna að því að þau yrðu klár
innan fimm ára,“ sagði Þorkell.
Brúðkaupið stendur
upp úr
Sigmar Hjartarson, heilbrigðisfulltrúi
og útibússtjóri Rf, segir að af per-
sónulegum málefnum standi brúðkaup
sitt og Dóm upp úr.
„Umræðan um Þróunarfélagið og
fleira eru farin að skaða hagsmuni
Eyjanna og ég held að menn ættu að
koma félaginu í starfhæft horf í stað
þess að brjóta það niður. Mér finnst
allt of mikið um að menn séu að vinna
hver á móti öðrum í sveitar-
stjómarmálum í stað þess að vinna
saman að framgangi málefna Eyjanna
og því að skapa hér blómlegt
samfélag. Samgöngumál löguðust
heilmikið á árinu og menn þurfa að
vinna áfram að því að finna
framtíðarlausn á samgöngumálum
Vestmannaeyja, hvort sem það er nýtt
skip, höfn í Bakkaijöru eða göng. Ég
held að það ráðist talsvert af þessu
hvers konar búseta verður hér í Eyjum
í framtíðinni.
Varðandi atvinnumál þá er það
mjög jákvætt að íjölbreytni er smám
saman að aukast í fiskvinnslu og
sjávarútvegi með tilkomu íslenskra
matvæla, Godthaab í Nöf og
fiskréttaverksmiðjunnar sem vonandi
hefúr framleiðslu áður en langt um
líður. Einnig má nefna liskeldi þar
sem ég tel okkur eiga nokkuð góða
möguleika ef rétt er á haldið, bæði
jrorskeldi og ekki síður nýtingu
jarðvarma til eldis á landi.
Umhverfismál eru nokkuð sem
Sigmar
Vestmannaeyingar þurfa að huga vel
að í náinni framtíð. Til dæmis er
gryijan umdeilda í Eldfelli óðum að
fýllast og það þarf að finna ný úrræði í
tíma. Einnig væri æskilegt að huga að
jarðgerð á lífrænum úrgangi og
framleiða þannig gróðurmold sem er
af skomum skammti á eyjunni okkar.
Veðrið síðasta sumar var mjög gott og
sama má segja um haustið og það sem
af er vetri enda blóm og tré farin að
kræla á sér í görðunum okkar. Ég er
farinn að sakna þess að hafa ekki vetur
í stað þess að það sé endalaust haust
hjá okkur árið um kring,“ segir
Sigmar.