Fréttir - Eyjafréttir - 16.01.2003, Side 20
LKRTEKnK
VEITINGAHÚS
BÁRUSTÍG 11 *sT A
SÍMI 481 3393 \VJV7
IGóður matur. Góð þjónusta.
Kostar minna en þó heldur.
K !■ H ■
Vilhjálmur B » 481-2943 » 897-1178 ergsteii itmim nsson IðAiÚU
Færri stútar
Nýlega voru vinningar í jólaleik Vöruvals og Pepsí dregnir út en alls voru þeir tuttugu og fimm.
Meðal vinninga voru sjónvörp, DVD spilari og hjómtæki . Á myndinni er Ingimar Georgsson,
eigandi Vöruvals ásamt vinningshöfum.
Vikið úr Lögregluskólanum
-vegna meiðsla sem hann hlaut í handbolta
Eins og greint er frá á íþróttasíðu
blaðsins meiddist Eyjamaðurinn
Svavar Vignisson línumaður í
handknattleik illa í æfingaleik á
föstudaginn.
Svavar, sem leikur þetta árið með
FH, spilar ekki meira með í vetur.
Hann braut þrjú handarbaksbein,
fór úr lið á fjórum puttum og reif
liðbönd í handarbaki. „Þetta gerðist
þannig að ég fæ línusendingu og er
að teygja mig eftir henni. Þá kemur
varnarmaður Víkings og ég dett í
gólfið með hendina undir mér og
varnarmaðurinn lendir ofan á mér.“
Svavar hafði nýhafið nám í Lög-
regluskólanum og þó áfall hans
vegna handboltans sé mikið beið
hans enn stærra áfall þegar hann
mætti í skólann á mánudaginn. Þar
var honum tilkynnt að honum væri
vikið úr skólanum þar sem hann
gæti ekki sinnt náminu vegna
meiðslanna og meðal annars tekið
fram að hann gæti ekki tekið þátt í
verklega þættinum eða vélritað.
Svavar var að vonum ósáttur við
þessa niðurstöðu og hefur verið að
leita réttar síns í málinu en skóla-
stjóri Lögregluskólans stendur fas-
tur á fyrri ákvörðun sinni. Hafa
lögfræðingar verið að skoða málið
fyrir Svavar og síðdegis í gær var
hann svo boðaður á fund með
dómsmálaráðherra. Ekki var komin
niðurstaða í málið þegar Fréttir fóru
í prentun.
Sýslumaðurinn í Vestmanna-
eyjum hefur tekið saman
málaskrá fyrir Vestmannaeyjar
árið 2002 en í hana fara öll mál
sem gerð er skýrsla um, þannig
að þar eru ekki aðeins skráðar
kærur heldur ýmislegt annað.
Skráð mál voru 1121, sem skiptust
í umferðarlagabrot, alls 600, hegn-
ingarlagabrot 216, sérrefsilagabrot
150 og það sem flokka má undir
ýmislegt eru alls 155 mál.
Umferðarlagabrot voru að venju
langflest en skýrslur vegna van-
rækslu á skoðun ökutækja voru
244. Síðan koma brot eins og þegar
öryggisbelti er ekki notað samtals
75 tilfelli, stöðubrot voru 67 og
hraðakstursbrot voru 64. Brot á
stöðvunarskyldu eða ekið gegn
rauðu Ijósi voru 40.
Undir flokkinn ýmis umferðar-
lagabrot falla 77 mál. Á árinu voru
12 kærðir fyrir ölvun við akstur og
4 fyrir að nota farsíma án þess að
nota handfrjálsan búnað.
Af hegningarlagabrotum kærðu
flestir skemmdir á eignum, eða alls
77, síðan koma 72 þjófnaðarkærur.
Kærðar voru 30 líkamsárásir, 18
innbrot en mun minna var af öðrum
brotum t.d. tóku 4 upp á því að taka
bifreið ófrjálsri hendi, 3 hótana-
kærur árust lögreglu, 3 fölsunar-
brot, 2 kynferðisbrot o.s.frv.
Af sérrefsilagabrotum bar mest á
skattalagamálum 67, þá komu til
kasta lögreglu 30 fíkniefnamál, 28
áfengislagabrot en minna af öðrum
málaflokkum, t.d. 2 tollalagabrot, 4
brot á lögreglusamþykkt, 2 brot á
lögum um lögskráningu o.s.frv.
Undir flokkinn ýmislegt falla alls
kyns tilkynningar, t.d. óhöpp, slys
og ýmiss konar skýrslur, t.d. um
barnaverndarmálefni. Umferðar-
óhöpp eru skráð 45, 21 bruni var
tilkynntur, ýmis slys 23, 3 sjóslys
en ýmsar tilkynningar og skýrslur
58 mál o.s.frv.
Haft var samband við Karl Gauta
Hjaltason, sýslumann og hann
inntur eftir því hvað mætti lesa úr
þessum tölum. Hann sagði að
helsta breytingin milli ára væri
fækkun í tveimur málaflokkum, þ.e.
líkamsárásum og ölvunarakstrinum
og taldi hann það góð tíðindi.
Ölvunarakstursmálum fækkaði úr
21 máli á árinu 2001 niður í 12 á
síðasta ári og eru það góð tíðindi,
enda fylgir því athæfi stórhætta
fyrir aðra vegfarendur. Hraðakst-
ursmálum fjölgar um meira en
helming og er ástæða þess að mati
Karls Gauta aukin áhersla lögreglu
á að ná niður hraða í bænum á
síðasta ári með reglulegum umferð-
arátökum.
íþróttamaður ársins í beinni
Annaö kvöld verður íþróttamaður ársins 2002 í Vestmannaeyjum
valinn. Athöfnin fer fram í Þórsheimilinu og hefst klukkan 20.00.
Einnig verður tilkynnt um íþróttamenn ársins hjá hverju aðildarfélagi ÍBV
fyrir sig. Fjölsýn verður að sjálfsögðu á staðnum og mun sýna beint frá
athöfninni. Mun útsending hefjast rétt fyrir klukkan átta.
E n n 17 n i
16. s • mmm n. - 22. i« ín.
Always dömubindi
Alldays innlegg
Tampax compak
Fairy uppþvottalögur 500
Hesheys rally 3 stk
Hersheys cr cookies bar 3 stk
Pampers bleiur
r
Verá Nú
289,-
289,-
399,
199,-
249,
249,
998,
zzmmrwm
Aður
374,
374,
489,
299,