Fréttir - Eyjafréttir - 31.07.2003, Blaðsíða 17
Fréttir / Fimmtudagur 31. júlí 2003
17
Mótið til fyrirmyndar að mati Páls Ketílssonar, sem stjórnaði útsendingum Sýnar:
Engu líkt að standa á 15. teig í góðu veðri
-sagði hann og telur hann völlinn ekki eiga sinn líka hér á landi
Páll Ketilsson, ritstjóri Víkurfrétta og
fréttamaður Sýnar, liefur fylgst með
golfíþróttinni nokkuð náið undanfarin
ár og á íslandsmótinu sá hann um
útsendingar Sýnar. Fyrstu tvo dagana
voru sýndir klukkulíma þættir en
seinni tvo voru beinar útsendingar og
voru sýndar myndir í um 10 klukku-
stundir frá rnótinu. Páll sagði í samtali
við Fréttir að Islandsmótið hefði verið
mjög vel heppnað í ár. „Það var mjög
vel að þessu staðið hjá Eyjamönnum,
öll undirbúningsvinna vár til fyrir-
myndar svo ekki sé talað um völlinn.
Veðrið hjálpar líka gríðarlega í svona
mótahaldi, ef veðrið er gott þá verður
allt svo miklu auðveldara. Fyrir mig
var t.d. mun auðveldara að standa fyrir
beinum útsendingum frá Eyjum í sól
og blíðu. Veðrið setti einfaldlega
punktinn yfir i-ið á annars mjög
glæsilegu móti,“ sagði Páll.
Hann var mjög ánægður með
samstarfið við GV, það hafi verið til
fyrirmyndar. „Þegar útsendingar eru
svona viðamiklar er ávallt mikið
umstang. Samvinna okkar og Eyja-
manna var mjög góð og brugðist við
öllum okkar óskum fyrirvaralaust.
Þetta var auðvitað mikið mál, tíu
myndavélar og tuttugu manns þannig
að allt varð að ganga upp. Svona
útsendingar hafa líka mikið gildi fyrir
GV og ég man eftir því að eftir
íslandsmótið í Hafnarfirði eitt árið var
gríðarleg aðsókn á golfvöllinn hjá
þeim. Völlurinn í Eyjum er gríðarlega
skemmtilegur og eins og hann er í dag
á hann sér enga líka hér á landi. Auk
þess hef ég spilað á um 100 völlum
erlendis og segi það að það er engu
líkt að standa á 15. teig í góðu veðri.“
Var það eitthvað sem kom þér á óvart
í mótinu?
„Ef það var eitthvað þá var það helst
spilamennska okkar bestu kylfmga,
hún var ekki nógu góð. Völlurinn var
auðvitað mjög erfiður en það var ekki
eins mikil spenna á síðustu holunum
og undanfarin ár en á móti kemur að
aðstæður hafa líklega aldrei verið betri
en í ár.“
PÁLL, bar hitann og þungann af
útsendingum Sýnar sem voru
mjög viðamiklar. Um leið eru þær
góð auglýsing fyrir völlinn og GV.
SKORKORTIN yfirfarin. Ragnhildur, Nína Björk og Ólöf María yfirfara skorkortin í þjóðhátíðartjaldinu hjá
Herði Óskars. Á eftir var boðið upp á lunda.
FRIÐRIK Már fékk kúluna sem
Birgir Leifur notaði síðasta daginn.
Birgir Leifur gerði betur og áritaði
kúluna sem er þar með orðin
safngripur.
MEISTARAR heilsast. Ragnhildur fékk heillaóskir frá Jakobínu Guð-
laugsdóttur GV sem hefur oftar en einu sinni hampað íslands-
meistaratitlinum.
BIRGIR Leifur getur státað af fallegasta kylfuberanum, en í því hlutverki
var Elísabet unnusta hans.
Stefndi á
topp 10
Örlygur Helgi
Grímsson úr GV
Örlygur Helgi Grímsson er einn
ungra kylfinga sem hafa verið
að koma upp hjá Golfklúbbi
Vestmannaeyja undanfarin ár.
Náði hann sínum besta árangri í
Islandsmótinu um hclgina, 7. til
8. sæti. Hann sagði í samtali við
Fréttir að stcfnan hafi verið sett
á topp tíu. „Eg átti kannski ekki
beint von á því að enda á topp
tíu en stefnan var sett þangað og
ég vonaðist auðvitað eftir því,“
sagði Ölli.
Nú varstu jafn Júlíusi Hallgríms-
syni sem hefur lengi verið sá besti
í Eyjum. Ertu að ógna veldi
lians? „Nei ég mundi ekki segja
það, Júlli á mikið inni ennþá.
Mér fannst hann vera að spila
undir gctu um helgina. Hann
hefur verið að breyta sveiflunni
og ég held einfaldlega að hann sé
ekki búinn að ná fullkomlegu
valdi á henni."
Svo ertu starfsmaður vallarins og
varst íþvíað undirbúa liaiin fyrir
mótið, hafðirðu ekki forskot á
aðra keppendtir þar sem þú vissir
um gildrurnar?, Jú, eitthvað
forskot hafði ég. Annars var
vellinum breytt svo mikið að við
heimamennirnir vorum
eiginlega ekki á heimavelli,
þetta var alveg nýtt fyrir okkur.
Flatirnar voru líka mjög hraðar
enda liafa þær aldrci áður verið
svona snöggslegnar. En
auðvitað vissi ég hvernig væri
best að haga spilamennskunni."
Hvernig var svo hljóðið í
kylfingum eftir inótið? „Það voru
auðvitað allir á cinu máli með
völlinn, hann var einstakur og
veðrið var meiriháttar. Þeir sem
voru að spila vel voru mjög
sáttir en hinum sem gekk verr
voru ekki eins sáttir með
breytinguna en svona á þetta að
vera í þessum mótum, krefjandi
og skemmtilegt"
Hvað sagði
meistarinn
um völlinn
í Eyjum?
Birgir Leifur Haíþórsson:
„Undanfarin ár hef ég leikið
víða í heiminum og völlurinn
hérna í Eyjum er síst lakari en
þeir sem maður hefur verið að
spila á. Þar er um að ræða
atvinnumannamót þannig að
þar er úr meiri peningum að
moða cn á áhugamannamótum.
Vallarstarfsmenn, með Alla í
fararbroddi, hafa greinilega lagt
mikið á sig til að gera völlinn að
því sem hann er í dag.
Breytingarnar voru líka góðar,
að þrengja brautirnar gerði
meiri kriifur til kylfinga og
röffið var erfitt þannig að
rnaður varð að vera bcinn. En
aðstæður voru glæsilegar og
mótið eftirminnilegt fyrir vikið.“