Fréttir - Eyjafréttir - 18.11.2004, Side 1
Áætlun Herjólfs
Brottfarartímar
Haust 1.9. -30.11. Frá Vestmannaeyjum Frá Þorlákshöfn
Þri., mið., lau. 8.15 12.00
Mán., fim., fös., sun. 8.15/16.00 12.00/19.30
Bókanir fyrir kojur, klefá og bfla þarf að staðfesta meó
fullnaðargreiðslu fyrir kl.12.00 daginn fýrir brottfor.
Nánari upplýsingar er að finna á vef Heijólfs,
www.heijolfur.is og á sfðu 415 f Textavarpi RÚV, auk
þess sem upplýsingar eru veittar í síma 481 2800.
HERJÓLFUR
31. árg. / 46. tbl. / Vestmannaeyjum 18. nóvember 2004 / Verð kr. 190 / Sími 481-1300 / Fax 481-1293 / www.eyjafrettir.is
Oddvitar Sjólfstæðisflokks og
Vestmannaeyja mynda nýjan
meirihluta.
I BLS. 6 og 2
Hitaveita Suðurnesja:
Ætlar að
bora eftir
heitu vatni
Hitaveita Suðurnesja vinnur að
því að undirbúa tilraunaboranir á
Heimaey. í fyrra fékk Hitaveitan
jarðfræðinga frá Orkustofnun til
að rannsaka jarðlög á Heimaey
og unnu þeir jarðfræðikort í
framhaldi af því.
Ivar Atlason, tæknifræðingur hjá
Hitaveitu Suðumesja í Vest-
mannaeyjum, segir að jarðfræð-
ingamir hjá Orkustofnun hafi
eftir rannsóknir mælt með fjórum
stöðum þar sem heppilegt væri
að bora. „Sá kostur sem þeir
mæltu helst með er á
Haugasvæðinu og þar stendur til
að bora niður á 1500 til 2700
metra en endanleg dýpt liggur
ekki fyrir. Forstjóri Hitaveit-
unnar er búinn að gefa það út að
það verði farið í að bora á næsta
ári eða í síðasta lagi 2006,“ sagði
Ivar.
„Verkið gengur út á það að
ftnna brotið berg og fá úr því
skorið hvort við fáum það heitan
vökva að hann sé virkjunarhæfur.
Því neðar sem borað er aukast
líkumar á að finna vökva með
meiri hita og þrýstingi, það er
lykilatriði upp á hugsanlega raf-
magnsframleiðslu. Mér og
Friðriki Friðrikssyni, fyrrverandi
veitustjóra, hefur verið falið það
verkefni að nota veturinn til að
undirbúa þetta verkefni," sagði
Ivar.
Engar uppsagnir
Kennsla er nú með eðlilegum
hætti í grunnskólunum eftir átök
síðustu vikna.
Samkvæmt upplýsingum eru
allir kennarar mættir til vinnu þó
þungt sé í þeim hljóðið að sögn
Hjálmfríðar Sveinsdóttur,
skólastjóra Bamaskólans. Víða
um land hafa kennarar sagt upp
störfum en engar uppsagnir hafa
komið inn á borð skólastjóra í
Eyjum.
Halldóra Magnúsdóttir, skóla-
stjóri Hamarskóla, segir kennara
vera að hugsa sig um og gefi
ekkert út um hvað þeir hyggist
gera. Hún segir kvíða í kennur-
um. Beðið er eftir niðurstöðu úr
samningaviðræðum en gerðar-
dómur verður skipaður á laugar-
dag, takist ekki samningar fyrir
þann tíma.
VETUR konungur hefur bankað upp á og er nær alhvít jörð í Eyjum.
Mynd: Sæþór
Forstöðumaður Nýsköpunarstofu ósáttur við Byggðastofnun:
Umsóknir frá Vestmannaeyjum
ekki teknar fyrir þrátt fyrir loforð
Sigurjón Haraldsson forstöðumaður
Nýsköpunarstofu segir að tölur sem
birtust í Fréttum í síðustu viku um
skiptingu styrkja milli landshluta
hjá Byggðastofnun komi sér ekki á
óvart.
„Við byrjuðum fljótlega eftir að
ég hóf hér störf að senda inn
umsóknir fyrir nokkur verkefni. Það
er þannig að Byggðastofnun hefur
um 150 milljóna króna pott til að
útdeila úr á hverju ári. Við sóttum
um tii að sinna undirbúningsvinnu
vegna nokkurra verkefna. Þau
snerust um að fá ráðgjafa og sér-
fræðinga til að útfæra hugmyndir og
kanna grundvöll þeirra.“
Sigurjón segir að síðan hafi þeir
beðið eftir svari en ekkert gerðist.
„Loks sögðu þeir okkur að um-
sóknin væri ekki nógu greinargóð.
Þá sendum við ítarlega greinargerð
og síðan höfum við fengið loforð
nánast í hverjum mánuði að málið
verði tekið fyrir á næsta fundi
stjórnar. Þetta hefur verið að velkj-
ast innanhúss hjá Byggðastofnun
síðan í maí. Reyndar fékk ég
munnlegt loforð eftir að fréttin
birtist hjá ykkur, um að þetta verði
tekið fyrir á fundi stjómar nú í lok
nóvember.“
Sigurjón segir að umsóknir
miðist við tvö ár og beðið er um 15
milljónir hvort ár. Hann veltir því
upp hvort stjórn Byggðastofnunar
taki ákvarðanir um styrki út frá því
hvar neyðin sé mest en ekki sé litið
til hvar góðu hugmyndirnar séu.
„Það er allt of mikið verið að setja
peninga í skammtímalausnir. Við
getum tekið sem dæmi Vestfjarða-
aðstoðina á sínum tíma. Þá voru
settar 300 milljónir í að bjarga
sjávarútvegsfyrirtækjum á Vest-
fjörðum árið 1997. Hvar eru þessi
fyrirtæki í dag? Jú, þau eru öll hætt
rekstri."
Sigurjón bætti því við að honum
fyndist oft verið að henda peningum
í eitthvað til að friðþægja til
skamms tíma. „Það er kannski
skynsamlegra fyrir Byggðastofnun
að setja pening í þau sveitarfélög
þar sem einhverjar góðar hug-
myndir eru í gangi.“
Friður og
framfarir
Það var góð stemming á söfnum
bæjarins á laugardaginn þar
sem margt var í boði.
| BLS. 16 og 17
Fjölmenni á
safnanótt
TM-Öryggi
fyrir fjölskylduna
www.tmhf.is
Sameinaðu allar tryggingar á
einfaldan og hagkvæman hátt.
ÖRYGGI
Bílaverkstæðið
Bragginn s.f.
Flötum 20
Viðgerðir og smurstöð
Sími 481 3235 _ .
Rettingar og sprautun
Sími 481 1535