Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 18.11.2004, Síða 6

Fréttir - Eyjafréttir - 18.11.2004, Síða 6
6 Fréttir / Fimmtudagur 18. nóvember2004 Grunaður um ölvun: Stakk af eftir eftir útafkeyrslu Undir morgun sl. laugardags var lög- reglu tilkynnt um að bifreið væri utanvega við gatnamót Ashamars og Hamarsvegar. Þama hafði ökumaður bifreiðarinnar greinilega misst stjóm á bifreiðinni með þeim afleiðingum að hún lenti utan vega og á umferðar- merki sem er á gatnamótunum. Þrátt fyrir eftirgrennslan lögreglu fannst ökumaðurinn ekki. Hann gaf sig hins vegar fram við lögreglu um hádegið sama dag. Ökumaðurinn er gmnaður um ölvun við akstur og er málið í rannsókn. Ökumaðurinn slapp ómeiddur frá þessu atviki. 20.000 krónur hurfu úr veskinu -sem stolið var í Krónunni en kom fram í ísjakanum Síðastliðinn fimmtudag, þann 11. nóv. var tilkynnt um að kvenveski hafi verið stolið í versluninni Krónunni. Veskið kom síðan fram í versluninni ísjakanum um klukkustund síðar. Stolið hafði verið um 20.000 krónum sem vom í veskinu. Ekki er vitað hver þama var að verki en allir sem geta gefið einhverjar upplýsingar um hver stal veskinu em beðnir um að hafa samband við lögreglu. Bæjarstjórn: Sjálfstæðismenn og Vestmannaeyjalisti í eina sæng: Friður og frcimfarir eru kjörorðin Eftir miklar sviptingar í bæjarstjóm Vestmannaeyja síðustu daga er orðinn til nýr meirihluti Vestmannaeyjalista undir forystu Lúðvíks Bergvinnssonar og Sjálfstæðisflokks sem Amar Sigurmundsson leiðir. Er þetta þriðji meirihlutinn á kjörtímabilinu, fyrst vom það D og B, næst kom B og V og nú er D og V. Eftir upphlaup í bæjarstjóm íjórða nóvember, vegna viljayfirlýsingar um kaup á Fiskiðjuhúsinu undir menn- ingarhús sem Andrés Sigmundsson hafði undirritað, varð óvíst um framhald meirihluta V-lista og B-lista. Andrés, bæjarfulltrúi B-lista, sendi frá sér yfírlýsingu í síðustu viku þar sem hann segir að hann hafi ekki skuld- bundið neinn og því sé ekkert annað að gera í stöðunni en að halda áfram samstarfi með V-lista. Búist var við að það myndi draga til tíðinda á fundi bæjarráðs fimmtu- daginn 11. nóvember. Þá var fyrsta mál á dagskrá tillaga frá bæjar- stjómarfundinum um að vísa Andrési frá sem formanni bæjarráðs og nefndar um byggingu Menningarhúss. Andrés neitaði að yfirgefa fundar- salinn á meðan mál hans voru rædd. Eftir rúmlega tveggja klukkustunda fund tókst ekki að komast að sam- komulagi og var ákveðið að fresta bæjarráðsfundinum um sólarhring. Aftur var mætt kl. sjö á föstudags- kvöldið. Fundað var í flestum herbergjum á efstu hæð Ráðhússins fyrir fundinn og báru menn saman bækur sínar. Þá var óvíst í hvað stefndi en samkvæmt heimildum reyndu fulltrúar V-lista lengi vel fram eftir föstudeginum að koma á sáttum við Andrés. Það gekk ekki eftir og strax og fundur hófst var ljóst í hvað stefndi enda samþykktu Lúðvík Bergvinsson og Amar Sigurmundsson tillögu bæjarstjómar um að víkja Andrési frá. Andrés bókaði á fundinum að þetta væri honum pólitískt áfall sem kæmi algjörlega í bakið á honum. Fundi var frestað eftir tæplega hálftíma og um leið tókust Lúðvík og Amar í hendur um nýtt meirihlutasamstarf. Síðar þetta sama kvöld, eða um 22.00 var skrifað undir samstarfs- samning þar sem búið var að skipta niður í helstu embætti og móta stefnu. Andrés sagði á laugardaginn í yfír- lýsingu að Lúðvík hafi undirbúið aðförina vandlega og reynst ódrengur undir lok samstarfsins. Hinir tveir bæjarfulltrúar V-listans, Guðrún Erlingsdóttir og Stefán Jónasson sendu frá sér yfirlýsingu síðar þennan dag og hörmuðu ósannar og ósmekklegar ásakanir Andrésar í garð Lúðvíks. A þriðjudaginn bar svo til tíðinda þegar Framsóknarfélagið, sem hingað til hefur staðið að baki Andrésar, sendi ffá sér yfirlýsingu þar sem hann er hvattur til að segja af sér. Því virðist Andrés vera algjörlega einangraður innan síns flokks sem og bæjarstjómar. A bæjarstjórnarfundinum á þriðju- dag lagði Andrés aftur fram bókun, mun ítarlegri en áður þar sem segir meðal annars að ákvörðun Lúðvíks um samstarfsslitin særi allt vinstra- og félagshyggjufólk í Vestmannaeyjum enda sé hann að leiða harðsvímð hægriöfl aftur til valda. Litlar umræður urðu um málið, Lúðvík og Amar Sigurmundsson stigu í pontu og töluðu um sína sýn á samstariíð en svömðu Andrési litlu. Lúðvík sagðist þó taka fulla ábyrgð á því að hafa slitið samstarfmu. Það hefði ekki verið veijandi að ætla sér að taka pólitíska ábyrgð á gjörðum Andrésar. Fríður - Framfarir A bæjarstjómarfundinum á þriðju- daginn var eftirfarandi samstarfs- samningur samþykktur: V-listi (Vestmannaeyjalistinn) og D- listi ( Sjálfstæðisflokksins ) em sammála um að taka upp meiri- hlutasamstarf í bæjarstjóm Vest- mannaeyja til loka kjörtímabils núverandi bæjarstjómar árið 2006. Standi samstarfið undir þeim væntingum sem til þess eru gerðar getur skapast gmndvöllur til áframhaldandi samstarfs eftir næstu bæjarstjórnarkosningar fá listarnir til þess umboð. Gmndvöllur þessa samstarfs byggir á brýnni þörf fyrir betri samstöðu Eyjamanna í sókn og vöm fýrir Vest- mannaeyjar og með hagsmuni íbúanna að leiðarljósi. Þá eru listarnir sammála um eftirtalin atriði: Bæjarstjóri verði áfram Bergur Elías Agústsson. Skipurit Vestmannaeyja- bæjar verður óbreytt til loka kjör- tímabilsins 2006, að frátöldum breytingum vegna fjárhagslegrar endurskipulagningar og samstaða næst um milli listanna. Forseti bæjarstjómar verði af V-lista og formaður bæjarráðs verði af D- lista. Bæjarráð verði skipað tveimur fulltrúum af D-lista og einum af V- lista.Varamenn í bæjarráði verði tveir af V-lista og einn af D-lista. Formaður fjölskylduráðs verði af V-lista, Formaður menningar- og tómstundaráðs verði af D-lista til júní 2005 og V-lista til loka kjörtímabils vorið 2006. Formaður skólamálaráðs verði af D-lista. Formaður umhverfis- og skipulagsráðs verði af V-lista. Formaður hafnarstjómar verði af V- lista. Varaformenn ráðanna fjögurra, bæjarráðs og hafnarstjómar verði af þeim lista sem ekki skipar formann. Jafnmargir fulltrúar verða frá hvomm lista um sig í sjö manna ráðum. Fulltrúi Vestmannaeyjabæjar í stjóm Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf. verði af V-lista. En fulltrúi í stjóm Hitaveitu Suðumesja verði af D-lista, Gæta skal fyllsta jafnræðis milli listanna við ákvarðanir um fulltrúa bæjarins í nefndum og ráðum, sem Vestmannaeyjabær á aðild að og meirihlutinn tilnefnir í. V-listi og D-listi eru sammála um að leita allra leiða til spamaðar og aðhaldssemi í rekstri bæjarfélagsins. Staðið verði við samþykktir bæjar- stjómar um byggingu Menningarhúss í Vestmannaeyjum og byggingu nýs leikskóla á Sólareitnum við Asaveg og aðrar verklegar framkvæmdar sem teknar hafa verið ákvarðanir um. Einnig eru önnur verkefni í gangi sem áfram verður unnið að. D-listi og V-listi em sammála um að leggja mjög ríka áherslu á bættar samgöngur við Vestmannaeyjar. Það er gríðarlegt hagsmunamál fyrir þróun byggðar í Eyjum að hægt verði að taka ákvörðun um framtíðarstefnu í samgöngum milli lands og Eyja haustið 2005. Fulltrúar listanna munu á næstu vikum vinna frekar að útfærslu samstarfsyfirlýsingar, auk verkefna- áætlunar sem tekur mið af stöðu og möguleikum bæjarfélagsins til næstu framtíðar. Vestmannaeyjar, 12. nóvember 2004, Lúðvík Bergvinsson Amar Sigumiundsson Guðrún Erlingsdóttir Elliði Vignisson Elsa Valgeirssdóttir Stefán Jónasson Kosið í nefndir og ráð á vegum Vestmannaeyjabæjar: Guðrún áfram forseti en Arnar formaður bæjarráðs Á bæjarstjóm á þriðjudaginn var kosið í ráð og stjómir á vegum Vest- mannaeyjabæjar. Fyrst var kosning forseta bæjar- stjómar og skrifara til júní 2005. Guðrún Erlingsdóttir fékk sjö atkvæði í kosningu til forseta bæjarstjómar og Elliði Vignisson fékk sjö atkvæði í kosningu til varaforseta bæjarstjómar. Bæjarráð: Aðalmenn em Amar Sigurmundsson, formaður, Lúðvík Bergvinsson, varaformaður og Elsa Valgeirsdóttir. Til vara em Stefán Jónasson, Elliði Vignisson og Guðrún Erlingsdóttir. Andrés Sigmundsson óskaði eftir tilnefningu til setu í bæjarráði. Fjölskylduráð: Guðrún Erlingsdóttir formaður, G. Ásta Halldórsdóttir varaformaður, Kristín Valtýsdóttir, Auður Einars- dóttir, Helga Björk Ólafsdóttir, Ágústa Kjartansdóttir og Andrés Sigmunds- son. Menningar- og tómstundaráð: Elliði Vignisson formaður, Bjöm Elíasson varaformaður, Þorsteinn Viktorsson, Páll Scheving Ingvarsson, íris Róbertsdóttir, Egill Amgrímsson og Andrés Sigmundsson. Skólamálaráð: Elsa Valgeirsdóttir formaður, Jóhann Guðmundsson varaformaður, Berg- þóra Þórhallsdóttir, Gunnlaugur Grettisson, Steinunn Jónatansdóttir, Margo E. Renner og Andrés Sig- mundsson. Umhverfis- og skipulagsráð: Stefán Jónasson formaður, G. Ásta Halldórsdóttir varaformaður, Sigríður Bjamadóttir, Friðbjöm Ólafur Val- týsson. Stefán Lúðvíksson, Drífa Kristjánsdóttir og Andrés Sigmunds- son. Hafnarstjórn: Hörður Þórðarsson formaður, Stefán B. Friðriksson varaformaður, Viðar Elíasson, Valmundur Valmundsson og Skæringur Georgsson. Stjórn Nýsköpunarstofu: Eygló Harðardóttir og Páll Marvin Jónsson. Til vara Guðrún Erlingsdóttir og Stefán B. Friðriksson. Lögregla: Ökumenn fari varlega Af umferðarmálum er það helst að frétta að í vikunni sem leið vom tíu bifreiðaeigendur boðaðir með bif- reiðar sína til skoðunar. Skrán- ingarmerki vom tekin af einni bitfeið vegna ástands hennar og ein kæra liggur fyrir vegna vanrækslu á að vátryggja bifreið. Nú þegar kólna fer í veðri og færð er ekki eins og best verður á kosið er rétt að minna ökumenn á að fara varlega í umferðinni. Rétt er að benda ökumönnum á að búa bifreiðar sínar undir vetrarakstur og skafa vel rúður bifreiða sinna áður en haldið er af stað. Þá er rétt að minna foreldra á að benda bömum sínum á að vera ekki að leik úti á götum, sérstakiega þegar hálka er, því það eykur slysahættu enda eiga ökumenn erfiðara um vik að stöðva bifreiðar sínar þegar hálka er. MARGIR kennarar nýttu sér áfaliahjálp sem veitt var á þriðjudaginn.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.