Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 18.11.2004, Qupperneq 8

Fréttir - Eyjafréttir - 18.11.2004, Qupperneq 8
8 Fréttir / Fiommtudagur 18. nóvember2004 BÆJARSTJÓRI, yfirmenn skólamála, kennarar og foreldrar hittust og fóru yfir málin á fundi á mánudagskvöldið. Bergur Elías Ágústsson bæjarstjóri: Kennarar eru ekki öfundsverðir af sínum launum -Það deila fáir um það, en það sama gildir um marga aðra launþega. Kennaraverkfallið hafði staðið í sjö vikur þegar Alþingi setti lög á deiluna. Kennarar vom mjög ósáttir við þá ákvörðun og samtaða var um að þeir mættu ekki til vinnu á mánudag. Forráðamenn foreldrafélaga Hamars- skóla og Bamaskóla óskuðu eítir fundi þar sem bæjarstjóri, skólastjórar, yftrmenn skólamála og foreldrar Magnús Matthíasson, formaður Foreldrafélags Bamaskólans, sagði að þegar bömin vom send heim á mánudagsmorgun hafí foreldmm verið nóg boðið. „Fundurinn var boðaður með mjög skömmum fyrirvara og á hann komu u.þ.b. þrjátíu foreldrar frá foreldra- félögum beggja skóla. Meginástæðan íyrir fundinum var sú að við vildum fá svör við því hvort framhald yrði á ólöglegum aðgerðum kennara. Jafn- framt vildum við fá svör við því hvort yfirmenn myndu grípa inn í þessi réttindabrot á bömum. Við mátum það hittust og fóm yfir málin. Fundurinn fór fram í Bamaskólanum seinni part mánudags og þar var tilkynnt að kennarar ætluðu að mæta til vinnu á þriðjudag. Þegar Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri var spurður út í fundinn sagði hann foreldra hafa óskað eftir því að fundur yrði haldinn þar sem þannig að allir þessir kennarar gætu ekki verið veikir og vildum vita hvort gripið yrði til aðgerða af hálfu skóla- stjómenda. Hvort skólastjómendur ætluðu að senda lækni til að athuga með kennara ef þeir boðuðu áfram veikindi og við fengum staðfest að það yrði gert,“ sagði Magnús þegar hann var spurður út í fundinn. „Við vildum vita hvort framhald yrði á þessum aðgerðum af hálfu kennara og Svava Bogadóttir, for- maður kennarafélagsins, sagði að það gæti orðið. Skólastjórar sögðu að allt benti til þess að skólastarf yrði með börn hefðu verið send heim á mánu- dag. „Foreldrar lýstu yfir áhyggjum sínum og niðurstaðan varð sú að kennarar tilkynntu að þeir ætluðu að mæta daginn eftir.“ Þegar Bergur var spurður út í deiluna milli kennara og sveitarfélaga sagði hann sorglegt hvemig hún þróaðist. „Kennarar eru ekki öfundsverðir af eðlilegum hætti á þriðjudag. Reyndar kom fram að það yrði frí eftir hádegi en trúnaðarmaður hefur rétt til að kalla saman fund. Við vildum ekki blanda okkur inn í kjarabaráttu kennara en um leið og kennarar frömdu lögbrot var foreldrum misboðið. Að sjálf- sögðu telur foreldrafélagið að kennarar eigi rétt á að leita sér betri kjara með löglegum leiðum. Ég tók eftir því að fulltrúum kennara varð tíðrætt um það hvað þeim liði illa og hvað þetta væri erfitt. Ég benti þeim á að þeir hafi valið að fara í verkfall og að bömum og for- sínum launum, það deila fáir um það, en þess skal getið það sama gildir um marga aðra launþega. Eins og staðan er í dag hafa sveitarfélögin ekki fjár- magn til að ganga að kröfum kennara. Það væri óábyrgt að semja um eitt- hvað sem þau geta ekki staðið við nema með veigamiklum niðurskurði á annarri stoðþjónustu bæjarfélagsins, eldrum liði vissulega ekkert sérstaklega vel heldur. Ég sem foreldri hef ekkert val, bamið mitt er eitt heima meðan ég stunda mína vinnu. Ég er búinn að heyra í mörgum foreldrum, það hafa margir haft samband við mig og margir em mjög reiðir yfir þessum aðgerðum kennara og eitthvað er um að foreldrar sendu böm sín ekki í skólann á þriðjudag í mótmælaskyni við kennara. For- eldrafélög geta ekki hvatt foreldra til að fremja lögbrot, það er jú skóla- skylda í landinu," sagði Magnús. samanber félagsþjónustu eða æsku- lýðs og íþróttamálum. Upphaflega virðist vandinn hafa verið sá að þegar til verkfalls kom vom samninganefndir ekki sammála um hverjar kröfur hvor annars vom. Þegar til verkfalls kemur hefst fjöl- miðlastríð og ásakanir ganga á báða bóga. Á öllum þessum tíma fundu menn engan samningsflöt. Spumingin er hvort menn hafi unnið sína vinnu nægilega vel frá því í janúar fram að verkfalli. Þegar menn ganga til samninga þá eiga þeir að vita að hveiju þeir ganga. Nú er búið að setja lög á kennara og þá kemur upp afskaplega sorgleg staða. Skiljanlega er kennarastéttin óánægð með lögin en nú er beitt ákveðnum aðferðum sem bitna á bömunum. Þetta fmnst mér slæmt, sjómenn fengu á sig lög í tíu ár, eflaust hundóánægðir, en þeir stóðu sína plikt og mættu í vinnu. Það er afskaplega mikilvægt að kennarar mæti til vinnu eins og þeim ber skylda til og samningaviðræður haldi áfram," sagði Bergur. Magnús Matthíasson, formaður Foreldrafélags Barnaskólans: Börnum og foreldmm líður heldur ekki vel Halla Andersen kennari: Kennarar eru bæði bugaðir og mjög reiðir Halla Andersen, kennari, segist vel skilja reiði foreldra, en minnir á að kennarar eigi í kjarabaráttu við sveitarfélögin. Kennarar séu bugaðir og mjög reiðir þar sem ekkert hafi miðað í kjaradeilu þeirra og sjálfsagt hafi aðgerðir síðustu daga skilað meiru en menn sáu fyrir. „Kjarabarátta er réttur fólks í lýð- ræðisþjóðfélagi. Við unnum faglega að okkar kröfugerð. Það var gerð ítarleg rannsókn á starfsaðstöðu og kjömm kennara og kennarar beðnir um að forgangsraða því sem þeim fannst skipta mestu máli í næstu samningum. Það var unnið úr þessu og þannig varð kröfugerð kennara tU,“ segir Halla þegar hún er spurð út í kennaradeiluna og aðgerðir síðustu daga. „Kröfugerðin var lögð fram í mars og viðsemjendur okkar skipuðu launanefnd sem kom með gagntilboð. Við svömðum því í maí og höfðum slegið af okkar kröfum en þeir komu alltaf með sama tilboðið til okkar. Síðan líður sumarið og haustið og ekkert gerist, aðilar tala að vísu saman en annar í vestur en hinn í austur. Könnun var gerð á því hvað við vildum gera og yfir 90 % kennara vildu fara í verkfall til að þrýsta á um samninga. Verkfall skellur á og enn er sama tilboð í gangi. Sveitarfélögin reikna allt út frá fyrirfram ákveðnum kostnaðarramma sem ekki má fara út fyrir. Verkfallið stendur í sjö vikur og þá aflýst í eina viku þegar sáttasemjari kemur með miðlunartillögu þó svo að búið væri að hafna því sem í henni fólst. I henni var að vísu komið til móts við kröfu kennara um kennslu- skyldulækkun og 130 þúsund króna eingreiðslu, sem að gefnu tilefni eru ekki verkfallsbætur. í síðustu kjara- samningum fengu skólastjórar heimild til að greiða kennurum sér- staklega fyrir ákveðin verkefni og hæfhi. Samkvæmt miðlunartillögunni átti að deila þessum greiðslum jafnt niður á alla kennara þannig að margir lækkuðu í launum. Kennarar greiddu atkvæði um miðlunartillöguna og við vitum hvemig fór, 93% kennara felldu hana,“ segir Halla en það er ljóst að mikil sárindi og reiði er í hugum kennara eftir langt verkfall. „Ég fór af stað í kjarabaráttu en hef það núna á tilfinningunni að sveitar- félögin séu að nota okkur kennara til að ná í peninga sem vantar frá ríki til sveitarfélaga. Deilan er sem sagt á milli sveitarfélaga og ríkis og kenn- arar eru vopnið sem notað er í þeirri deilu. Kennarasambandið varaði við því að sveitarfélögin gætu ekki staðið undir skuldbindingum vegna yfirtöku skólanna. Þegar kennarar tala við sveitarstjómamenn þá em þeir sam- mála því að það þurfi að laga kjör kennara. Það vantar ekki. En þeir, sem kjömir fúlltrúar okkar, eiga að sjá til þess að samið verði," segir Halla og víkur enn að kröíúgerðinni. „Aðalálierslan í kröfum okkar snerist um laun, vinnutímaskilgreiningu, og viðbótarlífeyrisspamað. Við fómm af stað með það að laun þrítugs kennara yrðu 250 þúsund árið 2008. Þá er miðað við 100% starf, fjögurra ára starfsreynslu og 3ja ára háskóla- menntun. Við emm búin að lækka þessa kröfu niður í 230 þúsund. Við fömm fram á 26 stunda kennslu- skyldu á viku. Það sem virðist vera aðalbitbeinið er launaliðurinn. Ekki vegna þess að það séu óréttlátar launakröfur, heldur vegna þess að hann virðist sprengja þennan fyrirfram ákveðna kostnaðarramma sveitarfélaganna. Lögin sem sett vom á laugardaginn, banna verkfall og kveða á um að Hæstiréttur skipi óháða einstaklinga í gerðardóm. Við viljum að laun okkar verði miðuð við starfsstéttir með svipaða menntun og okkar stétt, þ.e. þriggja til tjögurra ára háskólamenntun. Þar er af ýmsum stéttum að taka. Við reiknuðum með að í gerðardómi yrði fulltrúi frá kennurum, sveitarfélögum og einn ó- háður, en samkvæmt lögunum skipar Hæstiréttur í dóminn. Mestu von- brigðin em þó þau að búið er að ákvarða niðurstöðu gerðardóms. Því samkvæmt lögunum skulu laun á- kvörðuð út frá almennum vinnu- markaði, væntanlega ASI samning- um. Áherslan er því ekki á að bæta kjör okkar heldur að halda svo- kölluðum stöðugleika í ijármálum landsins. Þetta þýðir að búið er að ákveða niðurstöður gerðardómsins. Okkur svíður þetta og finnst troðið á okkur. Kennarastarfið er mjög mikil- vægt starf. En það virðist vera mjög mikils metið í orði en ekki á borði,“ sagði Halla að endingu.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.