Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 18.11.2004, Page 9

Fréttir - Eyjafréttir - 18.11.2004, Page 9
f- Fréttir / Fimmtudagur 18. nóvember 2004 9 Andrés Sigmundsson neitar því að hafa brotið trúnað: Saddir stjómendur eru ekki til þess fallnir að breyta miklu -segir hcinn um nýjan meirihluta Sjálfstæðisflokks og Vestmannaeyjcdistans ANDRES: Ég vil benda bæjarbúum á að tíu mínútum eftir að bæjarráðsfundinum var slitið á föstudaginn var komið nafn á meirihlutann og búið að skipa í nefndir. Trúi því nú hver sem vill hvort þetta var ekki hönnuð atburðarás? Með þessu er Lúðvík Bergvinsson að rústa öllu samstarfi vinstri- og félagshyggjufólks í Vestmannaeyjum sem hafði tekist með miklum ágætum. Lúðvík er að leiða Sjálfstæðisfiokkinn til valda, en það var vegna lagvarandi setu hans, stöðnunar og spillingar sem leiddi til þess að við mynduðum meirihlutastarf V-lista og Framsóknar. Andrés Sigmundsson, bæjar- fulltrúi framsóknar og frá- farandi formaður bæjarráðs, hefur ekki siglt lygnan sjó í pólitíkinni eins og berlega hefur komið fram í fréttum síðustu daga. Hann er nú kominn í sitt þriðja hlutverk í bæjarstjórninni þó ekki séu enn liðin þrjú ár frá síðustu bæjarstjórnarkosningum. Fyrstu sporin steig hann með Sjálf- stæðisflokknum en eftir um eitt ár slitnaði upp úr því sambandi og við tók dans með Vestmannaeyja- listanum. Það verður ekki sagt annað um þennan seinni meirihluta Andrésar en að þar hafi verið stígið fast tíl jarðar í dansinum og ýmsu komið í fram- kvæmd. En eitt spor steig Andrés sem aðilar f bæjarstjóminni vom ekki ánægðir með þegar hann skrifaði undir viljayfirlýsingu um kaup á Fisk- iðjuhúsinu undir menningarhús en þar er hann formaður. Sjálfur lítur Andrés ekki svo á að þama hafi hann farið yfir strikið sem bæjarfulltrúi eða formaður bæjarráðs því yfirlýsingin hafi á engan hátt verið bindandi fyrir bæinn og segir hann lögfræðiálit styðja þá skoðun hans. En niðurstaðan er sú að nýtt par er komið út á dansgólfið þar sem Sjálfstæðisflokkur og Vest- mannaeyjalistí hafa sett kinn við kinn. Andrés fullyrðir að þama hafi tumamir tveir, Amar Sigurmundsson Sjálfstæðisflokki og Lúðvík Bergvins- son hannað atburðarás tíl að koma sér út í kuldann. En sjálfur er hann ekki hættur, hann lítur á sig sem þjón þess fólks sem kaus hann í síðustu kosn- ingum. AHtaf vlnstri maður „Það mætti halda að ég fari alltaf með ófriði en ég held að það sé frekar að hann beinist að mér,“ segir Andrés hlæjandi þar sem við sitjum í stofunni heima hjá honum. „Ég hef alltaf verið vinstra megin í pólitíkinni," segir Andrés þegar hann er spurður að því hvar hann staðsetji sig í hinu pólitíska litrofi. „Ég var formaður Æskulýðs- fylkingarinnar í Vestmannaeyjum sem var í samræmi við skoðanir mínar. Ég var skráður í Samtök frjálslyndra og vinstri manna sem átti þátt í að fella Viðreisnarstjómina 1971. Ég fór í framboð fyrir Samtökin en aðal- mennimir vora Hannibal Valdi- marsson og Magnús Torfi Olafsson. Eftír það gekk ég til liðs við Framsókn og hef verið þar síðan.“ Bæjarpólitíkin 1 Vestamannaeyjum „Ég sat í bæjarstjóm fyrir Framsókn árið 1990 en þá komst Sjálfstæðis- flokkurinn til valda í Vestmannaeyjum og hefur því verið í stjóm bæjar- félagsins í um 12 ár. í mínum huga er Sjálfstæðisflokkurinn veikburða flokkur og honum hafa fylgt marg- vísleg óþægileg mál eins og algengt er um flokka sem sitja lengi að völdum. Ef til vill er það einkenni lýðræðis að framfarir gerast oft svo skelfing hægt en þó er það svo að einstaklingar geta oft ýtt á framfarir. Ég er bara þannig gerður að ég hef viljað keyra hratt og framkvæma en það virðist ekki vera þeim stóra að skapi,“ segir Andrés og vísar þama til Sjálfstæðisflokks og Vestmannaeyjalistans sem fengu þrjá bæjarfulltrúa hvor í síðustu kosning- um en Andrés sat í oddasætinu. Á síðasta kjörtímabili starfaði Andrés með V-listanum, var formaður og sat í stjóm Bæjarveitna fyrir hans hönd. Það slitnaði upp úr samstarfmu þegar V-listinn lagðist gegn sölu Bæjarveitna til Hitaveitu Suðumesja. „Ég studdi söluna með sjálfstæðis- mönnum en fyrir það galt ég, þurfti að víkja sem formaður en eftír á að hyggja var það kórrétt ákvörðun að skella sér í söluna. Ég held að flestír ef ekki allir séu sammála um það núna. Síðar fór ég að vinna að framboði Framsóknarflokks og óháðra og var þar í efsta sæti.“ Andrés segir að undir lok kjör- tímabilsins 1986 til 1990 hafi verið orðið kreíjandi að heíja undirbúning að skipulagsbreytingum. „Við höfð- um verið að stokka upp ýmislegt hjá bænum en það var ýmislegt eftír. Það lá til dæmis fyrir að fara í breytíngar á rekstri bæjarins. Sjálfstæðisflokkurinn hafði ekki dug til að taka á rekstrinum á þeim tólf áram sem hann sat í meirihluta til ársins 2002 og fyrir það líðum við í dag.“ Andrés segir að vandinn hafi vaxið með hveiju árinu sem leið. I kosn- ingunum 2002 mat hann það svo eftír viðræður við forystu flokksins að sjálfstæðismenn væra þá reiðubúnir til að fara í endurskipulagningu hjá bænum og því hafi hann verið til í slaginn og gengið til liðs við þá. „Þegar á reyndi vora þeir hins vegar ekki tilbúnir til nokkurra breytinga og það var ástæðan fyrir því að það slitnaði upp úr samstarfmu enda þótt brotnað hafi á samgöngumálum. Þá varð til nýr meirihluti sem er einn sá besti sem setið hefur í bæjarstjóm Vestmannaeyja um áratuga skeið,“ segir Andrés og á þar við samstarf Framsóknar og V-lista. Enginn trúnaðarbrestur „Það var strax ráðist í skipulags- breytingar í Ráðhúsinu og haldið áfram annars staðar í kerfinu. Því starfi er ekki lokið en allt miðaðist þetta við að gera kerfið straumlínulagaðra þannig að það þjóni íbúunum sem best. Þetta er sú pólitík sem ég stend fyrir. Ef við ímyndum okkur línu þar sem grasrótín er fyrir ofan þá eram við bæjarfulltrúar fyrir neðan til að þjónusta fólkið. Skilvirkt stjómkerfi er forsenda þess að við getum sinnt okkar hlutverki og eins þess að fólkið nái að hafa áhrif á það sem gerist innan veggja Ráðhússins. Fómar- kostnaðurinn við nauðsynlegar skipu- lagsbreytingar er því miður oft að segja upp fólki og þá verður maður að vera undir það búinn að maður sé látinn íjúka. Það á við bæjarfulltrúa eins og aðra.“ Þegar talið berst að atburðum síðustu daga neitar Andrés því að samstarfið hafi ekki gengið vel. Hann hafi sjálfur ekki vitað um neinn trúnaðarbrest milli hans og V-listans. „Þetta var hönnuð atburðarás frá upphafi. Þegar Guðjón Hjörleifsson vitnaði í mig á bæjarstjómarfundinum örlagaríka hafði hann eftir mér að strákamir í Fiskiðjunni væra of dýrir,“ segir Andrés. „Þetta sannar tvennt. í fyrsta lagi að málið hafði verið til umræðu í verkefnanefndinni og átti því ekki að koma á óvart. í öðra lagi það sem ég hef haldið fram að verðið hafði alls ekki verið ákveðið. Þetta vissu menn og því var óheiðarlegt að halda því fram að ég hefði verið reiðubúinn til að kaupa Fiskiðjuhúsin fyrir langt yfir 100 milljónir. Énda er það alveg út í hött. Á fundinum kom líka fram í máli Lúðvíks að viljayfirlýsingin sem ég undirritaði væri alls óskuldbindandi fyrir bæjarfélagið. Því var það gegn hans betri vitund að nota þetta síðar sem trúnaðarbrest. Það var einnig gegn betri vitund að leggja að mér að undirrita mistakayfirlýsinguna, því engin mistök höfðu átt sér stað.“ Var beittur þrýstingi „Ef við víkjum síðan aftur að bæjar- stjómarfundinum var mér bent á að hefði Sjálfstæðisflokkurinn verið einn að verki hefði krafan verið sú að ég viki alfarið úr bæjarráði og verk- efnanefndinni en ekki aðeins sem formaður. Á löngum fundi fyrir bæjarráðsfund á fimmtudaginn reyndi Lúðvík aftur að beita mig þrýstingi til að játa mistök og segja af mér formennsku í verkefnanefndinni. Ég benti honum á lögfræðiálitið en sagðist verða reiðubúinn til að ræða breytingar í öllum nefndum síðar. Ég teldi hins vegar að afsögn núna væri ekkert nema viðurkenning á sök sem ég hef ekki framið. Allt þetta sannar mér að atburðarásin hafi verið plönuð. Þegar ákveðið var að fresta bæjar- ráðsfundi frá fimmtudegi til föstudag var það til þess eins að þeim tækist að púsla saman því sem upp á vantaði. Það er svo Lúðvík Bergvinsson sem slítur meirihlutasamstarfmu á föstu- daginn og talar þá um trúnaðarbrest. Ég vil benda bæjarbúum á að tíu mínútum eftir að bæjarráðsfundinum var slitíð á föstudaginn var komið nafn á meirihlutann og búið að skipa í nefndir. Trúi því nú hver sem vill hvort þetta var ekki hönnuð at- burðarás?" segir Andrés og heldur áffam. „Með þessu er Lúðvík Bergvinsson að rústa öllu samstarfi vinstri- og félagshyggjufólks í Vestmannaeyjum sem hafði tekist með miklum ágætum. Lúðvík er að leiða Sjálfstæðisflokkinn tíl valda, en það var vegna langvarandi setu hans, stöðnunar og spillingar sem leiddi til þess að við mynduðum meirihlutastarf V-lista og Framsóknar. Samfara félagslegum áherslum höfum við verið að stokka upp valda- og stjómarkerfið og leggja grann að niðurgreiðslu á langvarandi skuldum bæjarins. Nú munu sjálfstæðismenn fá tvo menn í bæjarráð í stað eins áður og tel ég að það muni spegla valdahlutföllin í nýrri stjóm Eyjanna. Það er því spuming hvort höfuð- stöðvar V-listans færist ekki líka upp í Ásgarð," segir Andrés og brosir. Hvað með framtíðina? „Ég vona að þær framfarir sem við lögðum grann að haldi áfram Ég er hins vegar hræddur um að vorið kólni. I Vestmannaeyjum era tiltölulega fáir sterkir einstaklingar en allur al- menningur á undir högg að sækja. Saddir stjómendur era ekki til þess fallnir að breyta miklu,“ sagði Andrés að lokum. omar@eyjafrettir.is IÞ

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.