Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 18.11.2004, Page 16

Fréttir - Eyjafréttir - 18.11.2004, Page 16
16 Fréttir / Fimmtudagur 18. nóvember 2004 Fjölmenni á nótt safnanna ▲ Andrés Sigmundsson sagði ► sögur úr gosinu og á milli rifjaði Sæþór Vídó upp Topp tíu gosáranna. Þarna voru gestir milli 60 og 70 ▲ M Það mættu milli 60 og 70 manns að hlýða á Amar Sigurmundsson fyrir utan Landlyst. Þar stóð fólkið í kulda og trekk á meðan Arnar sagði sögu þess sem fyrir augu bar, Landlystar, Skansins, hafnargarðanna, Sjó- veitutanksins, lýsingu Heimakletts og fleira. Nótt safnanna á laugardaginn heppnaðist mjög vel og þátttaka var góð. Dagskráin hófst klukkan tvö með upplestri rithöfunda í Bókasafninu og eftir það tók við hver dagskrárliðurinn af öðrum og lokatónninn var sleginn í Vélasalnum þar sem ljúfir djasstónar yljuðu gestum fram eftir nóttu. Það var ekki annað að heyra en að fólki líkaði þetta framtak vel. Nótt safnanna, er haldin að frum- kvæði Kristínar Jóhannsdóttur ferða- mála- og markaðsfulltrúa, sem þama var að færa þýska hugmynd yfir á Vestmannaeyjar. Þó aðstæðumar séu ekki þær sömu þá eiga Vestmanna- eyjar sér ekki síður sögu en borgir í Þýskalandi. Og söfnin eru til staðar, Byggðasafnið, Náttúmgripasafnið, Skanssvæðið og Júlíukróin sem er einstök heimild um tíma sem var. I síðustu viku var Norræna bóka- safnsvikan og bar því vel í veiði fyrir Bókasafnið að tengjast Safnanóttinni og þar hófst dagskráin með upplestri , Kristínar Steinsdóttur, Áma Johnsen og Ulfars Þormóðssonar. Ami las upp úr væntanlegri bók sinni og Úlfar upp úr bók sinni sem er nýkomin út. Vel var mætt og góður rómur gerður að lestri þeirra félaga og kitlaði Ámi oft hláturtaugar viðstaddra. Seinna um daginn barst leikurinn út á Skans þar sem séra Þorvaldur Víðis- son var með helgistund í Stafkirkj- unni. Þar var líka vel mætt og eins hlýddu milli 60 og 70 manns á Amar Sigurmundsson fyrir utan Landlyst. Þar stóð fólkið í kulda og trekk á meðan Amar sagði sögu þess sem fyrir augu bar, Landlystar, Skansins, hafnargarðanna, Sjóveitutanksins, lýsingu Heimakletts og fleira. Eftir kvöldmat var boðið upp á sögur og tónlist frá gosinu 1973 á Byggðasafninu. Andrés Sigmundsson sagði sögur úr gosinu og á milli rifjaði Sæþór Vídó upp Topp tíu gosáranna. Þarna vom gestir milli 60 og 70 og tókst báðum vel upp, Andrési í upplestrinum sem var á léttari nótunum og Sæþóri í tónlistinni. Mest var aðsóknin í Júlíukrónna þar sem Sigurgeir Jónsson fór með sagnaþætti af Bjamhéðni Elíassyni fyrrum skipstjóra og útgerðarmanni. Júlíukróin, sem er kennd við Júlíu VE sem Emil Andersen stýrði og gerði út, er einstök heimild um útgerðarsögu Vestmannaeyja sem verður að varð- veita. Hún er enn í eigu fjölskyldunnar og hefur Jóel, sonur Malla á Júlíu eins og Emil var venjulega kallaður, séð um hana undanfarin ár. Það var vel til fundið hjá Sigurgeir að rifja upp kynni sín af Bjamhéðni á þessum stað því þeir Malli vom samtímamenn. Þama vom mættir vel yfir hundrað manns og skemmtu sér hið besta enda fór sagnaþulurinn Sigurgeir í Gvendarhúsi á kostum. Það var fullt út úr dymm á fyrirlestri og myndasýningu Ingvars Sigurðssonar, forstöðumanns Náttúmstofu Suðurlands, í Náttúragripasafninu þar sem hann sagði frá dvöl sinni á Suðurskautslandinu. Athyglisverð frásögn af heimsálfu sem ekki er í alfaraleið. Lokahnykkur Safnanætur var svo í Gamla Áhaldahúsinu, Vélasalnum, þar sem opnuð var sýning Ljós- myndasafns Vestmannaeyja á ein- stæðum ljósmyndum Kjartans Guð- mundssonar af Kötlugosinu 1918. Þetta em myndir sem aldrei hafa áður verið sýndar og sýna vel þá miklu krafta sem Katla býr yfir. Er athyglisvert a§ sjá þessar myndir núna þegar búast má við Kötlugosi á hverri stundu. -f

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.