Fréttir - Eyjafréttir - 18.11.2004, Síða 17
Fréttir / Fimmtudagur 18. nóvember 2004
17
Þama var líka mætt Jazztríó Stolza
& co sem flutti blandað jassefni, bæði
frá gamla swingtímanum og frá
bebop tímabilinu. Hljómsveitina
skipa Erik Qvick trommur, Olafur
Stolzenwald kontrabassa, og Andrés
Þór Gunnlaugsson gítar.
Þeir jössuðu fram á nótt og þar með
lauk velheppnaðri Safnanótt og full
ástæða til að taka ofan fyrir Kristínu
og öðrum sem að henni komu. Það er
jú alltaf svo ánægjulegt þegar einhver
nennir að bijóta upp hversdaginn fyrir
okkur hin.
„Eg kynntist þessu í Berlín og
Frankfurt þar sem allur sá fjöldi safna
sem þar eru var opinn langt fram á
nótt,“ segir Kristín um þá hugmynd
sína að yfirfæra þýskar safnanætur
yfír á Vestmannaeyjar.
„Þar var boðið upp á dagskrá sem
gekk frá einu safni til annars enda
ekki hægt að vera með sér uppákomu
á hverjum stað.
Það var svo eftir
Menningamótt í
Reykjavík í
sumar að ég
nefndi þetta í
spjalli. Eftir að
hafa búið við
þýskt skrifræði í
mörg ár reiknaði
ég ekki með að
Safnanótt í Vest-
mannaeyjum gæti
orðið að vemleika
fyrr en einhvem
tíma næsta haust.
En hér em hlutimir gerðir strax og
tveimur mánuðum seinna er fyrsta
Safnanóttin orðin að vemleika.“
Kristín segir að í fyrstu hafl hún
reiknað með að tónlistin yrði
fyrirferðarmikil en í ljós hafi komið
að hér er mikið af fólki sem hefur frá
ýmsu að segja og segi skemmtilega
frá. „Við renndum blint í sjóinn með
aðsókn en okkur tókst að draga fólk
upp frá sjónvarpinu og aðsóknin var
meiri en ég þorði að vona. Allir sem
lögðu okkur lið vom til í slaginn og úr
varð skemmtun sem kostaði lítið sem
ekki neitt. Það er fullur áhugi á að
gera þetta afitur að ári og ég bið alla þá
sem eiga eitthvað í pokahorninu að
hafa samband," sagði Kristín að
lokum.
Það var fullt út úr dyrum á ►
fyrirlestri og myndasýningu
Ingvars Sigurðssonar í
Náttúrugripasafninu
A í Gamla Áhalda-
húsinu, var sýning
Ljósmyndasafns
Vestmannaeyja á
Ijósmyndum
Kjartans Guð-
mundssonar af
Kötlugosinu 1918.
M Jazztríó Stolza &
co jassaði fram á
nótt og lauk
velheppnaðri
Safnanótt.
^ Mest var aðsóknin í Júlíukrónni þar sem Sigurgeir Jónsson fór með sagnaþætti af Bjarnhéðni Elíassyni A
fyrrum skipstjóra og útgerðarmanni.
Frœðslu- og símenntunarmiðstöð
Vestmannaeyja
Þetta er námskeiðið sem
margir hafa beðið eftir!
T130010904 - Ýmis hagnýt tölvukennsla fyrir námsmenn,
skrifstofufólk og framhaldsbyrjendur
Ritgerðaruppsetning, skýrslugerð, prentun, upprifjun frá eldri
námskeiðum ofl. Hagnýtt einstaklings- og hópmiðað námskeið
fyrir skrifstofufólk, vœntanlega námsmenn og námsmenn. Á
námskeiðinu verða kynntir notkunarmöguleikar Word
ritvinnsluforritsinsí ritgerðarsmíðum, skýrslum o.fl. Farið verðurí
ýmsa notkunarmöguleika tölvunnar og ýmissa forrita við nám
og starf s.s. ýmsar uppsetningarí töflureikni, áprentun á umslög
og límmiða, tengiprentun ofl. Umrœðuvefur verður notaður
meðal nemenda á meðan á námskeiði stendur þar sem
nemendur geta fengið leiðbeiningu og rcett saman.
Staösetning:
Rannsókna- og frceðasetur Vestmannaeyja 3ju hœð.
Tími: Kennt verður í samtals 12 kennslustundir auk
tölvusamskipta meðal nemenda og kennara á meðan á
námskeiði stendur, Fyrsti tlmi verður fimmtudaginn 25.
nóvember kl. 20 Aðrir tímar ákveðnir í samráði við nemendur.
Áhugasömum er bent á að láta skrá sig nú þegar.
Verö: 16.900
Annað á vegum Visku:
Endurbygging austurbœjar ?
- opinn kynningarfundur fyrir almenning
Kynningarfundur á verkefninu „Endurbyggingu austurbcejar"
verður sunnudaginn 21. nóvember 2004 kl. 16:00 í Rannsókna-
og frœðasetrinu Strandvegi 50 3ju hceð. Kynnt verður
hugmynd verkefnisins, staða þess og framtíðarsýn. Allir er láta
sig minningu horfins austurbcejar á Heimaey varða eru
sérstaklega hvattir til að mceta. Á fundinum verða afhent bréf
til íbúa þessa svceðis og farið yfir íbúaskrá til staðfestingar.
Fundarstjórar Gunnhildur Hrólfsdóttir rithöfundur og Bergþóra
Þórhallsdóttir forstöðumaður Visku,
Kaffiveitingar
Bókarkynning
tUpplesturog kynning á bókinni "Ránið" eftir
Gunnhildi Hrólfsdótfur, en Ránið er þriðja
sjálfstceða sagan um Kötlu. Katla er komin
aftur til Vestmannaeyja þar sem hún cetlar
að dvelja hjá vinkonu sinni yfir þjóðhátíð.
Brekkusöngur, brenna og flugeldar, þcer
vilja ekki missa af neinu. Margt er þó öðruvísi
en cetlað er og gegn vilja sínum fœrist Katla
pftur til ársins 1627 þegar Tyrkir komu til landsins og rcendu
íslendingum í hundraðatali. Fjölskyldum var sundrað, fólk
smánað og flutt til Alsír þar sem það var selt í ánauð.
Nútímaunglingurinn Katla sogast inn í atburðarás sem er
cesilegri en nokkur tölvuleikur.
Augnlæknir.
Gunnar Sveinbjörnsson augnlæknir verður með móttöku á
Heilbrigðisstofnuninni dagana 22. - 26. nóvember.
Tímabókanir verða föstudaginn 19. nóvember kl. 9 -14 í
síma 481-1588 og mánudaginn 22. nóvember kl 9 -14 í síma
481-1955.
Væntanlegir sérfræðingar á Heilbrigðisstofnunina
Vestmannaeyjum
23 - 28. nóvember Þorvaldur Magnússon nýrnasérfræðingur..
04. -12. desember Gunnar Guðmundsson lungnasérfræðingur
Nánari upplýsingar og tímabókanir eru gefnar í móttöku
Heilbrigðistofnunarinna, sími 4811955.
Heilbrigðisstofnunin
Vestmannaeyjum
eyjafrettir.is - Fréttir milli frétta