Fréttir - Eyjafréttir - 18.11.2004, Síða 18
18
Fréttir / Fimmtudagur 18. nóvember 2004
Landa-
KIHK.IA
Fimmtudagur 18. nóvember
Kl. 10.00. Mömmumorgunn í
Safnaðarheimilinu. Spjall og góð
samvera á morgungöngunni með
bamavagninn.
Kl. 14.30. Helgistund á Sjúkra-
húsinu, dagstofu 2. hæð. Heim-
sóknargestir velkomnir líka.
Kl. 15.50. Kirkjuprakkarar, kirkju-
starf 6-8 ára krakka sem fara í leiki
og eiga líka bænastund.
Kl. 17.00. TTT- kirkjustarf 9-12
ára krakka.
Kl. 20.00. Æfing hjá Kór Landa-
kirkju.
Laugardagur 20. nóvember
Kl. 12.30. Æfing hjá Litlum læri-
sveinum, eldri hópnum, í
Safnaðarheimilinu.
Sunnudagur 21. nóvember
Kl. 11.00. Bamaguðsþjónusta með
leik, sögum og lofgjörð.
Kl. 14.00. Messa á síðasta
sunnudegi kirkjuársins. „Manns-
sonurinn kemur.“
Altarisganga. Kaffisopi á eftir. Sr.
Kristján Bjömsson.
Kl. 20.30. Fundur hjá Æskulýðs-
félagi Landakirkju-KFUM&K.
Mánudagur 22. nóvember
Kl. 17.30. Kirkjustarf fatlaðra,
eldri hópur.
Kl. 20.00. Vinnufundur hjá Kven-
félagi Landakirkju.
Þriðjudagur 23. nóvember
Kl. l'7.00. Æftng hjá Litlum læri-
sveinum, yngri hóp.
Kl. 18.00. Æfing hjá Litlum læri-
sveinum, eldri hóp.
Kl. 20.00. Hópastarf, 12 spora
andlegt ferðalag í kristinni mi.
Miðvikudagur 24. nóvember
Kl. 20.00. Tensing unglingastarf í
KFUM&K húsinu við Vest-
mannabraut. Æskulýðsfélag
Landakirkju-KFUM&K.
ITvítasunnu-
KIIÍK.IAN
Fimmtudagur 18. nóvember
Kl. 20:30 Biblíufræðsla. Stenst
Biblían í nútímanum?
Föstudagur 19. nóvember
Kl. 20:30 Unglingakvöld, fyrir
alla unglinga.
Laugardagur 20. nóvember
Kl. 20:30 Bæna- og lofgjörðar-
stund með brauðsbrotningu.
Sunnudagur 21. nóvember
Kl. 15:00 SAMKOMA og Bama-
starf.
Mikill söngur, blessun og fyrir-
bænir. Lifandi og kröftugt Guðs
orð. Bamastarf meðan samkoman
er.
Kaffisopi og gott samfélag eftir
samkomu.
„Andi minn gleðst í Guði frelsara
mínum.” Lúk. 1:47.
Allir hjartanlega velkomnir.
Bænastundir hvern virkan dag
milli kl. sjö og átta á morgnana.
Aðventkirkjan
Laugardagur 20. nóvember
Kl. 10.30 Biblíurannsókn.
Á leiðinni á Old Trafford
Gísli Valtýsson, framkvæmdastjóri Eyjasýnar óskar hér að ofan Jóhannesi Sigurðssyni til hamingju með það að hafa verið dreginn út í
áskriftaleik Frétta. Jóhannes er á leiðinni á Old Trafford þar sem hann fær tækifæri til að fylgjast með leik Manchester United gegn
Hermanni Hreiðarssyni og félögum hans í Charlton Athletic. Jóhannes er reyndar Liverpool aðdáandi en hefur lengi stefnt á að fara á leik
í enska boltanum en aldrei farið. Það verður því ekki amalegt fyrir Jóhannes að sjá Hermann taka Ronaldo í bakaríið.
Athyglisverður fyrirlestur um lesblindu:
Lesblindir oftast
mjög skapandi fólk
-listrænir og hafa góða tilfinningu
fyrir þrívídd
HALLI kann þá list að skemmta fólki og koma því á framfæri sem hann
vill segja.
Kominn heim
Fyrirlestur um lesblindu verður í
Safnaðarheimilinu næsta
laugardag klukkan 12.00.
Fyrirlesturinn verður tvískiptur og
fjallað verður um Davis
aðferðafræði.
Koibeinn Sigurjónsson hjá Les-
blind.com heldur fyrirlesturinn og
varð hann fyrir svörum. Kolbeinn
segir að bakgrunnur Davis
aðferðanna verði kynntur og farið
verði yfir hvað sé Davis leiðrétting
og Davis námstækni fyrir
grunnskóla.
„Við erum að kynna hvað er í boði
fyrir lesblinda en Davis leiðrétting
er hugsað sem úrræði fyrir þann
hóp. Við erum ekki að rétta tæki
eins og litaglærur eða þvílíkt
heldur kennum tæknisem
auðveldar lesblindum leiðina til
náms. Davis námstækni hins vegar
er hugsuð fyrir grunnskóla-
kennara og er tækni sem kennari
notar á hóp harna, heilan bekk.
Það geta öll börn nýtt sér þessa
tækni, sérstaklega þau sem eiga við
lesblindu að stríða,“ sagði
Kolbcinn.
Fyrirlesturinn er sérstaklega
hugsaður fyrir foreldra og
kennara og eftir fundinn verður
boðið upp á greiningarviðtöl.
Þegar Kolbeinn er spurður út í
Davis leiðréttingu segir hann að
námskeiðið taki viku þar sem
leiðbeinandi fer í gegn um ferlið
með nemanda. „Hjá lesblindum
einstak-lingi eru mörg ljón í
veginum, sem trufla hann við nám.
Við temjum ljónin. Við aðstoðum
ekki við námsefnið heldur
kennum tækni sem getur hjálpað
nemendum að tileinka sér
námsefnið.“
Kolbeinn segir að lesblindan fari
aldrei, hún hafi marga kosti en
neikvæð hlið hennar birtist í formi
námsörðugleika og því hlýtur sú
hlið hennar alla athyglina.
„Einstaklingur sem þjáist af
lesblindu býr oft yfir miklum
kostum. Þetta er oftast mjög
skapandi fólk, listrænt og hefur
góða tilfinningu fyrir þrívídd.
Styrkleikarnir geta legið í hönnun,
verk- þekkingu, handverki og það
væri hægt að telja endalaust. Sem
barn er lesblindur einstaklingur
oft forvitnari en gengur og gerist,
sem er grunnur þess að afla sér
þekkingar.
Ef viðkomandi fær hins vegar
blýant og blað í hendurnar þá fer
allt í vitleysu. Þetta eru ciginleikar
sem nýtast fólki oft ekki fyrr en á
hærri skólastigum, því
grunnnámið er svo skipulagt að
þessir einstaklingar þrífast þar illa.
Þú færð ekki einkunn fyrir
hvatvísi eða áræðni í skóla, né að
fara þínar eigin leiðir. Arangur
samkvæmt fyrirfram skilgrcindri
mæli- stiku er það eina sem gildir.
Líklegt er að mikill mannauður
fari til spillis þar sem svo niargir
skapandi einstaklingar komast
ekki í gegnum grunnnámið.“
Utgangspunktur Davis
aðfcrðarinnar er að fólk tileinki sér
tækni sem hjálpar því í námi og
starfi. „Við forðumst loforð en
þessi aðferð hefur reynst mörgum
árangursrík,“ sagði Sigurjón en
hægt er að bóka viðtal eftir
fundinn hjá Lesblind.com.
-Halli Reynis sló
Halli Reynis tróð upp á Comero á
föstudagskvöldið fyrir fúllu húsi og
var stemmningin góð. Sjálfur var
Halli ánægður með móttökumar og
greinilegt var að margir vom mættir
til að rifja upp gömul kynni því Halli
varhér tíður gestur á ámm áður.
A heimasíðu sinni segir Halli að
það hafi verið að það hafi verið
gaman að koma til Eyja enda hafi
hann ekki spilað hér síðan 1997. „Ég
spilaði á stað sem heitir Comero sem
er í alla staði skemmtilegur. Helena
er húsfreyja þar á bæ og góð heim að
sækja. Það var mjög góð mæting á
tónleikanna og góð stemmning og
fannst mér vel á móti mér tekið í alla
staði. Eins og týndi sonurinn væri
kominn heim, takk fyrir og
velkominn heim. Ég vonast til að
komast aftur í vetur til Eyja,“ segir
Halli á heimasíðunni.
Sá sem þctta skrifar þekkir ekki
mikið til Halla Reynis nema að hafa
í gegn á Cornero
heyrt til hans nokkuð reglulega í
útvarpi. En það segir ekkert um
listamanninn sem hefur verið mjög
afkastamikill. Er hann nú að fylgja
sínum fimmta diski úr hlaði. Sá heitir
Við erum eins, sem á mjög vel við
tónleika hans á Comero á föstudags-
kvöldið, svo vel féll hann inn í
hópinn sem þama var mættur til að
kynnast honum eða rifja upp gömul
kynni. Halli Reynis er söngskáld af
bestu gerð, lög, textar, söngur og
undirspil smella saman og allt kemst
til skila.
Hún var því skemmtileg stundin
þama á Comero sem hentar vel undir
tónleika af þessu tagi. Það er því full
ástæða til að þakka Halla Reynis fyrir
innlitið um leið og Helenu húsffeyju
er þakkað framtakið. Því sennilega er
staðurinn hennar á lofti Vömhússins
best geymda leyndarmálið í
skemmtanalífi Vestmannaeyja í dag.
omar@ eyjafrettir. is