Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 21.04.2005, Blaðsíða 15

Fréttir - Eyjafréttir - 21.04.2005, Blaðsíða 15
Fréttir / Fimmtudagur 21. apríl 2005 15 Herjólfur: Fékk dekk í skrúfuna Þegar Herjólfur var að leggja að bryggju klukkan 15.45 í Vestmanna- eyjum á laugardaginn fékk hann dekkjalengju í skrúfuna með þeim afleiðingum að önnur aðalvélin stöðvaðist. Kalla þurfti til Lóðsinn til að koma honum að bryggju. „A þessu stigi sjáum við ekki skemmdir á skipinu en þessi dekk hafa eflaust legið á botninum. Þegar þetta gerðist þá var kominn spotti að framan þannig að það skipti miklu máli, Við munum fara í gegnum þetta og skoða nánar," sagði Guðfmnur Þór Pálsson rekstrarstjóri Samskipa í Vestmannaeyjum. Að sögn sjónarvotta átti afturendi skipsins stutt eftir í klappimar vestan við bílabrúna þegar Lóðsinn kom og ýtti skipinu að bryggju, Eins og fyrr segir var búið að binda eitt band að framan þegar óhappið átti sér stað. Hér sést Lóðsinn ýta Herjólfi aftur inn að bryggju en afturcndi skipsins færðist nokkuð frá henni. Mynd: Sigurgeir Jónasson. Bragginn - Bílasala - Réttingar og sprautun Hefur náð frábærum árangrí í sölu bíla Við Flatir í Vestmanneyjum hefur í áratugi staðið bílaverkstæði með nafninu Bragginn sem vísaði til húsnæðisins sem starfsemin var í. Nú er bragginn löngu horlinn og risið nútímalegt hús þar sem rekið er réttinga- og sprautuverkstæði ásamt bílasölu og þjónustu henni tengdri. Eðlilega er þetta í sitt hvorum hluta hússins en það vekur athygli hvað allt er snyrtilegt ólíkt því sem venjan er á bílaverkstæðum. Bragginn sf. er með umboð fyrir Bemhard í Vestmanna- eyjum en Bemhard llytur inn Honda og Peugeot bíla. Salan hér hefur gengið vel, sérstaklega á Honda- bílunum sem em orðnir mjög áberandi á götum Vestmannaeyja. Þegar komið er að Bragganum kemur í Ijós íjöldi bfla þar sem Honda og Peugeot em áberandi. Líka em þama bflar sem þarfnast lagfæringa eftir óhöpp í umferðinni og enda inni á sprautunarsalnum. Hann er flísalagður í hólf í hólf og gólf og ber vitni um snyrtimennsku eigenda og starfs- manna. I hinum hlutanum em bflar sem verið er að rétta og þar er sama snyrtimennskan. „Við viljum hafa snyrtilegt í kringum okkur og hreinsum út á hverjum degi eftir vinnu," segir Gunnar Darri Adólfsson sem nú á og rekur Braggann sf. ásamt konu sinni, Svövu Bjamadóttur. „Við emm með réttingar og sprautun og bflasöluna og þjónustu í tengslum við hana. Sigurjón bróðir er með hefðbundið bflaverkstæði hér við hliðina, Bflaverkstæði Sigurjóns. Við vinnuin mikið saman þó þetta sé sitt hvort fyrirtækið," bætir Darri við þegar hann er spurður um reksturinn. Þann I. nóvember 1987 keypti Darri Braggann ásamt bræðmm sínum Sigurjóni og Jóni Steinari. Fjórum ámm síðar, árið 1991, byrjuðu þeir að byggja nýtt hús yfir starfsemina og seinni áfanginn reis á ámnum 2000 og 2001. Það var svo þann 1. nóvember síðastliðinn að hann og Svava keyptu hina út og reka Braggann ein. Þegar talið berst að bflasölunni kemur í Ijós að Darri getur vel unað sínum hlut og sem dæmi um það nefnir hann CRV-jeppann. „Það er búið að fiytja inn 150 CRV bfla frá áramótum og 15 hafa komið til Eyja. Eg er stundum að stríða þeim hjá ÞESSIR nienn þjónusta Honda og Peugeot í Vestmannaeyjum ásamt öðrum tegundum. Gunnar Adolfsson, Sigurjón Adolfsson, Sævar Benónýsson, Jón Steinar Adolfsson og Sæþór Gunnarsson. umboðinu að þeir standi sig ekki nógu vel. Ef við leikum okkur með höfðatöluna þá þyrl'tu þeir að selja um 750 til að ná sama hlutfalli og við hér í Eyjum," segir Darri og hlær. Það vekur líka athygli sá mikli fjöldi Hondabfla sem em á götum Vestmannaeyja. „Skráðir bflar hér em á milli 1500 og 1600 og ég held að það sé ekki fjarri lagi að 20% þeirra séu frá okkur, eða um eða um og yfir 300 bílar. Þama er að skila sér góð þjónusta og líka það að við emm alltaf með bfla á staðnum. Þetta verður held ég að teljast góður árangur frá því ég seldi Vamik og Maríönnu fyrsta Honda-bflinn þann 31. desember 1998." Darri segir að bflaframleiðendur geri miklar kröfur til þeirra sem selja bflana og núna segist hann ætla að gera betur. „Við emm að kaupa tölvu og búnað þar sem hægt verður að mæla vélar í bæði Honda og Peugeot. Hingað til hefur fólk þurft að sækja þessa þjónustu til Reykjavíkur en það breytist þegar við fáum græjumar." Fimm starfa hjá Bragganum í heilu starfi og hafa þeir nóg að gera að sögn Darra. „Tryggingafélögin eru stærsti viðskiptavinurinn í réttingum og sprautun og ég gæti trúað að þeirra hlutur sé um 80%. Þarna hefur okkur tekist að byggja upp traust og það sama má segja um Bemhard. Þeir em ánægðir með okkur og samstarfið er mjög gott. Þetta gengur vel og ég er bjartsýnn á framtíðina því það hefur sýnt sig að þegar maður leggur sig fram er viðskiptavinurinn ánægður," sagði Darri að lokum. Elín sýnir í Kaup- félaginu á Eyrarbakka Elín Egilsdóttir opnar myndlistarsýningu í Kaupfélaginu á Eyrarbakka á laugardaginn. Þar sýnir hún 30 myndir sem hún hefur unnið á síðustu 10 árum. Elín hefur búið í Vestmannaeyjum í 18 ár en hún ólst upp á Eyrarbakka. Þetta er fyrsta einkasýning Elínar sem hefur stundað myndlist í um tíu ára skeið. „Ég hef sótt tíma hjá Steinunni Einarsdóttur myndlistarkonu í Vestmannaeyjum og hef tekið þátt í nemendasýningum hjá henni en núna ætla ég að sýna ein og það á æskuslóðum á Eyrarbakka,“ sagði Elín. Sýningin verður opnuð á laugardaginn 23. apríl klukkan 14.00 og verður þann dag opin til 18.00. „Það er mikill heiður fyrir mig að fá þetta tækifæri. Þarna sýni ég um 30 myndir sem ýmist eru unnar með olíulitum, vatnslitum eða bleki. Mótívin eru úr sitt hverri áttinni og mest úr gamla tímanum.“ Svningin verður opin til 1. maí, frá klukkan 14.00 til 18.00 á sunnudögum og 17.00 til 20.00 aðra daga. ELÍN við eina af myndunum sem hún ætlar að sýna. Júpíter aftur í slaginn ísfélagið keypti loðnuskipið Júpíter ÞH í vetur og notaði hann til flutninga á loðnu af miðunum á vertíðinni. Ætlunin var að selja hann í brotajám til Danmerkur að vertíð lokinni en við kynnin í vetur fóm að renna tvær grímur á Isfélagsmenn og niðurstaðan er; þeir ætla að eiga hann áfram og er verið að gera hann kláran á veiðar í Skipalyftunni. „Við teljum Júpíter gott skip og ætlum við að halda honum úti á loðnu og sfld, líkt og við gemm með Sigurð sagði Ægir Páll Friðbertsson framkvæmdastjóri Isfélagsins við Eyjafréttir. JÚPÍTER liggur nú við bryggju í Skipalyftunni þar sem verið er að gera hann kláran á veiðar.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.