Reykjavík


Reykjavík - 20.10.2012, Síða 2

Reykjavík - 20.10.2012, Síða 2
2 20. október 2012 Bæjarstjórn Akureyrar minnir borgar- stjórn Reykjavíkur á skyldur sínar Bæjarstjórn Akureyrar ræddi í vikunni niðurstöður skýrslu um áhrif þess að flytja miðstöð inn- anlandsflug frá Reykjavík til Keflavíkur og var bókun þar að lútandi samþykkt. „Vegna umræðu um flutning Reykja- víkurflugvallar úr Vatnsmýrinni vill bæjarstjórn Akureyrar minna á þá ábyrgð og skyldur sem höfuðborg landsins ber gagnvart landsmönnum öllum. Greiðar flugsamgöngur lands- byggðarinnar til Reykjavíkur eru forsenda þess að borgin geti gegnt hlutverki sínu sem höfuðborg landsins alls. Í höfuðborginni eru höfuðstöðvar stjórnsýslu Íslands auk fjölda opinberra viðskipta-, mennta-, menningar- og heilbrigðisstofnana sem eiga þar einnig sínar höfuðstöðvar. Bæjarstjórn hvetur borgarstjórn Reykjavíkur til að hafa framangreind atriði í huga við umfjöllun um fram- tíðarstaðsetningu flugvallarins. Bæjar- stjórn vekur jafnframt athygli á helstu niðurstöðum í nýútkominni skýrslu KPMG og lýsir yfir vilja sínum til frekari viðræðna við borgaryfirvöld um málið.“ Borgin búin að kaupa Umferðar- miðstöðina og Keilugranda 1 Borgarstjórn hefur samþykkt að borgin kaupi Umferðarmið-stöðina á 445 milljónir króna af Landsbankanum. Ætlunin er að þar verði miðstöð almenningssamgangna og að skiptistöðin á Hlemmi flytjist þangað. Borgaryfirvöld segja að með kaup- unum öðlist borgin full yfirráð á svæðinu og eyði þar með óvissu og gefist nú kostur á að deiliskipuleggja svæðið í heild. Gert er ráð fyrir fjöl- breyttri uppbyggingu á svæðinu og er hugmyndin að þar rísi blönduð byggð lítilla og meðalstórra íbúða sem henta muni ungu fólki. Þá ákvað borgarstjórn að staðfesta kauptilboð í lóðina Keilugranda 1, en heildarverð fyrir hana og skemmu sem á henni stendur er 240 milljónir króna. Borgaryfirvöld segja að óvissa hafi ríkt um lóðina og uppi hafi verið óskir um mikla uppbyggingu þar sem ekki hafi verið í takti við hugmyndir skipulagsyfirvalda í Reykjavík. Með kaupunum geti borgin skipulagt lóð- ina eftir eigin hugmyndum, en að gert sé ráð fyrir hóflegri þéttingu byggðar á reitnum sem samræmist nýju aðal- skipulagi ásamt íþróttaaðstöðu sem nýtist börnum og unglingum. Lóðin er nærri Grandaskóla og KR. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram bókun þar sem segir meðal annars: „Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins geta ekki stutt þessi kaup og fjár- festingu sem nemur rúmlega 700 millj- ónum. Ástæðan er sú að það er hvorki fullkannað hvort BSÍ henti best sem aðalskiptistöð fyrir Strætó bs, líkt og kaupin eru grundvölluð á, eða hvort Reykjavík getur eignast Keilugranda- lóðina með minni tilkostnaði, en borg- arfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja að borgin eigi að leysa þá lóð til sín með lágmarkskostnaði og ráðstafa henni í þágu íþrótta- og æskulýðsstarfs í Vest- urbænum. Borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins telja einnig óeðlilegt að tengja þessi kaup saman. Það er gert vegna óska seljandans, Landsbanka Íslands, en ekki er augljóst hvernig það tengist hagsmunum borgarinnar.“ Fulltrúar meirihlutans, Besta flokks- ins og Samfylkingarinnar bókuðu hins vegar: „Það er sérstakt fagnaðarefni að þessar lykileignir skulu vera komnar í eigu Reykjavíkurborgar. Kaupin bjóða upp á spennandi tækifæri varðandi framtíðarskipulag á svæðunum.“ Reykjavík vikublað óskar eftir að komast í samband við borgar búa sem sjaldan eða aldrei hafa veitt viðtöl en væru til í að segja skoðun sína í blaðinu eða veita stutt viðtöl. Vinsamlegast sendið okkur tölvu póst á ritstjorn@fotspor.is eða hringið í síma 698-6789. Reykjavík vikublað 39. Tbl. 3. áRganguR 2012 Útgefandi: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466, netfang: amundi@fotspor.is. auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykja vík. Auglýsingasími 578-1190, netfang: auglysingar@fotspor.is. Ritstjóri: Haukur Holm, netfang: haukur@fotspor.is. Myndir: Ýmsir, netfang: ritstjorn@fotspor.is, sími: 698-6789. Umbrot: Prentsnið. Prentun: Ísafoldarprentsmiðja. Upplag: 46.000 eintök. dreifing: Reykjavík vikublaði eR dReift í 45.600 eintökum ókeypis í allaR íbúðiR í Reykjavík. Viltu segja skoðun þína? ReykjavíkuRgetRaunin Tæknin, margs konar, er í sífelldri þróun og hefur alltaf breytt lífi okkar mannanna. Kannski má segja að hún þróist hraðar nú en oft áður, eða í það minnsta hefur hún meiri áhrif á okkar daglega líf en á sumum öðrum tímum. Í Reykjavík-vikublaði í dag er viðtal við eiganda elstu starfandi mynd- bandaleigu landsins og er framtíðarspá hans fyrir greinina ekki björt. Hann í raun spáir því að myndbandaleigur á netinu í líkingu við þær sem símafyrirtækin bjóða upp á eigi eftir að ganga að hefðbundnum myndbandaleigum dauðum. Helsta hálmstrá leiganna sé að marka sér sérstöðu svipað og eigandi Grensásvídeós hefur gert. Hann leggur áherslu á norrænt efni sem og sígilt efni. Það er gott til þess að vita að hægt sé að sækja sér innihaldsríkar kvikmyndir og þáttaraðir til mótvægis við fjöldaframleiðsluna í draumaverksmiðjunni. Það er auðvitað sorgleg staðreynd ef þessi hrakspá gengur eftir og mynd- bandaleigur hverfa. En það þýðir ekki að berja hausnum við steininn og reyna að berjast á móti straumnum. Þessi þróun leiðir hins vegar hugann að öðru. Hún leiðir hugann að því hvernig margt sem við þurftum að fara að heiman til að sækja og jafnvel langar leiðir, er núna við hendina án þess að maður fari spönn frá rassi. Í tölvunni á netinu getum við skoðað nánast alla fjölmiðla heimsins og fengið fréttirnar strax, hvaðan sem er og alls staðar að. Kvikmyndir sækir maður einnig á netið og samskiptin við aðrar manneskjur geta líka farið þar fram. Það má eiga samskipti með tölvupósti eða í gegnum Skype eða hliðstæð forrit. Þá situr maður heima hjá sér og talar við þá sem maður þarf að tala við og sér þá meira að segja líka. Maður þarf nánast ekkert að fara að heiman. Maður fær heiminn heim til sín. Þetta er mikil þróun og auðveldar okkur lífið á margan hátt. En við getum ekki enn snert aðrar manneskjur nema standa augliti til auglitis við þær. Það breytist vonandi aldrei. Góða helgi. Leiðari Að fá heiminn heim til sín Svar á bls. 14 Hvaða frægi veitingastaður var rekinn um árabil í þessu húsi við Laugaveg? Stefnt er að því að Strætó verði með skiptistöð í Umferðarmiðstöðinni. Skemman á keilugranda 1 hefur lítt verið til prýði, en nú styttist í að hún hverfi.

x

Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.