Reykjavík - 20.10.2012, Síða 4
20. október 2012
Norðurljósagónarar í lífshættu
Dæmi eru um að rútum fullum af ferðamönnum sé lagt við hættulegar aðstæður á vegum
landsins á meðan farþegarnir rýna upp
í himininn á norðurljósin, samkvæmt
upplýsingum frá Umferðarstofu. Dæmi
eru um að rútunum sé lagt í vegarkanti
og ferðarmennirnir sjáist illa á göngu
við rúturnar í myrkrinu. Tilviljun virð-
ist ráða hvar stoppað sé. Ökumaður
sem átti leið um Hvalfjörð sendi Um-
ferðarstofu póst um hættuna.
„Ég fór um Hvalfjörðinn um kl
22:00 í gærkvöldi og ók þar fram á tugi
ferðamanna sem voru að skoða norð-
urljósin, þarna voru tvær stórar rútur
í vegkantinum og tugir ef ekki yfir 100
mans nánast standandi á veginum og
einn sat í vegkantinum og myrkrið var
algjört, ekkert endurskin eða neitt.
Í ofanálag fyrir mig að aka að þessu í
myrkrinu var aðstaðan þannig að þetta
er í beygju og ljósin hjá mér lýstu ekki á
fólkið fyrr en ég kom inn í beygjuna og
þurfti ég að bremsa harkalega, enda brá
mér verulega að aka framá þetta granda-
laus. Hefði verið hálka eða athygli mín
verið við annað þannig að ég hefði ekki
bremsað fyrr en nokkrum metrum
lengra hefði allt annað getað gerst.“
Hjá Umferðarstofu taka menn
undir þessar áhyggjur ökumannsins
og hvetja þá sem bjóða upp á svona
skoðunarferðir að tryggja öryggi far-
þega sinna sem og annarra vegfarenda
með því að leggja á öruggum stað.
Ný lestrarstefna grunnskóla
borgarinnar samþykkt
Skóla- og frístundaráð Reykjavíkur-borgar hefur samþykkt nýja lestr-
arstefnu fyrir grunnskóla Reykjavíkur,
en í henni er kveðið á um aukið vægi
lestrar og ritunar í öllu námi og á ölum
skólastigum.
Samkvæmt nýju stefnunni fá nem-
endur kennslu og þjálfun í mismun-
andi lestrarlagi eða tækni, eins og ítar-
lestri, nákvæmnislestri, leitarlestri eða
skimunarlestri. Þá á að laga kennslu að
ólíkri getu nemenda innan hvers hóps.
Einnig er hvatt til þess að skólar hafi
aðgang að kerfisbundnu námsmati sem
nái til allra þátta lestrarnámsins og
allra aldursstiga, svo taka megi réttar
ákvarðanir fyrir hvern og einn um
áframhaldandi lestrarnám og þjálfun.
4
Samkeppni um
opnunaratriði
Vetrarhátíðar
Höfuðborgarstofa og Orkusalan standa fyrir samkeppni um
opnunaratriði Vetrarhátíðar 2013,
í samvinnu við Hönnunarmiðstöð.
Atriðið markar upphaf hátíðarinnar
7. febrúar og verður það á óvæntum,
en fjölförnum stað í borgarrýminu.
Samkeppnin er öllum opin,
hönnuðum, arkitektum, mynd-
listarmönnum, tónlistarmönnum,
ljósafræðingum, tölvunarfræðingum
og öðrum og er reyndar hvatt til
samstarfs ólíkra listgreina. Verð-
launaféð er 400 þúsund krónur og
samningur um framkvæmd vinn-
ingstillögunnar. Frestur til þátt-
töku rennur út 16. nóvember, en
nánari upplýsingar má sjá á vefsíðu
Hönnunarmiðstöðvar, honnunar-
midstod.is.
Í fyrra var vetrarhátíðin sett með
atriði arkitektsins Marcos Zotes,
þegar verki hans, Rauðri náttúru, var
varpað á framhlið Hallgrímskirkju
við lifandi tónlistarflutning hljóm-
sveitarinnar For a Minor Reflection.
Borgarstjórn samþykkir sölu nærri
helmingshlutar í Gagnaveitunni
Nærri helmingshlutur, eða 49%, í Gagnaveitu Reykjavíkur sem unnið hefur að lagningu
ljósleiðara í Reykjavík og víðar, verður
seldur. Borgarstjórn samþykkti þetta
í vikunni. Eigendanefnd Orkuveitu
Reykjavíkur hefur skilgreint kjarna-
starfsemi fyrirtækisins.
„Kjarnastarfsemi Orkuveitu Reykja-
víkur felst í rekstri vatnsveitu, hitaveitu,
rafveitu og fráveitu, sölu og framleiðslu
á rafmagni og heitu og köldu vatni.
Orkuveita Reykjavíkur getur nýtt þekk-
ingu fyrirtækisins í þátttöku í öðrum
veiturekstri, s.s. rekstri gagnaveitu,
enda þjóni hann markmiðum eigenda
og þátttakan hljóti samþykki þeirra“,
segir í yfirlýsingu frá eigendanefndinni.
Eigendur Gagnaveitunnar vilja hafa
hönd í bagga með að þróun grunnnets
samskipta sem best verði tryggt með
virkum eignarhlut í opnu grunnneti
sem hvetur til samkeppni þjónustu-
aðila, dragi úr hættu á offjárfestingu
og verði rekið með hóflegri arðsemi.
Eigendanefndin leggur til að stjórn
OR fái umboð til að undirbúa sölu
á 49% hlut OR í Gagnaveitu Reykja-
víkur. Áframhaldandi meirihlutaeign
OR sé ætlað að tryggja hagstætt verð,
opna samkeppni og meirihlutaeign
almennings.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
voru á þeirri skoðun að selja bæri öll
hlutabréfin í Gagnaveitunni og borg-
arfulltrú Vinstri grænna lagðist gegn
sölunni og taldi að þótt starfsemin
heyrði ekki undir kjarnastarfsemi
OR, gegndi Gagnaveitan ekki síður
almannahlutverki en aðrar veitur og
því ætti fyrirtækið að vera í eigu og á
forræði almennings.
Lesið um allan Vesturbæ
Mikil lestrarhátíð var í Vest-urbænum þessa vikuna í
tengslum við Reykjavík bókmennta-
borg UNESCO. Það voru skólarnir
í hverfinu sem stóðu að hátíðinni,
en Borgarbókasafniið kom að há-
tíðinni með ýmsum hætti, lánaði
meðal annars grænar bækur í fyrir-
tæki og verslanir fyrir starfsmenn
og viðskiptavini til að glugga í. Þá
lásu starfsmaður safnsins og María
Þórðardóttir leikkona upp í Péturs-
búð og í Kjötborg og nemendur úr
hverfinu fóru víða um og lásu ljóð
og annan texta í skólum, fyrirtækjum
og stofnunum.
LJÓSLEIÐARI
HEIM TIL ÞÍN!