Reykjavík - 20.10.2012, Qupperneq 10
10 20. október 2012
Orðsmiðurinn hagi
Íslenska er síkvik og lifandi og er verkfæri okkar til að tjá skoðanir, tilfinningar og hvaðeina sem okkur
brennur í brjósti. Það skiptir því máli
að meðhöndla tungumálið af virðingu
og nærgætni. Íslenska á ekki og getur
ekki haldist óbreytt um eilífð, en allar
breytingar taka mið af tíðaranda og
fleiru. Sumar breytingar eru af hinu
góða, en aðrar ekki.
Stundum er unnið tjón á tungumál-
inu þegar alls kyns orðskrípi og talsmáti
nær að skjóta rótum, breytingar sem
ekki bæta tungumálið heldur þvert á
móti skaða það, gera það ónækvæmara
og einfaldlega ljótara. Gott dæmi um
slíkt núna er sá leiði siður að segja til
dæmis „ég er ekki að skilja þetta“, þegar
einfaldara og fallegra væri að segja „ég
skil þetta ekki“. Eða: „við erum ekki
að gera þetta“, í stað: „við gerum þetta
ekki.“ Þetta er ljótt mál og engum til
prýði.
En svo er það hin viðbótin, þar sem
tungumálið er bætt með hugmynda-
auðgi, góðri tilfinningu fyrir málinu
og góðum skammti af kímnigáfu. Gott
dæmi um það er pétrísk-íslensk orða-
bók með alfræðiívafi. Þar hefur Pétur
Þorsteinsson prestur Óháða safnað-
arins í Reykjavík tekið saman í bók
ýmis orð sem hann hefur búið til eða
snarbreytt merkingu þekktra orða eða
öllu heldur bætt við merkingu. Bókin
kom fyrst út árið 1988, en Bókaútgáfan
Hólar hefur nú gefið þessa bók út í 33.
sinn og hefur upplagið aldrei verið
stærra, enda vinsældirnar sívaxandi.
Pétur er tekur sjálfan sig ekki hátíð-
lega, gerir grín að sjálfum sér ef því er
að skipta og er prestur sem er algjör-
lega laus við helgislepju. Sum nýyrða
hans snú beint að honum sjálfum,
fjölskyldu hans eða heimili og þá eru
fjölmörg þeirra tengd starfi prestsins og
ýmsum kirkjuathöfnum, en önnur hafa
almenna og víðtæka skírskotun. Öll
virðast þau þó eiga það sameiginlegt
að gleði, grín og jafnvel væntumþykja
virðast rótin að nýyrðunum.
Bókin er tæpar hundrað síður að
lengd sem segfir okkur að í henni er
gríðarlegur fjöldi nýyrða eða nýmerk-
inga. Lítum á nokkur dæmi úr bókinni.
Afgreiddur – sköllóttur maður.
Afturelding – matur sem hitaður er
upp aftur.
Algildur – maður sem er allur feitur.
Afturvirkur – samkynhneigður.
Árangur – þegar menn hafa ama af því
hvaða þeir eru orðnir gamlir.
Bardúsa – kvenkyns barþjónn.
Bálreið – slökkviliðsbifreið.
Blaðamatur – salatblöð og kínakál.
Bylgjubæli – vatnsrúm.
Dauðariðill – maður sem verður þess
valdandi að kona deyr í ástaratlotum
við hann.
Dragbítur – árbítur sem hefur dregist,
sbr. brunch á ensku.
Draugavegurinn – Laugavegurinn eftir
að honum tók að hnigna.
Dráttarkúla – eista.
Einyrki – maður sem ort hefur eina
vísu um ævina.
Erfidrykkja – arfgengur alkóhólismi.
Fara í lagningu – kistulagning.
Fjörtjón – skemmtanahald sem fer úr
böndunum með tilheyrandi kostnaði.
Flettari – maður sem flettir sig klæðum
eða svokallaður flassari.
Flengreið – kappakstursbíll.
Flygill – flugþjónn.
Hópreið – langferðabíll.
Hemlahosur – sokkar fyrir lítil börn
með gúmmíi á ilinni.
Knæpa – kvenkyns knapi.
Líkræningi – prestur sem jarðar í
annarri sókn en sinni eigin.
Orkulimur – bensínslanga.
Óefni – fátækt.
Rafbarbari – tölvuþrjótur.
Smettissmér – andlitskrem.
Skyndiskita – þegar mönnum verður
brátt í brók.
Stafangur – lesblinda.
Sukklokasamningur – starfslokasamn-
ingur útrásarvíkings.
Svaramaður – maður í munnlegu prófi.
Tilbúinn undir tréverk – nýdáinn og
tilbúinn til kistulagningar.
Túrtappi – lágvaxinn alkóhólisti.
Undandráttur – ótímabært sáðlát.
Útúrdúr – maður sem sofnar undir
stýri og ekur út af.
Varavæting – drykkur.
Veiðivatn – ilmvatn.
Yfirdráttur – greiða og draga hár yfir
skallann.
Þjóðverji – Íslendingur sem er á móti
ESB og einnig sá sem vil verja þjóðina
fyrir ágangi erlendra ásælara eins og
Kínakalla á Grímsstöðum á Fjöllum.
Þykkdrykkur – svokallaðir „smooth ies“.
Æfingabúðir – sambúð fyrir hjónaband.
Ævisaga – lygasaga sem einhver gengst
við.
Örvandi – lítill vandi.
Þetta eru bara örfá dæmi um orða-
smíð og merkingasmíð prestsins Péturs.
En í bókinni eru einnig nöfn eða upp-
nefni sem hann hefur gefið ýmsu þjóð-
þekktu fólki. Þar má meðal annarra sjá
eftirfarandi nöfn.
Bessastaðabeikonið – Ólafur Ragnar
Grímsson.
Björn Borg – Björn Bjarnason eftir að
hann var tilnefndur af flokki sínum til
að verða borgarstjóri.
Frímaður – Jónas Fr. Jónsson sem var
forstjóri Fjármálaeftirlitsins, en hann
virðist hafa verið í fríi í vinnunni og fríi
sig allri ábyrgð á hruninu.
Jóhann var Benediktsson – Jóhann R.
Benediktsson sem var sýslumaður á
Keflavíkurflugvelli, en hætti.
Margfaldur Indriðason – Arnaldur
Indriðason sem selur bækur í bíl-
förmum.
Bók Péturs prests er skemmtilestur,
en um leið opnar hún augun fyrir fjöl-
breytni tungumálsins. Hvernig orð
geta óbreytt haft fleiri en eina merk-
ingu eða öðlast nýja merkingu með
örlitlum breytingum. Eins og fyrr segir
skín í gegnum orðasmíðina kímni og
gleði, jafnvel smá broddur. En fyrst og
fremst hugmyndaauðgi og tilfinning
fyrir tungumálinu og það má kalla
þetta væntumþykju því málið verður
skemmtilegra og litríkara fyrir vikið.
Pétur blæs nýju lífi í daglegt mál og
leggur þannig sitt af mörkum til að
halda því kviku.
Þess má geta að hagnaður af sölu
bókarinnar rennur til Kristilegs félags
heilbrigðisstétta. Eða eins og höfundur
segir sjálfur: „Allur ágóði útgáfu
þessarar bóknar rennur gersamlega til
afdjöflunarstarfs Kristilegs félags heil-
brigðisstétta.“
Haukur Holm
H Ú S G AG N A H Ö L L I N • B í l d s h ö f ð a 2 0 • Re y k j a v í k • s í m i 5 5 8 1 1 0 0 O P I Ð V i r k a d a g a 1 0 - 1 8 l a u g a rd a g a 1 1 - 1 7 s u n n u d a g a l o k a ð .
RIALTO La-z-boy stóll.
Brúnt, svart eða natur áklæði.
B:80 D:90 H:100 cm.
109.990
FULLT VERÐ: 129.990
NÚNA
20.000
KR. AFSLÁTTUR
ASPEN La-z-boy stóll. Svart, vín-
rautt, brúnt eða ljóst leður.
B:80 D:85 H:102 cm.
119.990
FULLT VERÐ: 139.990
GRAND PINNACLE XL La-z-boy
stóll. Svart eða brúnt leður. B:84
D:107 H:118 cm.
149.990
FULLT VERÐ: 169.990
ASPEN La-z-boy stóll.
Brúnt eða natur áklæði.
B:80 D:85 H:100 cm.
79.990
FULLT VERÐ: 99.990
NÚNA
20.000
KR. AFSLÁTTUR
NÚNA
20.000
KR. AFSLÁTTUR
NÚNA
20.000
KR. AFSLÁTTUR
Hinn eini sanni!
LA-Z-BOY er hágæða vörumerki, þar sem
þægindi, notagildi og ending fara saman.
Upplifðu hvíld á nýjan hátt og færðu þægindi
inn á þitt heimili með LA-Z-BOY.
LA-Z-BOY er eini stóllinn í heiminum sem
hefur 18 mismunandi hægindastillingar.
LA-Z-BOY er skrásett vörumerki og fæst
eingöngu í Húsgagnahöllinni.
18 HÆGINDASTILLINGAR
Trúðleikur
Miðasala í síma 565 5900
Sýningar
Föstudagur 19. október kl 20.00 Blakkát (UPPSELT)
Laugardagur 20 október kl 14.00 Ævintýri Múnkhásens (UPPSELT)
Sunnudagur 21. október kl 17.00 Trúðleikur
Sunnudagur kl 20.00
Sköllótta Söngkonan
Fyndnasta leiksýningin
í bænum
Það verður ör
hjá okkur
um helgina
midasala@gaaraleikhusid.is Midi.is
BækuR