Harmoníkan - 30.05.1996, Qupperneq 3

Harmoníkan - 30.05.1996, Qupperneq 3
Fræðslu- og upplýsingarit S.Í.H.U. Ábyrgðarmenn: Hilmar Hjartarson, Ásbúð 17, 210 Garðabæ, sími 565 6385 Þorsteinn Þorsteinsson, Torfufelli 17, 111 Reykjavík, sími 557 1673. Prentvinnsla: Prenttækni hf. Áratugur Með þessu blaði er lýkur tíunda ár- gangi blaðsins. Það var lagt út í óvissuna með útgáfunni og reynslan var engin en ekki vantaði bjartsýnina. Þrátt fyrir litla þekkingu og enga reynslu hefur tekist að halda úti blaði um harmoníkuna gang- andi í I0 ár, og þó að eflaust hefði mátt gera marga hluti á annan veg, samkvæmt kokkabókum lærðra í fjölmiðlafræðum, hefur þetta tekist. Þegar blaðið hóf göngu sína voru 11 harmoníkufélög starfandi á landinu en þeim hefur fjölgað þannig að núna eru þau 20 eins og sjá má hér í blaðinu. Þá má einnig sjá ef gömlum blöðum er flett, að í tveim félögum hefur sami formaður verið þennan áratug, Hafsteinn Sigurðs- son í Stykkishólmi og Þórir Jóhannsson í Félagi Harmoníkuunnenda í Húnavatns- sýslum. Forsíðumar á fyrsta árganginum voru teikningar, en síðan hefur ávallt verið Ijósmynd. Þegar litið er á aðsendar greinar hafa sum félög eða félagar innan þeirra verið dugleg við að skrifa, en frá öðrum varla nokkuð borist og sumum alls ekki neitt. Þeir sem hafa sent okkur efni, greinar og fleiri fróðleik,. hafa vissulega gert blaðið skemmtilegra og fjölbreyttara, ekki síst fyrir stílinn sem hver einstaklingur hefur í skrifum sínum. Oft hafa félög boðið okkur á ýmsar samkomur, árshátíðir og afmæli og hefur verið greint frá því hverju sinni í blað- inu. Þá hefur Félag Harmoníkuunnenda við Eyjafjörð nánast gert blaðið að fé- lagsmanni og fáum við því öll fréttabréf sem send em frá F.H.U.E. Oft höfum við róið á erlend mið eftir fréttum, og stund- um hafa þau mið verið gjöful en eins hefur oft farið mikil vinna í að viðhalda erlendum tengslum þó ekki væri mikið á því að græða varðandi efni í blaðið. Það Forsíðumyndin er af gjöf frá Félagi harmoníkuunnenda á Suðumesjum. Gjöfm er gefin í tilefni 10 ára afmælis Harmoníkunnar á afmælisdegi blaðsins 14. apríl 1996. Myndin sem við sjáum er eins og forsíða á bók og þegar hún er opnuð birtast heilla óskir til blaðs- ins og ljóð ásamt kveðju á blaðsíðu bókar- innar Textinn er á öðrum stað í blaðinu. Gjöfin er gerð af Nönnu Jóhannsdóttur. Ljósm: Þorsteinn Þorsteinsson. Blaðið kemur út þrisvar á ári. I október, endaðan febrúar og í endaðan maí. Gíróreikningur nr. 61090-9. Auglýsingaverð: 1/1 síða kr. 9.300 1/2 síða kr. 6.200 1/4 síða kr. 3.900 1/8 síða kr. 2.300 Smáauglýsingar (1,5 dálksentímetri) kr. 650 + kr. 120 fyrir livern auka dálksentimetra. hefur þó oft opnað okkur sýn til annarra landa t.d. höfum við fengið bréf með fyr- ispurnum frá Kína, Japan og Bandaríkj- unum að ógleymdum hinum norrænu löndunum en bæði við þau og Bandarík- in höfunr við haft mikil bréfasambönd frá upphafi. Alltaf hefur fylgt því léttir þegar búið var að póstleggja hvert blað, sem hefur raunar verið skammgóður vermir því að þurft hefur að vera vakinn og sofinn yfir blaðinu - aldrei komið neitt ákveðið tímabil úr árinu sem ekki hefur þurft að hugsa fyrir næsta blaði. Það er margt á þessum árum sem hefur þurft að ræða og koma sér saman um, sem að okkar mati hefur tekist prýðilega. Við þurfum þó ekki að vera alltaf sömu skoðunar í öllum málefnum og höfum því gætt þess vandlega að hvor um sig haldi sínum stíl í skrifum sínum, en oft lesið yfir hvor hjá öðrum svona til að vita hvort nokkuð hefur gleymst eða einhverju verið ofaukið - betur sjá jú augu en auga. Við vorum fullir bjartsýni yfir nýrri sænskri harmoníkuverksmiðju sem framleiddi nýja gerð af harmoníkum, harmoníkum sem átti að vera hægt að kaupa í hlutum og "púsla" síðan saman að vild. Við gerðum heiðarlega tilraun að selja þessi hljóðfæri hér sem ekkert varð þó úr, nema síðar meir nokkur skemmti- leg spaugsyrði við hátíðleg tækifæri. Frá upphafi höfum við birt nótur af lagi í blaðinu sem í fyrstu voru handskrifaðar, oftast af viðkomandi höf- undi eða þá af Jóhannesi Benjamínssyni. Síðar fór- um við að nota tölvuút- skrift á nótunum sem eru raunar faglegri vinnubrögð og í flestum tilfellum læsi- legra og betra. En þar eins og víðar, hefur prentvillu- púkinn látið til sín taka þrátt fyrir harða baráttu. Vonandi lætur hann ekki á sér kræla í þetta sinn. Þess- ar nótur sem hafa ekki verið birtar áður á opinberum vettvangi, hafa verið af ýms- um gerðum, sum lögin nokkuð auðveld í flutningi en önnur erfiðari viðfangs. Ef ljóð er til við lagið, hefur það að sjálf- sögðu fylgt með. Allt frá árdögum blaðsins höfum við verið að safna áskrifendum og það hef- ur gengið að mörgu leyti vel. Gallinn er bara sá að okkur helst ekki nægjanlega vel á þeim og því hefur áskrifendafjöldi verið okkur höfuðverkur frá upphafi. Ef ekki hefði komið til styrkur frá S.Í.H.U. værum við sennilega löngu hættir. Þó blaðið sé nokkuð dýrt miðað við mörg önnur blöð hefur alltaf verið barátta við að láta enda ná saman. Það eru mörg ný tímaritin á landinu sem litið hafa dags- ins ljós á þessum áratug sem Harmoník- an hefur komið út, sem hafa ekki náð að lifa jafn lengi þrátt fyrir vandað efni og faglegt útlit. Við getum því ekki annað en verið ánægðir með sjálfa okkur þegar litið er til baka, og alltaf finnst okkur gott að heyra góð orð um blaðið sem mælt eru í einlægni. Blaðið er verk okk- ar og hverjum finnst sinn fugl fagur, eins og þar stendur. Þeir eru fjölmargir sem hvetja okkur til dáða og vilja efla starf okkar með öllum ráðum. Nú, á þessum tímamótum er tilvalið að segja við þetta ágæta fólk; bestu þakkir fyrir hlý orð og veitta aðstoð. Gleðilegt harmoníku-sumar. Þ.Þ. 3

x

Harmoníkan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.