Harmoníkan - 30.05.1996, Side 4
Afmælisgjöf FHUS, kom á óvart!
Félag harmoníkuunnenda á
Suðurnesjum hélt skemmti-
fund 14. apríl síðastliðinn á
Flughótelinu í Keflavík. For-
maður félagsins Gestur Friðjónsson
bauð fyrir félagsins hönd blaðamanni
Harmoníkunnar þangað, í minn hlut
kom að þekkjast boðið.
Heilmikil dagskrá var af þessu til-
efni, hljómsveit frá tónlistarskólanum
í Keflavík undir stjórn Guðmundar
Samúelssonar og harmoníkuleikarar
og aðrir hljóðfæraleikarar af svæðinu.
Auk þessa komu ungir nemendur
Guðmundar Samúelssonar fram,
ásamt ungu fólki af Suðurnesjum.
Skemmtunin var ánægjuleg og
fjölsótt. Hún sýndi frarn á að Suður-
nesjamenn kunna að meta harmoník-
una.
Ekki hafði farið framhjá Gesti
Friðjónssyni að þessi mánaðardagur
var hinn raunverulegi stofn- og af-
mælisdagur blaðsins Harmoníkunn-
ar,( reyndar líka fæðingardagur
beggja útgefendanna.) Hann færði
blaðinu afmælisgjöf forkunnarfagra
með tilheyrandi texta. Gjöfin er unn-
in af konu Gests Nönnu Jóhannsdótt-
ur af miklu listfengi. Vorum við þor-
steinn á einu máli um að skreyta með
henni forsíðu afmælisblaðsins. Hún
kom eins og kölluð því að við vorum
á því að brjóta upp vanann með for-
síðuna af tilefninu, enn snérumst enn
ráðvilltir í vali á mynd. þegar gjöfinni
er lokið upp kemur eftirfarandi texti
í Ijós....
Hinir ungu harmoníkuleikarar sem fram komu í Flughótelinu. Frá v. Dóra Lilja Óskarsdóttir 8
ára Njarðvíkurskóla, Guðbjörn Már Kristinsson 13 ára, Páll Kristinsson 7 ára, og Hlynur
Snorrason 11 ára, allir þrír í námi hjá Guðmundi Samúelssyni.
Innilegar hamingjuóskir á
tíu ára afmœlinu.
Bjarta framtíð.
FHU. Suðurnesjum.
Til að Ijúfir tónar svelli
tendri yl og gleði nóg.
Harmoníkan haldi velli
hljómi títt um Þrastaskóg.
Útgefendur blaðsins vilja
færa Félagi Harmoníkuunn-
enda á Suðurnesjum bestu
þakkir fyrir og framtíðaróskir.
Fyrir hönd útgefenda
Hilmar Hjartarson
Tekið við afmœlisgjöfinni frá FHUS ásamt blómvendi.
Frá vinstri formaður félagsins Gestur Friðjónsson,
listakonan Nanna Jóhannsdóttir og viðtakandinn
H.Hj. Mvndin er tekin í Flughótelinu Keflavík.
Harmoníkuhljómsveit fagnað
Á síðasta ári fór Harmoníkuhljóm-
sveit Kosice" sem eru nemendur í
Slóveska Tónlistarháskólanum, í tón-
leikaför til Kýpur.
Stjórnandi hljómsveitarinnar er
Vladimír Cuchran frá Rússlandi. Fékk
hljómsveitin afar góðar móttökur þar
sem hún flutti m.a. Capriccio Italian
eftir Tchaikovski, kafla úr West side
story eftir Bernstein og syrpu af lög-
um eftir The Beatles, sem var svo vel
tekið að ákveðið var að bjóða hljóm-
sveitinni aftur á næsta (þessu) ári.
Það vekur athygli að Vladimír
Cuchran er sagður vera Rússi sem
starfi í Slóvakíu, en samkvæmt heim-
ildum S.Í.H.U. á hann að vera
Slóvaki.
Þ.Þ.
Heimild: AAA Newsletter
4