Harmoníkan - 30.05.1996, Blaðsíða 5
Það varð enginn fyrir vonbrigðum
þegar lög Svavars Benediktssonar voru
kynnt, enda flutningurinn í öruggum
höndum Sigurgeirs Björgvinssonar og
félaga ásamt söngkonunni Hjördísi
Geirs. Auk Ellenar Svavarsdóttur
heiðruðu Adda Örnólfs og Ólafur Briem
samkomuna með nœrveru sinni.
Fremri röðfrá v. Ellen Svavarsdóttir,
Ólafur Briem, Adda Örnólfs, Ragnar
Páll. Aftari röð frá v.: Þórir Magnús-
son, Hjördís Geirs og Sigurgeir
Björgvinsson.
I desember fjölmennti fólk til að hlýða á töfrandi tóna Oddgeirs Kristjánssonar.
Hljómsveit undir stjórn Braga Hlíðberg flutti tónlist snillingsins af þeirri fágun sem
hæfði, ásamt söngkonunni Hjálmfríði Þöll. Frá vinstri: Pétur Urbancic, Þorsteinn
Þorsteinsson, Hjálmfríður Þöll Friðriksdóttir, Símon ívarsson, Bragi Hlíðberg.
Sitjandi: Hildur og Hrefna Oddgeirsdœtur.
Frá starfi FHUR,
kynning dægurlagahöfunda
Texti: Friðjón Hallgrímsson
Myndir: Hilmar Hjartarson
Vetrarstarfið 1994-95 hófst í októ-
ber með því að þeir félagar Grettir
Björnsson og Reynir Jónasson
fluttu lög eftir heiðursfélaga FHUR,
Braga Hlíðberg.
Tónlist Braga er ekkert barnameðfæri,
þó hún hafi virst vera það í höndum snill-
inganna.
Frá vinstri: Reynir Jónasson, Grettir
Björnsson, Bragi Hlíðberg, Ingrid Hlíð-
berg, Hrafnhildur og Jón Hlíðberg.
MOLAR
í norska blaðinu „Trekkspillnytt“
hvetur stjórnandi harmoníkuhljóm-
sveitar útsetjara til að nota alltaf hringi
með punktamerkjum í stað þess að
nota hin hefðbundnu nöfn eins og
Bandon, Organ, Violin o.s.frv. Er bent
á að skrifuðu nöfnin geta verið mis-
munandi eftir tegundum og nefnir sem
dæmi Flute, Sax og Celeste. Telur
stjómandinn hringamerkin skýrari fyr-
irmæli og er þessum ábendingum því
hér komið til skila til þeirra hér á landi
sem fást við að útsetja fyrir harm-
oníku.
Þ.Þ.