Harmoníkan - 30.05.1996, Side 7
Starfsemi Harmoníkufélags Reykja-
víkur frá síðasta aðalfundi 5. apríl
1995
Það má með sanni segja að þetta
starfsár hefur verið viðburðaríkt, svo
varla verður betur gert. Félagar léku á
mörgum stöðum, mörg í hóp og niður í
einleikara, við margskonar tækifæri.
Léttsveitin lék í Ráðhúsi Reykjavíkur
9. apríl nokkur lög og „Bigband" Karls
Jónatanssonar sveiflaði nokkur lög. Þar
með var tónninn gefinn.
Næst kom Hátíð Harmoníkunnar í
Glæsibæ 6. maí, þar sem börn úr skóla
Karls hófu tónleikana. Stórsveitin lék
næst: Unsterbliches Wien, Ungverskan
dans nr. 5, Óla Lokbrá, Gull og Silfur og
Amapola, undir stjóm Karls. Einleikarar
voru: Jóna Einarsdóttir, Ólafur Þ. Krist-
jánsson, Sveinn Rúnar Bjömsson. Kvar-
tett: Karl, Jóna, Sveinn og Sigurlaug.
Gestir voru frá Eyfirðingum undir stjóm
Atla Guðlaugssonar. Einar Guðmunds-
son, Flosi Þ. Sigurðsson, Guðni Friðriks-
son og Hörður Kristinsson léku nokkur
frábær lög. Einleik: Einar Guðmundsson.
Léttir Tónar léku nokkur lög undir stjóm
Grettis Bjömssonar. Eftir tónleikana léku
nokkrar hljómsveitir undir dansi og var
hátíðin vel heppnuð.
Hljóntleikaferð að Bessastöðum
8. júní
Það hefur verið orðtak hjá Karli Jón-
atanssyni þegar nött lag fór að hljóma í
átt við það sem til var ætlast, þá sagði
hann; Þetta er að verða Vigdísarfært. Við
tókum þessu sem hóli fyrir frammistöð-
una, en ekki stæði til að heimsækja for-
setann okkar. Bjöm Ólafur Hallgrímsson,
sem verið hefur blaðafulltrúi okkar,
ákvað að gera þessi orð Karls að raun-
vemlegum atburði. Hvemig sem hann fór
að, var okkur boðið til Bessastaða, og nú
skyldi staðið við stóru orðin. Spenningin
var mikil, en allt lukkaðist vel þó miklar
hringingar hefðu þurft til að tryggja
nægjanlegt lið á raddimar. Viðhafnarsal-
urinn var undirlagður af yfir 30 harm-
oníkuleikurum, gítar, tromma, bassi og
túba voru einnig með í för. Stórsveitin
lék nokkur lög, einleikarar voru Matthí-
as og Jóna Einarsdóttir. Léttsveitin lék 3
lög. Þessir tónleikar eru stór stund í hug-
um okkar félagsmanna. Ulrich Falkner
gullsmiður og formaður félagsins, smíð-
Ulrích Falkner fonnaður Harmoníkufélags Reykjavíkur afhendir forseta Islandsfrú Vigdísi
Finnbogadótturfána félagsins. (mynd: Hraðmyndir/Björn Pálsson)
Hljómsveit Harmoníkufélags Reykjavíkur að spila á Bessastöðum.
(mynd: Hraðmyndir/Björn Pálsson)
aði merki félagsins úr gulli og silfri, á
grástein, og færði forsetanum sem minja-
grip frá félaginu. Öllum er ljóst af hverju
Vigdís forseti er svo vinsæl sem raun ber
vitni, hérlendis sem erlendis, íslandi til
mikils sóma. Hún umvafði okkur eins og
aldavini, og sýndi okkur mikinn sóma
með þessu heimboði.
Hljómleikar í þjónustumiðstöðinni
Aflagranda 40 Þessir tónleikar áttu að
vera 3. júní, og vera æfing fyrir Bessa-
staði en færa þurfti þá til 10 júní. Stór-
sveitin lék nokkur lög, næst kom
léttsveitin og dansaði gamla fólkið undir
spilinu, var þetta hin besta skemmtun.
Ingólfstorg 17. júní.
Vegna lélegrar mætingar varð að hætta
við stórsveitina, en í þess stað voru
léttsveitarlög leikin við frábærar undir-
tektir áheyrenda, sem klappaði spilarana
upp aftur og aftur. Um kvöldið spiluðu
félagar í Glæsibæ þar til Karl og Neist-
amir tóku við.
Vetrarstarf félagsins hófst 27. septem-
ber í Tónabæ. Mæting var góð og ákveð-
ið var að stórsveit og léttsveit æfðu í vet-
ur. Stjómendur yrðu: Karl, Bjöm Ólafur
og Jóhann Gunnarsson.
Hljómleikar í Glæsibæ
(Dagur harmoníkunnar)
Sunnudaginn 15. október voru fyrstu
hljómleikamir og og áttu að vera annan
hvom sunnudag til jóla, en urðu aðeins 3
því 12. nóvember lauk þeim vegna lítillar
7