Harmoníkan - 30.05.1996, Síða 8

Harmoníkan - 30.05.1996, Síða 8
Arnstein Johansen og Sverre Comelius Lund Harmoníkufélag Reykjavíkur stóð fyr- ir Hátíð Harmoníkunnar á Hótel Sögu föstudaginn 3. maí s.l. Samkoman hófst á barnatónleikum, þar sem ungir harm- oníkuleikarar komu fram. Að venju var Karl Jónatansson með flokk ungra harm- oníkuleikara og eins vakti athygli óvenju fjölmennur hópur barna frá Akranesi, en þar fer fram blómleg kennsla í harm- onfkuleik. Næst á dagskrá var svo leikur hljóm- sveitar Harmoníkufélags Reykjavíkur undir stjórn Karls Jónatanssonar, sem flutti nokkur lög en sveitin er sennilega fjölmennasta harmoníkuhljómsveit landsins. Næst komu einleikarar frá H.R. þau Jóna Einarsdóttir, Ólafur Þ. Krist- jánsson sem lék á díatóníska harmoníku, Sveinn Rúnar Björnsson, og þá dúettinn Harmslag (stytt úr harmoníka og slag- verk) sem þau skipa Böðvar Magnússon og Stína Bongó. Aðrir einleikarar voru Garðar Olgeirsson úr F.H.U.R. og Haf- steinn Sigurðsson frá Stykkishólmi. Bæði einlcikarar og dúóið komu fram tvisvar um kvöldið og flutt eitt lag í senn. þátttöku. Æfingar léttsveitar voru til 15. nóvember. Þá tóku við æfingar stórsveit- ar sem urðu 5 sú síðasta 13. desember. Jólatréskemmtun í Ráðhúsi Reykja- víkur 30. desember. Mæðgurnar Svan- hildur Th. og Helga J. Karlsdóttir sungu með 7 félögum á harmoníku, Ólafi Þ., Böðvari, Lýð, Unni, Sigríði Norðkvist, Steindóri og Gyrit. Kjartani gítarleikara og Haraldi bassaleikara. Svanhildur Magnúsdóttir lamdi trommur og Guðríð- ur Adda aðstoðaði á gólfinu. Ekki var annað að sjá en þetta úrvalslið, sem var búið að æfa margoft, gerði lukku. Þá léku félagar á smá uppákomum. Æfingar byrj- uðu aftur 8. janúar 1996. Tónleikar í Ráðhúsi Reykjavíkur 14. janúar, stórsveit lék nokkur lög. Karl lék 2 lög og léttsveitin 5 lög. Danmerkurferð Ákveðið er að taka þátt í hljómleikum á Danmörku 15.- 20. maf, eru 52 skráðir í ferðina. Ætlunin er að spila í Tivoli 16. maí, en síðan verður farið til Alleröd og tekið þátt í móti þar. Farið verður heim aftur 21. maí. Kveðjur til harmomkmmnenda Ólaftir Þ. Kristjánsson Rúsínan í pylsuendanum voru auðvit- að norsku harmoníkuleikaramir, Amstein Johansen og Sverre Cornelius Lund, sem léku m.a. Cornelli og Fredag den 13. (föstudagur 13.) ásamt fleiri lögum Arn- steins. Þessir heiðursmenn hafa spilað meira og minna saman í 32 ár og hafa mátt þola hvor annan allan þennan tíma, eins og sagt var á hátíðinni. Það mátti glögglega heyra á leik þeirra, að þeir voru vanir að spila saman. Ef fólk á ann- að borð kann að meta norska gömludansa tónlist, þá er vart hægt að fá hana öllu betri að mínu mati. En þeir léku ekki bara "gammeldans" heldur einnig suður- ameríska tónlisUóg auðvitað "swing". Þeim til aðstoðar voru Edwin Kaaber á gítar, Ingi Karlsson á trommur og Pétur Urbancic á kontrabassa. Fjölmenni var á hátíðinni og eftir tónleika var síðan stíg- inn dans þar sem bæði félagar úr H.R. léku fyrir dansi og Norðmennirnir ásamt meðleikurum sínum. Arnstein og Sverre fóru til Akureyrar laugardaginn 4. maí, þar sem sem þeir léku ásamt Neistum, Ulrich Falkner og félögum, dúóinu Hramslag og heima- mönnum á tónleikum í Sjallanum við góða aðsókn. Kvöldið eftir léku þeir aftur á Hótel Sögu, en þá var öllu færra, og er kannski ástæðan sú að koma þeirra hafi farið fram hjá mörgum. Við hin getum þó þakkað fyrir að hafa fengið tækifæri til að sjá þá og heyra. Amstein Johansen er fæddur 19. júní 1925 í Fredriksstad í Noregi. Aðeins fjögurra ára hóf hann að læra á klarinett, en faðir hans átti einfalda harmoníku sem hann spilaði á. Varð það til þess að Arn- stein fékk áhuga fyrir hljóðfærinu og 12 ára hafði hann alveg skipt yfir á harm- oníkuna. Aðal kennari hans var að sjálf- sögðu Otar Akre, en hann var þekktur lærimeistari margra góðra harmoníku- leikara. Arnstein fór til New York árið 1949 þar sem hann vann til fyrstu verð- launa í útvarps- og sjónvarpskeppni. Hann hefur þó lítinn áhuga á keppnum og segist sjálfur heldur vilja leika þá tón- list sem áheyrendur hafa áhuga á. Hann hefur útsett um 125 lög auk þess hefur hann samið og útsett 60-70 lög, sem öll hafa verið gefin út. Hann starfar við nótnaforlag í Noregi. Sverre Cornelius Lund er fæddur í Sauda í Noregi 1931. Bæði faðir hans og systir léku á harmoníkur en sjálfur byrj- aði hann að spila 15-16 ára gamall. í tutt- ugu ár lék hann í "Stavanger Radio" 3-4 sinnum í viku, aðallega létta tónlist. Hann hefur farið víða líkt og Arnstein, t.d. leikið með sinfóníuhljómsveit frnnska útvarpsins og sinfóníuhljómsveit- um í Noregi, Svíþjóð og Austurríki. Þá hefur hann samið töluvert af tónlist í þjóðlegum stfl. Hann rekur ásamt syni sínum, hljóðfæraverslun í Osló og hefur m.a. umboð fyrir nokkrar tegundir af harmoníkum. Taldi hann sig nú vera með harmoníkur á lager að verðmæti yfir 200 miljónir íslenskra króna. Þ.Þ

x

Harmoníkan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.