Harmoníkan - 30.05.1996, Qupperneq 12

Harmoníkan - 30.05.1996, Qupperneq 12
E.F. Kvintett. Frá vinstrí eru: Bjarni Adalsteinsson, Óðinn G. Þórarinsson, Eðvarð Friðjóns- son, Asmundur Gttðmundsson og Ríkharður Jóhannsson. og í hvert sinn sem þær voru opnaðar, stóð vindstrokan inn í húsið. Við sátum á sviðinu, dauðloppnir og spiluðum. Við Bjarni Aðalsteinsson spiluðum töluvert tveir saman, eftir að við hættum í E.F., annar á trommur og hinn á harmoníku. Ég var á síldarbát í þrjú ár, 1949, '50 og '51, og spilaði oft á Raufarhöfn ásamt heimamanni sem hét Hilmar, en hann er nú dáinn. Oft var beðið eftir því að bát- urinn sem ég var á kæmi í land, þá var slegið upp balli og gilti þá einu hvaða vikudagur var, ef útlit var fyrir brælu. Um 1952 spilaði ég með Ole Östergaard. Hann spilaði á gítar og hawaii-gítar, og hringdi í mig og bað mig að spila með sér í útvarpsþætti hjá Pétri Péturssyni. Við æfðum saman nokkur lög ásamt konunni hans, sem söng og spilaði á "rythma" gítar. Lögin voru mest spiluð af fingrum fram og eiginlega aldrei tvisvar nákvæmlega eins. Þetta voru fimrn eða sex lög og tekið beint upp einu sinni. Ég hitti Ole svo nokkrum árum seinna, eftir að ég var fluttur austur, og þá var hann svo sár yfir því að þessar upptökur voru týndar. Fyrir þremur árum kom svo í ljós er Svavar Gests var með þætti á sunnudagsmorgnum, að einhver hlustandi í Reykjavík hringir í hann, og segist eiga gamla upptöku með „hawaii“- tríói frá Akranesi, sem hann hafði tekið upp á stálþráð. Svavar spilaði þetta svo í þætti nokkru síðar, og hringdi í mig og lét mig vita. Við konan mín sem eigum fimm börn, fiuttum austur á Fáskrúðsfjörð 1958. Þar spilaði ég meira og minna til 1970, í hljómsveitum sem hétu Mánar og Góbí. Arið 1963 var byggt nýtt samkomuhús, Skrúður. Þar voru oft böll á síldarárun- um, en því ævintýri lauk 1968. Það var árið 1957 sem ég samdi lagið Nú liggur vel á mér, og sendi það í keppni 1958. Áður var ég búinn að senda tvö lög. Heillandi vor 1955, sem ég fékk 1. verðlaun fyrir, en það var hljóðritað með Ingibjörgu Þorbergs og Marz-bræðr- um. Árið áður, 1954 fékk ég 3. verðlaun fyrir Síðasta dans. Það var ekkert tónlistarnám hjá mér fyrr en um 1955. Þá er Tónlistarskólinn á Akranesi stofnaður, en ég var í píanó- tímum veturinn áður hjá Önnu Magnús- dóttur, en hún varð skólastjóri og fyrsti kennari Tónlistarskólans. Ég var við nám hjá henni í tvo vetur, en svo löngu seinna, 1978-9 var ég í einn vetur í Tónlistar- skóla Reykjavíkur. Ég hef fengist við tónlistarkennslu, frá 1970 í tónskóla Fá- skrúðsfjarðar, og á Akranesi, og hef verið við það alveg þangað til í mars á þessu ári. Ég á þriggja kóra Hohner sem er bæði létt og lipur. Ég kann bara ágæt- lega við hana. Ann- ars finnst mér oft tónninn skilja á milli, hvort um al- vöru hljóðfæraleik- ara er að ræða, jafnvel þó að sé Afmæliskveðj an Þó bætist ár við ár og aldur hrímgi brár, æskudraumnum aldrei skaltu týna. Þú geymir söng í sál, hið sanna tungumál elsku vinur upp með þína skál. Enginn skyldi liðinn tíma trega týnt þó hafi staf og mal. Stundum felur þoka vörður vega, vandratað er lífs um táradal. í innsta eðli býr, og áfram manninn knýr áköf löngun eftir fylling vona. Og enn má eygja strönd við ystu sjónarrönd, þar eru okkar æskudraumalönd. Eitiar Georg Einarsson verið að spila einfalt lag. Það er ekki endilega fingralipurðin sem skiptir máli, heldur tónninn. Það er ekkert einfalt að spila einfalt lag. Það er einhver neisti, sem ég tek fram yfir alla lipurð og lær- dóm. Ég á til allnokkuð af lögum, meðal annars sönglög og kórlög, en hef verið afar slakur við að koma þessu á framfæri. Sumt á ég til skrifað og svo er dálítið á böndum. Draumur minn er að koma lög- unum mínum á geisladisk, með góðum mönnum með góðan útsetjara. Eitt þeirra laga sem Oðinn á í fórum sínum er Afmœliskveðjan, og var hann svo vinsamlegur að leyfa okkur að birta nótumar að því lagi og er það á bls. 13. Texti við lagið er eftir Einar Georg Ein- arsson í Hrísey, sem er af mörgum kunn- itr fyrir pistla sína í útvarpi undanfarin ár. Við þökkttm þessttm heiðursmönnum Bjarni Aðalsteinsson situr við trommurnar og Óðinn með harmoník- una. Myndin er tekin í Miðgarði 12

x

Harmoníkan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.