Harmoníkan - 30.05.1996, Qupperneq 14

Harmoníkan - 30.05.1996, Qupperneq 14
HARMONÍKAN Framhald úr síðasta blaði Niðurlag Orgeli sem lýst er af arabíska sagna- ritaranum Ibn Ghaibi, er einnig sagt vera fest á spilarann. Getgátur eru uppi um að Sýrlendingar hafi átt svipuð hljóðfæri. Það er vitað að mörgum öldum seinna voru farandorgel (á ensku ,,portatives“) kynnt á vesturlöndum við hirð Karla- Magnúsar, af Býsönskum umboðsmönn- um, og voru að öllum líkindum framleidd af Sýrlendingum eða Aröbum. Þá er einnig vitað um hljóðfæri af sama skyld- leika, sem var blásið í, með frumstæðan belg og nefndist „Pípur frá Pan". Forn- Rómverjar virðast einnig hafa átt orgel sem fest hafa verið við hljóðfæraleikar- ann, því í Ijóði tileinkað Virgil er kven- hljóðfæraleikara lýst, sem blæs lofti í pípur á orgeli sem er borið, með tveimur belgjum sem er komið fyrir undir upp- handleggjum og lofti dælt með þeim. Leifar af rómversku farandorgeli frá ár- inu 63 hefur verið grafið upp í Pompei (1876) og er til sýnis á þjóðminjasafninu í Napolí (Museo Nazionale). Þegar það fannst, var fest við það keðja, nægjanlega löng til að ná utan um háls manni. Það var með þrjár raðir rétthyrndra gata, 15 í hverri röð komið fyrir á skemmdri brons- plötu, á svipaðan hátt og tónfjaðrir eru settar í konsertínu. Þar sem þessi göt voru með óreglulegu millibili, og tæplega hentug til að blása í með munninum, er trúlegt að hljóðfærið hafi verið með handdrifinn belg sem hefur sennilega glatast. Hinn þekkti söguritari harmoníkunn- ar, Hilding Berquist, telur möguleika á því, að eftir því sem fornleifagröftur eykst, muni fleiri útgáfur af hljóðfærinu, og eintök með útfærslur og gerðir skyld- ar harmoníkunni hugsanlega finnast ein- hvern daginn. Á miðöldum voru tvö færanleg hljóð- færi ríkjandi, Portative og Regal, sem bæði eru skyld harmoníkunni. í Evrópu varð portative fyrst vinsælt á 12. öld í Englandi og á 13. öld breiddist það út um alla Vestur-Evrópu, og varð grunnhljóð- færi í bæði kammermúsík og hljómsveit- artónlist. Vinsældir þess voru engin til- viljun því burtséð frá tærum, hreinum og mildum hljóm, sem hafði aðdráttarafl fyrir endurreisnarsinna, var það einstak- lega hentugt til kennslu sem þakka má hve sérlega auðvelt var að leika á það. Portative var lítið, færanlegt (sem hægt var að bera með sér) ferða/hand- orgel sem var auðvelt að leika á. Það var fest með ólum á spilarann sem lék á hljómborð eða litla þrýstihnappa með hægri hendi og stjórnaði belgnum með þeirri vinstri. Það var framleitt með á bil- inu 6-30 pípum í einni eða tveim röðum. Portative höfðu til að spara pláss, aðeins 2 raðir af nótum þar sem á þeim tíma var enginn krómatískur tónstigi. Seinna á endurreisnartímanum var undantekning- arlaust séð til þess að það var framleitt með venjulegu krómatísku lyklaborði með tveim röðum af nótum sem gaf alla tóna í krómatíska tónstiganum. Þrátt fyr- ir þessar endurbætur var portative á und- anhaldi því það var of lítið, með veigalít- inn tón og óhentugt til að spila sam- hljóma sem voru notaðir í hinni nýju endurreisnartónlist. Þegar komið var fram á Barokk og Rococo tímabilið, er portative helst notað í skrúðgöngum. Portative varð með tímanum sífellt þyngra, og tvo eða fleiri þurfti til að handleika það. Hin aukna þyngd þess varð einfaldlega vegna þess að í það voru settar fleiri raddir. Portative var stundum líkt við smáorg- el og Francesco Landino, frægur mið- aldatónsmiður og organisti frá Flórens, náði athyglisverðri hylli fyrir leikni sína á hljóðfærið. Það er ekki ósennilegt að Landino (1324-1390) hafi samið tónlist fyrir portative þó svo að engar heimildir finnist um slíka tónlist. Samt sem áður er greint frá því að Michaelangelo Rossi hafi skrifað Miniature fyrir portativeorg- el á 17. öld. Þetta tónverk hefur verið leikið á nútíma orgel af E. Power Biggs. Næst skulum við beina sjónurn okkar að öðru hljóðfæri sem heitir Regal. Það er það hljóðfæri sem er fyrirmynd að nú- tíma harmóníum, en það hafði tóna sem slegið var í, í stað tónfjaðra. Ásláttartón- ar sem voru settir í orgelið fengu nafn sitt af þeirri staðreynd að tónfjaðrimar snertu hliðar rammanna. Ásláttartónarnir komu fram á sjónar- sviðið á 15. öld en urðu ekki almennir fyrr en þeir voru settir í regal eða sem hluti orgels. Vitað er að regal var notað í nunnuklaustrum til undirleiks við söng nunnanna. Regal fékk nafnið „Biblíu- Regal" á 16. öld þegar George Voll frá Nurnberg líkti því við lokaða biblíu. Biblíu-regal var með tvo belgi sem hægt var að taka af og brjóta saman. Til að auðvelda flutning var samanbrotnu hljóð- færinu pakkað inn í belgina og þannig leit það út sem lokuð biblía. Biblíu-regal var þaulúthugsað hljóðfæri, til að gleðja og seðja fólk 16. aldar sem heillaðist af töfrum tækniundursins. Á 17. öld var regal aðallega notað sem bassi sem þjón- aði því hlutverki prýðilega. Það var sér- staklega smíðað til að spila undir fyrir flokk af básúnum, vegna þess hvað það hafði hljómmikinn og kröftugan tón. Monteverdi (1567-1643), vinsælt tón- skáld síns tíma, notaði regal í ópem sinni „Orfeo" sem var skrifuð fyrir 36 hljóð- færi, og er sögð hafa borið allt það sem enn er dáð, sem ný túlkun í óperu. Á 18. öld, með allri sinni ást á viðkvæmni, urðu fráhvörf á vinsældum regal með slíkum hörðum, ströngum og ójöfnum tónum. Johann Mattheson (1681-1764) sem ritaði samantekt um tónlist, ásamt því að rita um tónlistarfræði, hafði sér- staka andúð á regal, sem hann lýsti þannig að það einkenndist af fmntaskap og einstaklega viðbjóðslegt, þó að notkun þess hafi ekki náð fram yfir 18. öldina. í stuttu máli sagt, getum við séð, að fyrir 18. öldina voru 3 hljóðfæri „ættfeð- ur" harmoníkunnar. Harmoníkan og cheng eiga það sameiginlegt að hljóð þeirra em mynduð með titrandi tónfjöður. Mismunurinn er sá að annað fær loft 14

x

Harmoníkan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.