Harmoníkan - 30.05.1996, Síða 19
steypta hóp sem öll fjölskyldan getur
fundið sig í.
Von okkar beindist einnig að því með
því að koma á harmoníkumóti gæfust
enn fleyri tækifæri fyrir þetta fólk að eiga
ánægjustundir. Það hefur gengið eftir því
fleiri harmoníkufélög hafa tekið upp
ámóta form.
Hápunktur harmoníkustarfsins eru
landsmótin á þriggja ára fresti sem orðin
eru með stærstu mannfögnuðum á land-
inu.
Ég er nánast viss um að ef mótanna
milli landsmóta nyti ekki við eða jafnvel
blaðsins, stæði þessi hópur ekki eins þétt
saman. Kjami harmoníkufólksins sem ég
er alltaf að vitna til er úr öllum stéttum
þjóðfélagsins, ungir og gamlir en vinnur
og leikur sér saman eins og jafningjar.
Það sem ég er líka að reyna að jamla
um er þessi óhemju uppbygging með
harmoníkunni í landinu hún má alls ekki
glatast heimildalega séð og er ekki síður
stórt innlegg í tónlistarsögu landsmanna.
Til fróðleiks má geta þess að blaðið hefur
alltaf verið sent til Landsbókasafnsins og
nú í Þjóðarbókhlöðuna frá því hún tók
við.
/ síðustu 4 ár hefur Eiríkur Sigurðsson veð-
urfrœðingur verið prófarkalesari.
Mín lokaorð að þessu sinni eru, ef við
viljum ekki láta starf og gleðistundir okk-
ar glatast er rétta leiðin að gera harm-
oníkublaðinu kleyft að lifa.
Utgefendur blaðsins vilja á þessum
tímamótum senda öllum áskrifendum
blaðsins bestu kveðjur og þakkir, sem og
öllum gestum á mót Harmoníkunnar.
Jafnframt viljum við þakka Sambandi
Islenskra Harmoníkuunnenda fyrir stuðn-
ing og skilning, sem og formönnum land-
sambandsfélaganna og fulltrúum.
Að öðru leyti eigum við hjálparhellur
um allt landið sem of langt yrði upp að
telja, hvort heldur það eru skrifarar,
teiknarar, laga - og texstahöfundar eða
auglýsendur, og allir þeir sem stappað
hafa í okkur orku og kjarki, alúðar þakk-
ir.
Prófarkalesari fyrstu árin var Högni
Jónsson harmoníkuleikari. Nú síðari ár
hefur Eiríkur Sigurðsson veðurfræðingur
séð um að lesa blaðið vel og vandlega
fyrir prentun. Kunnum við þessum
mönnum bestu þakkir. Án prófarkalest-
urs væri blaðið ekki nema svipur hjá
sjón.
Eins og glögglega má sjá í blöðunum
umliðin 10 ár er þar urmull mynda. Við
höfum sem kostur er reynt að sneiða hjá
myndum af okkur sjálfum. í myndasyrp-
unni hér í blaðinu vegna afmælisins ger-
um við undantekningu og birtum myndir
frá starfi okkar sem tengst hefur blaðaút-
gáfu og mótshaldi.
Með harmoníkukveðjum.
HH.
Harmoníkan,
nokkrar svipmyndir
liðinna ára
1986-1996
Gengið frá blaðinu til
póstdreifingar í maí
1993.
2.-5. ágúst 1996
MUNIÐ MÓT HARMONÍKUNNAR
í ÞRASTASKÓGI UM
VERSLUNARMANNAHELGINA
19