Harmoníkan - 30.05.1996, Síða 23
á landsmóti
Hinn þekkti stjórnandi prófessor og konsertmeistari Vladimír Cuchran frá Slóvakíu.
Eins og lesendum er flestum kunnugt
er væntanlegur gestur á landsmót
S.Í.H.U. í sumar, harmoníkuleikari að
nafni Vladimír Cuchran. Hann hefur get-
ið sér góðan orðstýr undanfarið, en upp-
lýsingar um hann eru heldur af skomum
skammti, en þó má sjá af myndum að
hann leikur á píanóharmoníku. Til er stutt
yfirlit um feril hans gefnar út árið 1983,
og hinsvegar upplýsingar um harmoníku-
hljómsveit sem hann stjórnar - Harm-
onrkuhljómsveit Kosice Tónlistarháskól-
ans í Slóvakíu. Hér er lausleg þýðing á
upplýsingunum frá 1983:.
V. Cuchran stundaði nám í harm-
oníkuleik hjá L. Solaj við tónlistarháskól-
ann í Kosice. Hann stundaði framhalds-
nám við Franz Liszt Akademíuna í
Weimar, undir leiðsögn I. Slota-Krieg.
Þegar á námsárum sínum hlaut hann
margvíslegar viðurkenningar, bæði
heima fyrir og eins í alþjóðlegum keppn-
um. Árið 1959 og eins 1961 vann hann
keppni „Skapandi ungs fólks“ í sínu
heimalandi. Hann varð einnig vinnings-
hafi í keppni harmoníkuleikara í Brat-
islava 1968, Zilina 1969 og Horovice
1970. Hann var heiðursgestur á alþjóð-
legum keppnum í Klingenthal í Þýska-
landi, Pavia á Italíu og Salzburg í Aust-
urríki. Árið 1969 tók hann þátt í ráð-
stefnu um harmoníkuleik í Trossingen í
Þýskalandi. Þá hefur hann um langt tíma-
bil haldið námskeið við Tónlistarháskól-
ann í Kosice. Á árunum 1980 - 1985 var
hann valinn sem stjórnandi Fílharmoníu-
hljómsveit ríkisins í Kosice. Vladimír
Cuchran hefur margoft komið fram í
heimalandi sínu og að auki í Hollandi,
Austurríki, Rússlandi, Póllandi, Þýska-
landi, Júgoslavíu, Ungverjalandi, Eg-
yptalandi og Ítalíu. Staða hans sem harm-
oníkuleikara í heimalandi sínu sést best á
góðu sambandi hans við þarlend tón-
skáld.t.d. Hatrik, Podprocký, Trojan,
Matys, Feld og fleiri. Hann hefur gert
fjölda hljóðritana fyrir Tékkóslóvenska
útvarpið og sjónvarp, og eins fyrir plötu
og útgáfufyrirtækið Opus. Vladimír
Cuchran varð fyrsti Slóvanski harm-
oníkuleikarinn til að hljóðrita og gefa út
eigin tónverk á hljómplötu. Uppistaðan á
efnisskrá Vladimír Cuchran er að mestu
tónlist 20. aldar, en einnig má þar finna
nokkur orgel og harpsicord tónsmíðar
eldri meistara. Listamaðurinn leikur oft-
ast verk slóvanskra höfunda á sinn sér-
stæða hátt. Með mikla tækni, tilfinningu
fyrir nútíma tónlist, frábæran smekk, fág-
aða framkomu og djúpan skilning á þeim
tónverkum sem hann flytur, og frábæran
sveigjanleik í túlkun sem gefur honum
gott vald á efninu. Vladimír Cuchran er
einnig höfundur af kennsluefninu „Kaflar
á Harmoníku".
Hér fara svo upplýsingar frá árinu
1994 um Harmoníkuhljómsveit Kosice
Tónlistarháskólans í Slóvakíu.:
Harmoníkuhljómsveit Kosice Tónlist-
arháskólans í Slóvakíu var stofnuð vegna
tónleikahalds 1987. Á tónleikahaldi í
gegnum árin hafa margir ungir tónlistar-
menn tekið þátt, gegnumsneitt nemendur
Tónlistarháskólans og því hefur starf í
svona hljómsveit verið erfiðara og kröfu-
harðara en venja er um svipaðar hljóm-
sveitir, en um leið eftirvæntingarfyllri. Á
sex ára ferli hefur harmoníkuhljómsveit-
in unnið nokkur verðlaun, ekki bara í
heimalandi okkar heldur einnig erlendis.
Mikilvægasti árangur voru 1. verðlaun í
borginni Daugavpils í Litháen 1989. Ári
seinna I. verðlaun á alþjóðlegri harm-
oníkuhátíð lítilla hljómsveita í Prag, og
önnur verðlaun á sömu hátíð ári seinna
1991, í Bremerhaven í Þýskalandi. í
sterkri keppni þrjátíu og þriggja hljóm-
sveita í erfiðasta riðli í Innsbruck í Aust-
urríki 1992, náði hljómsveitin fjórða sæti
og einhverja mestu viðurkenningu hlaut
hljómsveitin er hún náði í önnur verðlaun
í keppninni "Premio Internazionale Citta
di Castelfidardo" á Ítalíu 1993. Hljóm-
sveitin hefur komið fram á fjölmörgum
tónleikum bæði innanlands og utan. Hún
hélt fema tónleika á Kýpur sumarið 1994
og sama sumar var henni boðið að halda
tónleika í Finnlandi og einnig á Spáni.
Stjórnandi harmoníkuhljómsveitarinnar
er hinn þekkti harmoníkuleikari Vladimír
Cuchran. Efnisskrá hljómsveitarinnar er
afar fjölbreytt, af mismunandi toga, allt
frá barok til tónlistar tuttugustu aldarinn-
ar. Hljómsveitin hefur leikið í slóvenska
útvarpinu og sjónvarpi auk þess sem
hægt er að fá leik hennar á hljómsnæld-
um. Hún er eina hljómsveitin sem gefur
út harmoníkutónlist um þessar mundir í
Slóvakfu (1994).
Þó þessar upplýsingar séu ekki tæm-
andi, má þó vel sjá að hér er á ferðinni
maður með glæsilegan feril. Því miður er
hvergi hægt að sjá í þeim upplýsingum
sem við höfum, hvenær Vladimír er
fæddur, en telja má líklegt að hann sé lið-
lega fimmtugur miðað við þau verðlaun
sem hann vann til árið 1959. Við höfum
einnig heyrt því fleygt að hann muni
reyna að hafa aðgengilega tónlist á efnis-
skránni, þannig að sem flestir muni njóta
hennar. Við munum því eiga von á
skemmtilegum tónleikum með honum á
landsmótinu í sumar. . .
Þ.Þ.
23