Harmonikublaðið - 01.04.2002, Page 3
HARMONIKUBLAÐIÐ
FRA RITSTIORN
Ábyrgðarmaður:
Jóhannes Jónsson
Barrlundi 2 600 Akureyri
Sími 462 6432, 868 3774
Netfang: johild@simnet.is
Ritvinnsla:
Hildur Gunnarsdóttir
Prentvinnsla:
Alprent
Netfang: alprent@nett.is
Meðal efnis
• Viðtal við Ragnar
Víkingsson, Hrísey
• Lars Holm á
íslandi
• Húnaver 2002
• Þröstur
Sigtryggson
• Svíðþjóðarbréf
• Færeyjaferð
• Afmælisfagnaður
Nikkolínu
• Harmonikulands"
mót á ísafirði
Auglýsingaverð:
Baksíða 1/lsíða kr. 12.000
“ l/2síða kr. 6.000
Innsíður 1/lsíða kr. 11.000
ii l/2síða kr. 6.000
l/4síða kr. 3.500
ii l/8síða kr. 2.500
smáauglýsing kr. 1.500
Fylgt úr hlaði
Ágætu lesendur!
Það er mér mikil ánægja að fylgja úr hlaði þessu nýja blaði sem gefið er út á vegum
Sambands íslenskra harmonikuunnenda. Blaði þessu, sem fengið hefur nafnið HARM-
ONIKUBLAÐIÐ, er ætlað að koma í stað blaðsins Harmonikan sem hætti göngu sinni á
vordögum 2001. Af þessu tilefni vil ég þakka þeim Hilmari Hjartarsyni og Þorsteini Þor-
steinssyni fyrir þann dugnað að gefa blaðið út svo lengi sem raun ber vitni. Blaðið Harm-
onikan hóf göngu sína haustið 1986 og kom það reglulega út í 15 ár, alls 45 blöð. Fyrstu
10 árin sáu þeir Hilmar og Þorsteinn þáðir um útgáfuna, en Hilmar einn síðustu 5 árin.
Ekki er vafi á því að útgáfa blaðsins þessi 15 ár hefur haft afgerandi árhrif á þau tengsl
sem myndast hafa milli harmonikufélaga landsins. Heimildargildi blaðsins er einnig
ótvírætt og mun vaxa er fram líða stundir.
Við hjá Sambandi íslenskra harmonikuunnenda sem stöndum að útgáfu á nýja harm-
onikublaðinu vonum að þið takið því vel, verðið dugleg að senda efni í blaðið og notfær-
ið ykkur þá möguleika sem þar þjóðast. Skoðanir ykkar á öllu því sem snertir harmonik-
una, velgengni hennar og möguleika í framtíðinni, eiga erindi í þetta þlað, ásamt öðru
efni sem ykkur harmonikuunnendur góðir finnst að þar eigi heima.
Bestu þakkir til allra þeirra sem sendu efni í blaðið og annarra sem stuðlað hafa að út-
gáfu þess.
Með harmonikukveðju
Jóhannes Jónsson
Forsíðumyndirnar
Forsíðumyndirnar eru af Hafsteini Sigurðssyni og nemend-
um hans í Tónlistarskóla Stykkishólms.
Hafsteinn er búinn að kenna við skólann á harmoniku, tré-
blásturshljóðfæri o.fl.o.fl. frá árinu 1976 að undanskildum
þremur árum (1980-1983) þegar hann dvaldi f Noregi við
smíðar og nám að hluta. Hann lærði þar dálítið á klarinett en
er alveg sjálfmenntaður á nikkuna. í vetur er hann með 7 harmonikunem-
endur, 5 þverflautunemendur, 3 nemendur á alt-flautu og 1 nemanda á
klarinett. Einnig kennir hann öllum í 1. bekk Grunnskólans og nokkrum
úr 2. bekk á blokkflautu. Auk þess er hann með samleikstíma fyrir harm-
onikurnar.
Á efri mynd til hægri eru: Frá vinstri: Baldur Ragnars Guðjónsson, Mattías Amar
Þorgrímsson, Olga Árnadóttir og nýjasti meðlimurinn, Fanney Sumarliðadóttir. Þessi
hópur hefur æft og spilað saman undanfarin 5 ár ásamt kennara sínum, nema Fann-
ey sem hefur verið með í tvö ár.
Á efri mynd til vinstri eru: Frá vinstri: Hrafnhildur Sif Sævarsdóttir og Dagný Elísa
Þorsteinsdóttir. Hrafnhildur er á öðru ári í náminu og Dagný á því fyrsta. í vetur hafa
þær líka æft samleik ásamt kennara sínum og byrja f harmonikusveitinni næsta
haust.
Á neðri myndinni eru: í fremri röð frá vinstri: Hrafnhildur Sif Sævarsdóttir og Dagný
Elísa Þorsteinsdóttir. í aftari röð frá vinstri: Baldur Ragnars Guðjónsson, Mattías Arn-
ar Þorgrímsson, Erna Rut Kristjánsdóttir, Fanney Sumarliðadóttir og Olga Árnadóttir.
Á myndinni í miðjunni er: Hafsteinn Sigurðsson kennari.
Til sölu
DÍATÓNÍSK HARMONiKA,
„VIENER“,
1 vandaðri tösku. Verð kr 40 þús.
Uppl. hjá ÓlaTh 1 síma 482 1659.
Netfang: oligyda@simnet.is
Til SÖIU EÐALHLJÓÐFÆRI, MENGASCINI hnappaharmonika, 96 bassa, 81 nóta, 5 skiptingar í diskant, 2 í bassa. Mjög lítið notuð. Ákaflega vel með farin. Verð: 300 þús. (Kostar ný um þessar mundir um 400 þús.) Uppl. hjá Óla Th. I síma 482 1659. Netfang: oligyda@simnet.is
E9T