Harmonikublaðið - 01.04.2002, Blaðsíða 4

Harmonikublaðið - 01.04.2002, Blaðsíða 4
VIÐTAL HARMONIKUBLAÐIÐ Ragnar Víkingsson Ritstjóra Harmonikublaðsins lék forvitni á að kynnast sjómannin- um og harmonikuleikaranum Ragnari Víkingssyni og lífshlaupi hans. Ragnar er giftur Maríu Kristófersdóttur frá Hrísey og eiga þau 3 uppkomin börn. -Hvar ertu fæddur og hverjir voru foreldr- ar þínir? Ég er fæddur í Grímsey 1936, ólst þar upp og átti þar heima til 23ja ára aldurs. For- eldrar mínir voru Sigurveig jónsdóttir og Víkingur Baidvinsson. Það má segja að ég hafi aiist upp við harmonikuspil því faðir minn var aðal ballspilarinn á þeim árum. Vegna óhapps hætti hann þegar ég var 8 eða 9 ára. Þannig var að hann þurfti að senda nikkuna í viðgerð til Reykjavíkur. Póstmeistarinn tróð henni ofan í póstpok- ann og hún fór í mél í flutningnum, þá hætti hann og eignaðist ekki hljóðfæri aft- ur fyrr en um sjötugt. Ég átti vin á næsta bæ, sem er Óli Ólason nú þekktari sem mikill aflamaður og býr enn í Grímsey. Óli var farinn að spila og átti ágætt hljóðfæri, til hans fór ég all oft og fékk að æfa mig og lærði heilmikið af honum. Það kom fyrir að Óli færi á vertíðir úr eynni, þá hafði ég ekk- ert hljóðfæri svo ég samdi við prestinn, séra Róbert Jack, og fékk að æfa á kirkju- orgelið. Það var í lagi en með því skilyrði að ég spilaði ekki danslög. Þessu lofaði ég auðvitað en sveik það um leið og ég var orðinn einn. Þetta komst allt upp og ég fékk einhverja smá áminningu, en við vor- um mestu mátar eftir sem áður enda vissi prestur að ég var farinn að spila á dans- leikjum. Þegar þetta var hef ég verið 11 eða 12 ára. Ég eignaðist fyrstu nikkuna 14 ára gamall, keypti litla nikku Pietro 24 bassa, af síldarsjómanni frá Grundarfirði. Síðan fór þetta að smá koma og ég fór að hvíla Óla á böllum, kunni þá 4 eða 5 lög. Á þess- um árum var mikið af útlendum síldarskip- um hér við land og f brælum lágu kannski um og yfir 100 skip við eyjuna og kannski dansað á hverju kvöldi. Ég fór snemma að fara á böll eingöngu til að hlusta á Norð- mennina eða Svíana spiia. Þeir voru margir mjög góðir. Þó að Svíar séu kannski þekkt- ari hér á landi í dag sem harmonikuleikarar fannst mér einhvern veginn Norðmennirn- ir alltaf betri. Fótbolti var vinsæll í Grímsey á þessum árum og jafnaldrar mínir allir með, þess vegna var hlegið að mér þegar aðrir voru komnir í fótboltagallann var ég T.v. Ragnar að heimili sínu í Hrísey með Brandoni Casetto 4 kóra nikkuna sína. Fyrsti eigandi mun hafa verið Reynir Jónsson. Að neðan: Ragnar 15 ára með fyrstu alvöru nikkuna, Paoló Soprani 4 kóra. Hrísey kominn í betri fötin og farinn á ball. Ég gat bara ekki sleppt músikinni. Við Óli spiluð- um svo saman þar til ég flutti til Hríseyjar 1959. Nú, ég fór að spila á böllum í Hrísey og hér í nágrannabyggðum allt fram á áttunda áratuginn. Stundum spiluðum við saman 2 eða 3 af svæðinu og var það strax léttara. Þetta var stundum erfitt að vera á sjó alla vikuna og spiia svo um helgar því þá voru engir magnarar. Ég hef stundað sjóinn frá fermingu eða rúm 50 ár, og þetta fór ekki alltaf vel saman. Svo fór að draga úr þessu þegar gítarinn tók völdin. Við stofnuðum hér hljómsveit sem hét Eymenn og spiluð- um í ein tvö ár, þá fluttu flestir meðlimirnir burtu og ég varð einn eftir. Síðan að mig minnir upp úr 1980 voru stofnuð hin ýmsu harmonikufélög, þá vaknaði áhuginn á ný. Síðan hef ég kynnst fjölda góðra harmon- ikuleikara um allt land, til dæmis á lands- mótum. Þeir eru margir mjög góðir og erfitt að dæma. Þó finnst mér engin spurn- ing, að gömlu meistararnir okkar þeir Bragi Hlíðberg, Grettir Björnsson og Reynir ión- asson standa enn upp úr, svo og mikið yngri maður Einar Guðmundsson sem býr á Akureyri. Upp úr 1980 fórum við Hafliði Ólafsson, sem er ágætur spilari, að spila

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.