Harmonikublaðið - 01.04.2002, Qupperneq 6
NÁMSKEIÐ
HARMONIKUBLAÐIÐ
Lars Holm á
Samband íslenskra harmoniku-
unnenda stóð fyrir tveim
námsskeiðum fyrir
harmonikukennara á s.l. ári.
Það fyrra dagana 12-14 janúar og hið síð-
ara 26-28 október. Kennari var sænski
harmonikusniilingurinn Lars Hoim sem
hefur á undanförnum árum unnið mjög
gott starf í því að hefja harmonikuna til
vegs og virðingar.
Fyrir um það bil 7 — 8 árum var gert
átak í því að fá harmonikukennslu tekna
upp við tónlistarskóla á íslandi. Það tókst
með þeim árangri að í dag er stunduð
harmonikukennsla í u.þ.b 30 tónlistarskól-
um af 90 skólum.
Góður árangur en betur má ef duga skal.
Vandamál tónlistarskólanna er að fá hæfa
kennara tii starfa og er það að hluta
ástæða þess að harmonikukennsla hefur
ekki verið tekin upp allstaðar.úr þessu þarf
að bæta.
Fyrir nokkrum árum voru Tatu
Kantomaa harmonikuleikari og Guðni
Fransson klarinettuleikari fengnir til þess
að sjá um kynningu á harmonikunni og
harmonikutónlist í grunnskólum á höfuð-
borgarsvæðinu. Þetta gaf góða raun og
þarf að halda þessari kynningarstarfsemi
áfram.
SIHU hefur einnig staðið fyrir nám-
skeiðum fyrir harmonikukennara. Það
fyrsta ásamt hljóðfæraverslun . Leifs
H.Magnússonar, með harmonikusnillingn-
um og kennaranum Renzo Ruggieri haust-
ið 1996 og svo á s.l. ári með Lars Holm
eins og áður er um getið.
Fyrra námskeiðið var haldið í Reykholti
12. - 14. janúar '01
Það sem Lars lagði upp með tii kennsl-
unnar var að kynna fyrir okkur harmoniku-
tónlist frá hinum ýmsu þjóðum. Skemmst
er frá því að segja að námskeiðið var hrein
opinberun og mikil upplifun að spiia og
hlusta á frábæra tónlist, og kynnast hinni
miklu kunnáttu og tækni þessa frábæra
kennara.
í lok námskeiðsins fengum við séra Geir
Waage til að sýna þátttakendum sögustað-
inn Reykholt og síðan bauð hann til
Snorrastofu og sagði sögu staðarins á
Lars Holm
kjarnyrtri skandinavísku sem allir skildu.
Ég ók svo með Lars upp að Barnafossi í
Hvítá til að sýna honum eitt af mörgum
náttúrufyrirbærum iandsins og svo var
komið við í Biáa lóninu í leiðinni á flug-
völlinn.
Það var svo ákveðið að stefna að öðru
námskeiði með haustinu. Það var miklum
erfiðleikum háð því handhafi Hagströms-
verðlaunanna árið 2001 og harmonikuleik-
ari ársins í Svíþjóð, Lars Holm var mjög
upptekinn við konsertspil og uppákomur
alls konar svo sem sjá má af grein í blað-
inu Dragspels- Nytt. Það tókst þó að finna
eina helgi sem var nothæf til þess að koma
til íslands, helgina 26. - 28. október.
Ákveðið var að halda námskeiðið að
Laugum í Sælingsdal, svona álíka mið-
svæðis og Reykholt. í samtölum við kenn-
ara virtist feikna mikill áhugi og við reikn-
uðum með í kring um 20 þátttakendum.
Ekki veit ég hvort það, að verkfall tónlistar-
kennara stóð yfir eða eitthvað annað sem
olli því að helmingur þeirra sem hafði fram
á síðustu stund ekki talað um annað en
mæta létu ekki sjá sig. Ég verð að játa að
mig skortir skynsemi tii að skilja þetta. Það
er mikill skaði fyrir kennslustarfið að ekki
komu fleiri kennarar til að nýta sér þetta
tækifæri til að afla sér menntunar, ekki
veitir af, því vel flestir harmonikukennarar
hafa harmonikukennsluna sem aukabú-
grein, eru lærðir á eitthvert annað hljóð-
færi.
Þessir dagar á Laugum voru frábærir.
Lars keyrði okkur áfram frá því kl. 9 á
aw
íslandi
Guðmundur Samúelsson
morgnana og til kl.22 á kvöldin. Hann tók
fyrir brasilíska og argentíska músik o.fl.
sem hann matreiddi af sinni einstöku
snilid fyrir okkur. Einnig kynnti hann fyrir
okkur hljómsveitamúsik og lét okkur æfa
nokkur lög.
Svo ánægður var Lars með okkur
þ.e.a.s. Hljómsveit harmonikukennara á ís-
landi að hann taldi það mikinn skaða að
hljómsveitin gæti ekki starfað og spilað
vegna þess hve búseta meðlimanna er
dreifð.
Þegar hlé var gert á kennslunni sýndi
Lars okkur myndbandsspólur af ýmsum
uppákomum í hans iífi að undanförnu.
Ég veit ég tala fyrir munn allra þeirra
sem á námskeiðinu voru þegar ég segi
Kærar þakkir til Sambands íslenskra
harmonikuunnenda fyrir að standa fyrir
námskeiðum með þessum frábæra tónlist-
armanni.
Fyrir námsskeiðið átti Lars frí í einn
dag, þar sem hann hafði ekki neitt ákveðið
í huga hvernig hann ætlaði að nota það
datt mér í hug að skipuleggja smá útúr-
dúra á leiðinni að Laugum, því glaða sól-
skin var og við höfðum rúman tíma. Við
ókum Krísuvíkurleiðina frá Keflavík til
Reykjavíkur, snæddum léttan mat í Ráð-
húsinu og gengum um miðborgina. Sfðan
ókum við um Mosfelisheiði á Þingvöll og
þaðan vestur að Laugum.
Eftir að námskeiðinu lauk ókum við
Lars út Fellsströnd og um Skarðsströnd til
baka og gistum áfram á Laugum þar sem
Lars tók til við að troða í hausinn á mér
alls konar fróðleik um kvöldið.