Harmonikublaðið - 01.04.2002, Page 10
FRETTAPISTILL
HARMONIKUBLAÐIÐ
Harmonikulandsmót
á ísafirði
Á landsmótinu á Siglufirði áríð
1999 var Harmonikufélagi
Vestfjarða falið að
halda næsta landsmót
harmonikufélaga áríð 2002.
Undirbúningur hófst þá þegar
með því að tryggja íþróttahúsið
á Torfnesi fyrir tónleikahald og
lokadansleik mótsins.
Einnig lá þá fyrir ákvörðun
um að mótið stæði
dagana 4. - 7. júlí.
Lausleg dagskrá mótsins
er sem hér segir:
Fimmtudagur 4. júlí
Mótsgestir koma til ísafjarðar að deginum
og fram á kvöld. Upplýsingamiðstöð og
miðasala verður opin fram eftir kvöldi.
Mótsgestir koma sér fyrir á gististöðum og
tjaldstæðum. Hugsanlega óvæntar uppá-
komur.
Föstudagur 5. júlí
09:00 Hljóðprófanir í íþróttahúsi
13:00 Mótssetning
13:30 Tónleikar félaga
17:00 Opnað harmonikusafn
Ásgeirs S. Sigurðssonar
22:00 Dansleikir í 3-4 húsum, hljómsveitir
hinna ýmsu félaga leika fyrir dansi.
Laugardagur 6. júlí
13:30 Tónleikar félaga í íþróttahúsinu
17:00 Tónleikar heiðursgesta
Annika Anderson og Lars Karlson
frá Svíþjóð
22:00 Stórdansleikur í íþróttahúsinu á
Torfnesi
Sunnudagur 7. júlí
Harmonikusafn og sýning á hljómplötum
Sigurjóns verða opin fram eftir degi.
Heimferð mótsgesta.
Þetta eru drög að dagskrá og getur eitt-
hvað breyst. Baldur Geirmundsson hefur
ísafjörður
samið og útsett landsmótslag sem flutt
verður sameiginlega af öllum harmoniku-
leikurum á mótinu, lagið er fjörugt og gríp-
andi. Nótur hafa verið sendar öllum for-
mönnum harmonikufélaga. Einnig er hægt
að fá þær hjá undirbúningsnefnd.
Sýning á hluta af hinu stórmerkilega
hljómplötusafni Sigurjóns Samúelssonar á
Hrafnabjörgum verður mótsdagana. Sigur-
jón verður á staðnum og spilar fágætar
upptökur af hljómplötum frá m.a. fyrstu
áratugum síðustu aldar, aðallega harmon-
ikutónlist, en einnig býr Sigurjón yfir haf-
sjó af fróðleik um plötuútgáfu og harmon-
ikutónlist.
Aðal tjaldsvæði mótsins verður á tún-
inu við gamla sjúkrahúsið í miðbæ ísa-
fjarðar. Einnig eru tjaldstæði við Mennta-
skólann og íþróttahúsið. Þá er mjög góð
aðstaða fyrir húsbíla við Sjóminjasafnið í
Neðstakaupstað. Ekki má gleyma tjald-
stæði á hinum fagra stað, Tunguskógi.
Undirbúningsnefndin gerir sér ljóst að
dagskrá mótsins er mjög mikil og all löng á
föstudag og laugardag, þannig að upplagt
er að lengja dvölina um nokkra daga eftir
mótið. í nágrenninu eru margir áhugaverð-
ir staðir, s.s. Ósvör í Bolungarvík og báts-
ferð í náttúruperluna Vigur verður öllum
ógleymanleg. Einnig má benda á vinsælar
ferðir til Hesteyrar í Jökulfjörðum. Rétt er
að benda mótsgestum á þann möguleika
Mynd: Haukur Snorrason
að fara hringferð um Vestfirði, þ.e. að
koma til ísafjarðar um ísafjarðardjúp, en
fara til baka um Vestfjarðagöng áleiðis að
Flókalundi og þaðan annað hvort landleið-
ina um Barðaströnd, eða með Baldri yfir
Breiðafjörð að Stykkishólmi.
Varðandi nánari upplýsingar um ferða-
möguleika á þessu svæði má benda á
ferðaskrifstofuna Vesturferðir í síma
456-5111.
Með von um að sjá sem flesta
á Harmonikulandsmóti
f.h. undirbúningsnefndar
Ásgeir S. Sigurðsson
Allar nánari upplýsingar um landsmótið er
að finna á vef Harmonikufélags Vestfjarða.
http://www.vestfirdir.is\harmonika
Hið árlega Breiðumýrarmót
Harmonikufélags Þingeyinga og
Félags Harmonikuunnenda við Eyjafjörð
verður haldið helgina
26.-28. júlí 2002.
Nánar auglýst í næsta blaði.
m