Harmonikublaðið - 01.04.2002, Qupperneq 12
FERÐASAGA
Færeyiaferd
Félags harmonikuunnenda og kórs 9 eldriborgara Norðfírði 7.-14. júní 2001
Um kl. 9 að morgni dags 7. júní 2001 lagði
68 manna hópur af stað frá Neskaupstað í
sólskini og fallegu veðri og var ferðinni
heitið til Færeyja.
Þessi fjölmenni hópur samanstóð af félög-
um úr Félagi harmonikuunnenda Norðfirði
og Kór eldriborgara Norðfirði ásamt mök-
um og öðru stuðningsfólki.
Aðal tilgangur ferðarinnar var skemmtiferð
en að sjálfsögðu átti að spila, syngja og
dansa í ferðinni og endurgjalda heimsókn
ÁFH, en það er félagsskapur harmoniku-
leikara í Færeyjum, sem heimsótti okkur í
júlí 1999 á ferð sinni um ísland.
Félag eldriborgara hafði rútu til umráða
alla ferðina en félagar í félagi harmoniku-
unnenda fóru á sínum einka bílum og var
það tilkomumikil sjón að sjá þegar hópur-
inn lagði af stað áleiðis til Seyðisfjarðar en
þar átti að fara um borð í Norrænu sem
flytja átti okkur yfir hafið. Þetta var reyndar
ekki fyrsta ferð Félags harmonikuunnenda
Norðfirði til Færeyja því í september 1998
fórum við þangað og spiluðum þá m.a. í
útvarp Færeyjar á tónleikum í SMS Þórs-
höfn í Fuglafirði og þar spiluðum við
einnig á dansleik ásamt félögum úr ÁFR
sem er eins og áður var sagt „Áhugafelag
fyrir Föroyskar Harmonikuspælarar" stofn-
að í Nólsoy 2. nóvember 1996 og gefur fé-
lagið út harmonikublað sem nefnist Bjólg-
urin.
Ferðin til Seyðisfjarðar gekk að óskum en
þegar þangað var komið fengum við þær
fréttir að seinkun yrði á skipinu fram eftir
degi og töldu sumir það vera vegna slæms
veðurs á hafinu en sem betur fer reyndist
það nú ekki vera.
Fararstjórar í þessari ferð voru undirritaður
og kona hans Sigurlaug Sveinsdóttir en
bæði höfum við margoft komið til Færeyja
og eigum þar marga góða vini sem áttu
svo sannarlega eftir að leggja okkur lið í
þessari skemmtilegu ferð.
Við fararstjórar höfðum lagt á það ríka
áherslu við undirbúning ferðarinnar við
fólkið að valin yrði þægileg gisting bæði í
Norrænu og í Færeyjum á meðan við
dveldum þar. Þetta var samþykkt og feng-
um við hagstæða samninga við Austfar á
Seyðisfirði sem bókaði allan hópinn í 2ja
og 4ura manna klefa á besta stað í skipinu
og 2ja manna góð herbergi á Hótel Færeyj-
um.
Frá Seyðisfirði lögðum við af stað um kl. 15
og fengum góða siglingu til Færeyja. Við
komum í land í Færeyjum um kl. 08.00
föstudaginn 8. júní í björtu og góðu veðri.
Á Farstöðinni tók á móti okkur ísak N. Jac-
obsen en hann er formaður ÁFR. ísak hafði
ég kynnst í fyrri ferðum mínum til Færeyja
og síðan notið þeirrar ánægju að fara ferð
um ísland með honum og félögum úr ÁFR
f júlí 1999.
Frá Farstöðinni fór hópurinn í langri bíla-
lest í útsýnisferð um Þórshöfn og að henni
lokinni í góðan morgunmat í SMS en það
er „Kringla" þeirra Færeyinga. Hótelher-
bergin fengum við síðan um hádegið og
voru þá margir orðnir þreyttir. Hótel Fær-
eyjar stendur uppi í hlíðinni fyrir ofan
Þórshöfn, skemmtileg bygging sem fellur
vel inn í landslagið með sínum grænu torf-
þökum. Frá hótelinu er gott útsýni yfir
Þórshöfn út á höfnina og til nærliggjandi
eyja.
Um kl. 15.30 var lagt af stað niður í SMS en
þar höfðum við auglýst tónleika með
harmonikuleikurum og kór eldriborgara
kl.16. í SMS beið okkar fjöldi fólks vinir og
kunningjar, félagar úr ÁFR og síðast en ekki
síst stórvinur minn lónsvein Poulsen frá
Fuglafirði sem ásamt ísak N. lacobsen að
mörgum öðrum ólöstuðum höfðu verið
okkur hjálpsamir við undirbúning þessarar
Færeyjaferðar. Tónleikarnir stóðu í um eina
klukkustund og var hópnum vel tekið. Tón-
ieikarnir byrjuðu á því að undirritaður sem
er stjórnandi harmonikuhljómsveitarinnar
og Iíka kórs eldriborgara hélt stutta ræðu
til að kynna hópinn. Að henni lokinni
skiptist á söngur og hljóðfæraleikur og
voru allir í sínu fínasta pússi. Þess má geta
svona til gamans að Félag harmonikuunn-
enda hafði lagt í talsverða fjárfestingu við
að kaupa ný einkennisföt á félagsmenn fyr-
ir þessa ferð.
Eftir tónleikana settist hópurinn niður og
átti ánægjulega stund með vinum og
kunningjum og þarna voru einnig komnir
margir íslendingar búsettir í Færeyjum til
að hlusta á söng og hljóðfæraleik og fá
fréttir að heiman. Kórinn söng m.a. fær-
eyskt lag sem heitir "Einki er sum sumar-
kvöld við Strendur" og harmonikuhljóm-
sveitin spilaði vals eftir Óla Jóhannessen
sem heitir “Kvöða til Fuglafjörð". Annars
var það efni sem við fluttum í þessari ferð
íslenskt og kunnu Færeyingar vel að meta
það. Laugardagurinn 9. júní skartaði sínu
fegursta, sól og blíðu og eftir góðan svefn
og morgunmat á Hótel Færeyjum fór hóp-
urinn f skoðunarferð um Þórshöfn í fylgd
ísaks. í Þórshöfn búa rúmlega 17000
manns en alls búa í Færeyjum rúmlega
45000 manns. í Þórshöfn má finna bæði
mjög gömul og vel viðhaldin hús og svo
nýtískubyggingar. Eftir hringferð um bæinn
fórum við í gönguferð um Þinganes þar
sem fyrsta þingið var eins og nafnið bendir
til og landstjórnin er nú. Húsin á Þinganesi
eru flest rauðmáluð með torfþökum og
vekja húsin á Þinganesi athygli manns
strax við komuna til Færeyja þegar siglt er
inn í höfnina.
Síðan héldum við á tónleika í Dómkirkj-
Þessi mynd af harmonikusveit Norðfirðinga er tekin á Útitónleikum á
Vogey.
Á dansleik í Fuglafirði, blönduð hljómsveit heimamanna og
Norðfirðinga.