Harmonikublaðið - 01.12.2003, Page 12
Fróðleikur
HARMONIKUBLAÐIÐ
Úr Svartaskógi
Fréttir frá sumarhátíð Harmon-
ikufélags Héraðsbúa og Hótels
Svartaskógar um verslunar-
mannahelgi 2003.
Eins og undanfarin ár stóð Harmon-
ikufélag Héraðsbúa í samnvinnu við Hót-
el Svartaskóg fyrir sumarhátíð harmon-
ikuunnenda í Svartaskógi. Eiginleg dag-
skrá hófst með harmonikudansleik á
föstudagskvöldi þar sem hljóðfærin voru
stillt til frekari átaka fyrir komandi tón-
ieika og dansleik á laugardagskvöldi. Á
laugardag hófst dagskrá kl 14:00 þar sem
lagahöfundar kynntu eigin lög sem frum-
flutt voru á síðustu árshátíð félagsins.
Hagyrðingamót hófst í framhaldi þar af
en þar leiddu saman hesta sína lands-
þekktir hagyrðingar, a.m.k. heimsfrægir á
Austurlandi. Þarna komu fram hagyrðing-
arnir: Brynjólfur Bergsteinsson, Björn
Þorsteinsson, Arndís Þorvaldsdóttir og
Hugi Guttormsson. Stjórnandi mótsins
var lónas Þór.
Þarna var fjallað um hin ýmsu málefni
út þjóðlífinu sem hagyrðngar gerðu skil í
bundnu máli og fer hér eftir sýnishorn af
kveðskap þeirra.
Eitt yrkisefnið var: Ef þú ættir eina ósk,
hver.væri hún? Brynjólfur Bergsteinsson
svaraði á þessa leið:
Heyr mína ósk ég hana tel
hreint ekki skilda prasi.
Sendti mér drottinn efvilt þú vel
whisky sjúss í glasi.
Hugi Guttormsson fjallaði um harm-
onikumenn á eftirfarandi hátt:
Með ferska lund er petta lið
í lífiins stríða kófi.
Þeir eru eins og áfengið
ágatir i hófi.
Hugi fór einnig með sléttubönd sem
hann orti:
Böndin sléttu ríma rétt
raða fléttu hljóður.
Löndin kletta preyti pétt
praði nettur góður.
Eitt yrkisefnið var: Ef þú værir t.d Geir
Hardee hvað myndir þú gera?
lónas Þór stjórnandi hagyrðingamóts-
ins ímyndaði sér hvernig Guðni Ágústs-
son, landbúnaðarráðherra myndi nálgast
þetta yrkisefni:
Efvari ég Hardee, ég herti mig upp
og hugsaði um sérhverja krónu.
Kýrnar ég kyssti frá herðum að hupp
og héldi við Ingu Jónu.
Brynjólfur orti f kveðjuskyni í lok
mótsins.
Þegar berst mitt bljúga hold
burt frá heimsins rógi.
Mundi ég vilja falla að fold
fullur í Svartaskógi
Heiðursgestur mótsins var harmon-
ikuleikarinn |ón Gíslason frá Miðhúsum í
Skagafirði. Hann lék ásamt Aðalsteini
ísfjörð á milli atriða á hagyrðingamótinu
við góðar undirtektir áheyrenda.
Að hagyrðingamóti loknu var frjáls
tími fram að dansleik sem hófst kl 22:00.
Notuðu gestir þann tíma til að grilla eða
fara í mat í Hótel Svartaskógi en auðvitað
Torvald Gjerde og Guttormur Sigfússon.
spiluðu harmonikuleikarar á meðan til
þess að maturinn rynni Ijúflegar niður.
Dansleikur hófs eins og fyrr er getið kl
22:00 og spiluðu féiagar í HFH og gestir
ásamt hljómsveitinni XD3 og fleiri að-
stoðarmönnum til kl 03:00
Samkvæmt bestu tölum voru um 300
manns á svæðinu í blíðskaparveðri og fór
mótið hið besta fram. HFH þakkar öllum
gestum komuna, hóteleigendum í Svarta-
skógi fyrir góða aðstöðu og viðmót og
vonast til að sjá sem flesta á sama tíma
að ári. |ónas Þór
Hagyrðingarnir f.v. Hugi ,Björn, Brynjóifur og Arndís.
Unglingamót 2004
Fyrsta mót ungra harmonikuleikara á vegum Sambands íslenskra Harmonikuunn-
enda verður haldið í Skagafirði dagana 21.-23. maí 2004 og hefur Harmonikufélag
Skagafjarðar tekið að sér framkvæmd þess. Það var á aðalfundi S.Í.H.U. að Narfa-
stöðum í Reykjadal haustið 2002 sem Skagfirðingar buðust til að ríða á vaðið með
þessa tilraun og var því vel tekið af fundarmönnum.
Alls níu tónlistarskólar hafa tilkynnt þátttöku nemenda sinna. Eins og alltaf
þegar farið er af stað með nýjungar sem þessa renna menn blint í sjóinn með
hvernig til tekst. Þetta mót verður því nokkurskonar tilraun og verður spennandi að
sjá hver útkoman verður og hvort svona mót geta orðið fastur liður í starfsemi
S.Í.H.U. Ástæða þess að svona móti verður komið á í vor er áralöng umræða, ekki
síst á aðalfundum S.Í.H.U. um það hvort ekki væri hægt að gera eitthvað sérstakt
fyrir þennan aldurshóp.
Ef þessi tilraun tekst vel get ég séð fyrir mér að svona mót yrðu haldin árin á
milli landsmóta S.Í.H.U. Ekki er tímabært að ákveða um slíkt að svo stöddu, það
verður að meta út frá reynslunni sem fæst af þessari fyrstu tilraun. ).J.