Harmonikublaðið - 01.12.2003, Síða 15
HARMONIKUBLAÐIÐ
Gesturinn
Jassleikarinn
Harry Hussey
Breski harmonikuleikarinn
Harry Hussey kom hingað til
lands sl. sumar. Hann kom á
eigin vegum, á húsbíl, ásamt
eiginkonu sinni Patriciu eða
Pat Hussey.
Þau komu með Norrænu og fóru um
landið á einni viku. Þau komu akandi að
sunnanverðu og byrjuðu á því að heim-
sækja undirritaðan, en hann, ásamt Gísla
H. Brynjólfssyni úr Vestmannaeyjum,
kynntust Harry á harmonikumóti í
Englandi haustið 1998. Þá talaði Harry
um að sig langaði til að koma til íslands.
í ferðinni í sumar fóru þau Pat og
Harry frekar fljótt yfi.r. Harry hélt konsert
inni í stofu hjá undirrituðum og spilaði á
einu balli sem harmonikuleikarar á Sel-
fossi héldu í Básnum í Ölfusi. Svo fóru
þau norður og tóku Akureyringarnir og
hann Gísli Brynjólfs á móti þeim. Spilaði
Harry fyrir norðanmenn á heimili lóhann-
esar og Hildar að Barrlundi 2 og voru
menn dolfallnir yfir leik hans, en Harry er
mikill svingari og má segja að hann spili
hvaða lag sem maður stingur upp á!
Hann getur spilað þindarlaust og Gary
Blair, sem er góður kunningi Harrys,
sagði að það væri verst við hann Harry
hvað erfitt væri að fá hann til að hætta!
Harry er fæddur 1929 og vann framan
af ævinni við útboðsgerðir vegna bygg-
ingaframkvæmda, en stundaði. spila-
mennskuna í hjáverkum. Síðan hann varð
sextugur hefur aðal starfið verið að spila.
Hann sagðist vera búinn að spila á hljóð-
færi síðan hann var fjögurra ára. Spilar
allt eftir eyranu.
Hugfangnir áheyrendur að Barrlundi
2. F.v. Guðni Friðriksson, Jóhannes
lónsson, )ón Benediktsson, Stefán
Þórisson, Guðrún Hafliðadóttir, Sig-
urvin jónsson og Sigurður Indriða-
son.
Fleiri áheyrendur að Barrlundi 2. F.v.
Gísli Brynjólfsson, Eva Björg Erlends-
dóttir, Einar Guðmundsson og Pat
eiginkona Harrys.
Það var ákaflega mikilvægt að fá jass-
spilarann Harry til landsins, svona sem
mótvægi við þá tegund harmonikutón-
listar sem flestir hérna spila. Hann hefði
þurft að stansa hérna lengur og koma
víðar við, en þetta indælis fólk, þau Pat
og Harry voru hér ekki nema í eina viku.
ÓlafurTh. Ólafsson.
Harrý leikur fyrir gesti að Barrlundi 2,
Akureyri.
Harry og Pat við heimili Óla og Gyðu á Sel-
fossi.
Torsi! SWSAfM 3Óf15 KR'OÍ/IFSSONAR
REYNÍMEL BÍLDUDAL
melodiur riimin&ANMA
17.3ÚNÍ 2000.
ŒW