Harmonikublaðið - 01.06.2004, Page 3

Harmonikublaðið - 01.06.2004, Page 3
HARMONIKUBLAÐIÐ RITSTJÓRAPISTILL ISSN 1670-200X Ábyrgðarmaður : Jóhannes Jónsson Barrlundi 2 600 Akureyri Sími 462 6432, 868 3774 Netfang: johiId@simnet.is Ritvinnsla: Hildur Gunnarsdóttir Prentvinnsla: Ásprent Netfang: gudjon@asprent.is Meðal efnis • Frá Harmonikufélagi Rangæinga • PistiII frá Guðmundi Helga • Af Harmonikuunnendum Norðfirði • Lag blaðsins • Bréf frá Jóni Berg • Skemmtiiegar myndir • Landsmót ungra harmonikuleikara • Heimsókn í Borgarfjörð Auglýsingaverð: Baksíða 1/1 síða kr. 12.000 ii 1/2 síða kr. 6.000 Innsíður 1/1 síða kr. 1 1.000 1/2 sfða kr. 5.500 1/4 síða kr. 3.500 1/8 síða kr. 2.500 smáaugiýsing kr. 1.500 Forsíðumynd: Hópmynd: Þátttakendur í Landsmóti ungra harmonikuleikara í Skagafirði 2004. Neðri myndir: Rakel Fríða Thorodd- sen frá Raufarhöfn t.v. og Hans Friðrik Guðmundsson frá Dalvík t.h. — • Efni í næsta blað Þeir sem hugsa sér að senda efni í næsta blað, sem koma á út í október n.k. þurfa að skila því fyrir 25. september. Rist st jór apist ill Ágæti lesandi! Nú fer í hönd sá tími þegar harmoniku- unnendur víða um land leggur af stað í sínar árlegu sumarferðir til að hitta vini og kunningja og njóta með þeim þess áhugamáls sem hefur tengt þá saman til margra ára, þ.e. harmonikuútilegurnar og það sem þeim tilheyrir. Útbúnaður til útilegu hefur á örfáum árum breyst úr tjöldum, þar sem fólk var skríðandi á fjórum fótum, í tjaldvagna, hjólhýsi og jafnvei íbúðir á hjólum og má segja að tjöldin heyri brátt sögunni til. Það hlýtur óneitanlega að vera gaman að geta ekið hvert á land sem er og verið með öli þægindi meðferðis. Það er þó ekki útbúnaðurinn sem skiptir mestu máli, þó góður sé, heldur þau traustu bönd sem myndast hafa milli þeirra sem sækja harmonikusamkomurnar. Það er mjög merkilegt svo ekki sé fastar að orði kveðið að svo stór hópur fólks, sem raun ber vitni, skuli fylkja sér svo mjög um eitt hijóðfæri. Ástæðan gæti verið einföld, harmonikan er lifandi og fjölbreytt hljóð- færi og svo fer hún yfirleitt vel í fangi þeirra sem hana bera. Þó við séum mörg elsk að harmon- ikunni þá finnst okkur gott að hafa önnur hljóðfæri með henni, sérstakleg ef ieika á fyrir dansi, þó hún geti vel staðið ein og sér, enda iöngum áður fyrr notuð sem eina danshljóðfærið. Margir sem leika á önnur hljóðfæri eru félagar í harmoniku- félögum og er ekkert óeðlilegt við það, þetta fólk verður oft útundan í umræð- unni þó það séu eins góðir félagar og við hin, sem spilum á harmonikur. Ég vil nota tækifærið og þakka öllu þessu fólki, bæði félagsbundnu og öðr- um þeim sem hlaupið hafa í skarðið og leikið með okkur harmonikufólki við ýmis tækifæri, fyrir þeirra þátt. Finnst mér sem þeir hinir sömu hafi yfirleitt haft mikla ánægju af samspilinu ekki síður en við, enda nauðsynlegt hvað með öðru. Nú er klukkan orðin hálf ellefu að kveldi og sólin enn hátt á lofti, vona ég að svo verði í hjörtum ykkar og sumarið verði ykkur gleðilegt. Hlakka til að hitta ykkur sem flest. Með harmonikukveðju, J.J. SUMARMÓT HARMONIKUUNNENDA VESTURLANDS 2004 Árlegt sumarmót okkar að Fannahlíð verður dagana 16.-18. júlí næstkomandi. Hvetjum fólk til að koma og njóta skemmtilegrar helgar við spil og spjall. Dansað föstudag og laugardag. Næg tjaldstæði. Allir velkomnir. Upplýsingar gefa Þórður í síma 431 2692 og Geir í síma 431 2140 Stjórnin Méíusm VERKSTÆÐITIL ALHLIÐA VIÐGERÐA Á HARMONIKUM AÐ KAMBASELI 6, RVK HAFIÐ SAMBAND VIÐ GUÐNA í SÍMA 567 0046 m

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.