Harmonikublaðið - 01.06.2004, Blaðsíða 4
Fréttir
HARMONIKUBLAÐIÐ
Frá Harmonikufélagi Rangæinga
Frá vinstri: Vigfús Sig. Sigrún Bjarnad. Grétar Geirs. Stefán A. Þórðars. jóhann Bjarnas. fyrir
aftan er Bragi Gunnars.
Nú líður senn að hefðbundnu harm-
onikusumri og harmonikumótin eru
framundan víða um land. Kætist þá
margur harmonikuunnandinn og allir
dusta rykið af hljóðfærunum, ef þau hafa
þá ekki verið spegilgljáandi fyrir.
Vinir munu hittast, spila saman, tala
saman og hlæja saman og yfirleitt njóta
tilverunnar til fulls. Á þessum samkom-
um ríkir einstakur andi sem hvergi finnst
annars staðar. Er það í raun merkilegt
rannsóknarefni sem vert væri að skoða.
En útkoman yrði sennilega sú sem allir
vita að þeir sem unna harmonikunni eru
glatt og kátt fólk gegnumsmitað af því
gleðihljóðfæri sem harmonikan er.
Við hjá Harmonikufélagi Rangæinga
höfum starfað með hefðbundnum hætti í
vetur. Æft reglulega og stefnum að sjálf-
sögðu að þátttöku á næsta Landsmóti
eftirár. Meðalaldur spilara hækkar reynd-
ar sífellt í hópnum , eins og mér skilst að
við séum ekki ein um og er það miður. En
hérna fer unga fólkið burt í framhalds-
skóla í flestum tilfellum og það segir sína
sögu. Við tókum þátt í dansleiknum í
Básnum sem haldinn var til styrktar
Landssambandinu og var það einkar
ánægjuleg kvöldstund þar sem fimm fé-
lög skiftust á um að spila fyrir dansi.
Þetta er hlutur sem vert væri að endur-
taka síðar og mér sem gömlum formanni
Sambandsins finnst þetta vera vænleg
leið til styrktar Sambandinu. Það er orðin
hefð hjá félögunum í Árnes og Rangár-
vallasýslu að sækja hvort annað heim
þegar dansleikir eru haldnir og taka
hljóðfærin með. Það er góður siður og
eykur samstöðuna og spilagleðina.
Sem gestaspilarar fórum við á Dag
Harmonikunnar í Ráðhúsinu í Reykjavík.
Þar tókum við þátt í dagskrá sem eitt af
fimm félögum sem komu þar fram. Er
þetta annað árið í röð sem við gerum
það.
Vordansleikur var haldinn að venju og
fengum við góða gesti af Suðurnesjunum
í heimsókn með mikla spilagleði. Þessi
dansleikur var hinn ánægjulegasti og
kann ég Suðurnesjamönnum bestu þakk-
ir fyrir komuna.
Að lokum vil ég senda harmonikuvin-
um um allt land bestu kveðjur og hlakka
til að hitta sem flesta á mótunum í sum-
ar.
Sigrún Bjarnadóttir.
Gódir
áskrífendur
Vinsamlega leggið
áskrift blaðsins fyrir áriö
2004 inn á reikning
í banka 162 Hb 26 reikningsnr.
972 Kt. 300946-3729
Mikilvægt er að nafn og/eöa
kennitala áskrifanda blaðsins
komi fram þegar greitt er.
TOMLI5TARSATM jöms KR.'OíAfssömR
Reynimel bíldudal
MELÖDIUR MIMNÍM&AMMA
I7. JLIIHÍ 2000.