Harmonikublaðið - 01.06.2004, Side 6
Fróðleikur
HARMONIKUBLAÐIÐ
Frá Félagi Harmonikuunnenda Norðfírði
Ágæti lesandi.
Eins og flestum er eflaust kunnugt þá
verður næsta landsmót Sambands ís-
lenskra Harmonikuunnenda S.Í.H.U hald-
ið í Neskaupstað á vegum Félags Harm-
onikuunnenda Norðfirði F.H.U.N. Ákveð-
ið hefur verið að landsmótið fari fram
dagana 7. til 10. júlí 2005 og nú þegar er
allt komið á fulla ferð við undirbúning.
Bæjaryfirvöld í Fjarðabyggð hafa tekið
mjög vel í allt sem leitað hefur verið til
þeirra með og ætla áfram að standa vel
við bakið á okkur. Tónleikar félaganna
fara fram í stóru og glæsilegu íþróttahúsi
í Neskaupstað og verður allt kapp lagt á
að hljóðgæði og annað sem til þarf verði
eins og best verður á kosið.
Til að svo geti orðið höfum við ráðið
færa menn á því sviði en það eru bræð-
urnir Jón Steinþórsson ( Jón Skuggi ) og
Guðjón Steinþórsson og ætla þeir að sjá
um þessi mál fyrir okkur.
Félagar F.H.U.N. F.v. |ón Bjarnason, Konráð A.Ottósson, Guðmundur
Skúlason, Egill Jónsson, Gísli S. Gíslason, Ómar Skarphéðinsson og
Bjarni Halldór Bjarnason.
Spilað fyrir dansi í Norrænu. F.v. Konráð A. Ottósson, Egill jónsson,
Gísli S. Gíslason og Guðmundur Skúlason.
Ómar Skarphéð-
insson hefur verið
ráðinn framkvæmda-
stjóri Landsmótsins
og þessa dagana
vinnur hann m.a. við
að koma af stað
heimasíðu fyrir fé-
lagið þar sem harm-
onikuurjnendur geta
fengið alíar upplýs-
ingar um Landsmót-
ið og undirbúning
þess. Slóðin er www.
harmonika.is og hvet
ég fólk til að líta inn
á heimasíðuna.
Á Landsmótið 2005 er von á erlendum
gestum til okkar og í maí mánuði síðast-
liðnum var gengið frá samningum við
ungan danskan harmonikuleikara Sören
Brix að nafni sem ætlar að koma til Nes-
kaupstaðar og halda
tónleika á Lands-
mótinu. Þó Sören sé
ungur að árum er
hann vel þekktur í
Danmörku og víðar á
Norðurlöndum og
hefur nú þegar gefið
út tvo hljómdiska og
mun a.m.k annar
þeirra fást hér á
landi. í fylgd með
Sören verður Her-
móður Alfreðsson
sem er vel kunnur
harmonikuunnend-
um hér á landi. Her-
móður býr í Dan-
mörk en var síðast
hér á landi í apríl
mánuði síðastliðn-
um og stóð þá fyrir
skemmtun í Veit-
ingahúsinu Horninu
í Hafnarstræti 15
Reykjavík, þar sem
harmonikuleikarar
komu saman og áttu
skemmtilega kvöld-
stund. Hermóður
hefur verið okkur
mjög hjálplegur við
að fá Sören Brix til
Ball í Fuglafirði, félagar úr Harmonikufélagi Færeyja ásamt Hrafnkeli
Björgvinssyni trommara.
íslands og kunnum við honum bestu
þakkir fyrir.
Einnig munum við fá heimsókn frá
Færeyjum því félagar úr Harmonikufélagi
Færeyja Á.F.H. ætla að koma og heimsa-
ækja okkur og taka þátt í Landsmótinu.
Nánari upplýsingar um Landmótið 2005
svo sem upplýsingar um gistisaðstöðu í
Neskaupstað og svo að sjálfsögðu
Landsmótslagið síðar.
Einnig má geta þess að aðalfundur
S.Í.H.U. verður haldinn í Neskaupstað
helgina 17. til 19. september 2004 og þá
gefst þeim sem þann fund sækja ágætt
tækifæri á að skoða staðinn og kynna sér
aðstæður vegna Landsmótsins í júlí
2005.
Félag Harmonikuunnenda Norðfirði
var stofnað 1. maí 1980 þannig að á
næsta ári „Landsmótsáðið" 2005 heldur
félagið upp á 25 ára afmæli sitt. Félagið
hefur starfað óslitið frá upphafi og hefur í
gegn um árin reynt að koma harmon-
ikunni til vegs og virðingar með því að
koma fram við hin ýmsu tækifæri hér í
Neskaupstað og víðar.
Að okkar mati hefur það tekist nokkuð
vel og komum við fram og spilum meðal
annars fyrir jólin, fyrsta maí, um sjó-
mannadags-helgina sem er mikil hátíð
hér í bæ, á bæjarhátíðinni okkar Neista-
flugi sem haldin er um verslunarmanna-
helgina ár hvert og síðan reynum við að
spila á dansleikjum þó svo það sé minna
um það en við gjarnan vildum. Einnig
höfum við verið í góðu sambandi við
önnur félög bæði hér á landi og síðan í
Færeyjum og farið í heimsóknir til þeirra
og þau komið til okkar.