Harmonikublaðið - 01.12.2007, Blaðsíða 3

Harmonikublaðið - 01.12.2007, Blaðsíða 3
4|> ^ 4|> ^ 4|> ^ Harmonikublaðið ISSN1670-200X Frá ábyrgðarmanni Ábyrgdarmaður: Hreinn Halldórsson Faxatröð 6, 700 Egilsstöðum Sími 4711884, 8665582 Netfang: fax6@simnet.is og hreinn@egilsstadir.is Prentvinnsla: Héraðsprent, Egilsstöðum Netfang: print@heradsprent.is Meðat efnis: Landsmót 2007 Landsmót 2008 Landsmótslagið 2008 Ferðasaga Harmonikuféiags Þingeyinga Hvarog hvað erlyderup? Ágrip afstarfsemi H.F.H. Lag blaðsins Art Van Damme íslensk harmonikusumur Auglýsingaverð: Baksíða 1/1 síða 1/2 síða Innsíður 1/1 síða 1/2 síða 1/4 síða 1/8 síða Smáauglýsingar kr. 20.000 kr. 13.000 kr. 16.000 kr. 10.000 kr. 6.000 kr. 4.000 kr. 2.200 Forsíðan: íshjúpuð strá við kísillæk hjá Trölladyngju. Ljðsmyndari: Skarphéðinn Þráinsson. Efni í næsta blað, sem kemurútímaí, þarfað berastí apríllok. V________________________________ Góðir áskrifendur! Vinsamlega leggið áskrift blaðsins, kr. 1.500.- fyrirárið 2007 inn á reikning nr. 0305 - 13 - 700, Kt. 030349 - 3859 Harmonikublaðið desember 2007 Mikilvægt er að nafn og kennitala áskrifanda blaðsins komi fram þegar greitt er. Heilir og sælir áskrifendur góðir og aðrir lesendur! Þá er kominn desember, snjór á jörð og fremur kalt þó ekki sé ástæða að kvarta, enn sem komið er, undan vetrinum; enda færumst við stöðugt til suðurs veðurfarslega séð. Hver veit nema við sjáum fram á útihátíðir að vetri til í nánustu framtíð? Á aðalfundi S.Í.H.U. nú í haust, sem haldinn var í Skagafirði, var ákveðið að útgáfu Harmonkiublaðsins skyldi fram haldið. Vonandi gleður þessi ákvörðun lesendur blaðsins. Til að þetta blað verði sá upplýsingamiðill sem því er ætlað þá þurfa lesendur þess að láta í sér heyra því fátt er svo ómerkilegt að ekki sé óhætt að senda það til ritstjóra til skoðunar. Málið er einfaldlega það að fólki finnst heilt yfir að það sem það er að fást við sé ekki fréttnæmt. Ef þetta væri réttþá þyrfti ekkertblað þvíhverjum léti best í sínu horni og öðrum kæmi það ekki við. En, góðir félagar, þessu er nú ekki þannigvarið. í mörgum félögum er unnið mikið og gott starf sem full ástæða er til að segja frá. Eitt af þvf er að halda utan um unga fólkið þannig að vegur þess og hljóðfærisins dafni með hverju árinu. Þessum þætti sinna sum félög ákaflega vel en önnur mættu taka sig á. í þessu blaði er m.a. sagt frá Landsmóti ungmenna sem haldið var 19. - 21. október sl. að Reykjum í Hrútafirði. Miðað við umsagnir mótsgesta þá tókst mjög vel til á allan hátt; framkvæmd öll til fyrirmyndar, húsakostur og önnur aðstaða góð í fögru umhverfi. Það sem einna helstvantaði voru fleiri ungmenni, ekki endilega til að spila heldur að mæta og vera með. Við það að mæta á staðinn og upplifa mót sem þetta þá er nokkuð víst að áhuginn eykst og viðkomandi leggur sig fram til að vera með næst. Ég vil hér með hvetja alla þá sem hlut eiga að máli; foreldra/forráðamenn, tónlistar- kennara, forystufólk félaga og annað áhrifafólk, að greiða götu ungmennanna eftir þvf sem tökeru á. Sagt er frá Landsmóti S.Í.H.U. 2008 sem haldið er dagana 3. - 6. júlí í Reykjanesbæ. M.a. er birt landsmótslagið þannig að allir ættu að kunna það vel þegar á landsmót er komið. Að venju er skemmtiefni í vísnaformi og lag blaðsins sem varð til eftir „sáttadans“ í Skagafirði nú í haust. Þá er ferðasaga frá Þingeyingum, útgefið efni ofl. Eins og margirvita þá tóku fjögur félög ákvörðun um að greiða áskrift sinna félagsmanna. Þetta eru: Harmonikufélag Héraðsbúa (H.F.H.), Harmonikufélagið Nikkólfna, Harmonikufélag Þingeyinga (H.F.Þ.) og Félag harmonikuunnenda við Eyjafjörð (F.H.U.E.). Þessi félög hafa öll greitt áskrift 2007 og er þeim hér með þökkuð skilvísin. Greiðslur annarra áskrifenda skila sér vægast sagt illa. í gær, fyrsta des., höfðu 57 greitt árgjaldið og því eiga 200 eftir að greiða árgjald 2007 sem er 1.500,- krónur. Égvil biðja alla áskrifendur, sem ekki eru í ofangreindum fjórum félögum, að bregðast fljótt við og greiða árgjaldið, sé það ekki þegar greitt. Hér til vinstri á sfðunni eru upplýsingar um banka- reikning Harmonikubtaðsins. Að lokum vil ég þakka öllum þeim sem hafa með einum eða öðrum hætti aðstoðað ritstj. við blaðið. Þá vonast ég til að gott framhald verð á nýju ári. Kærar þakkir fyrir samstarfið á árinu með von um að 2008 verði ekki síðra. Megi jólafriður og gleði ná til ykkar allra. Hreinn Halldórsson ikusam almonimsam ÁSGEIRS S.SIGURÐSSONAR býður öldruðum harmonikum farsælt ævikvöld á ísafirði. Símanúmer: 456-3485 og 863-1642 & J 3

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.