Harmonikublaðið - 01.12.2007, Síða 14
4*> JS^ 4|> JS^ 4|> JS^ 4|> JS^ 4|> JS^ 4*> JS^ 4|> JS^ W JQL
Hvar og hvað er Jyderup?
Jyderup er bær á Sjálandi í Dan mörku í tæplega tveggja tíma akstursfjarlægð
frá Kaupmannahöfn. Vinur minn, danski harmonikuleikarinn Mogens
Bækgaard, hefur skipulagt harmonikumótin þar í tæpa tvo áratugi, nú í 17.
sinn. Mótið í Jyderup, sem árlega er haldið um miðjan ágúst, er hið
langbesta vegna mikils fjölda góðra listamanna hvaðanæva að, m.a.
Skandinavíu og víðar úr Evrópu. Skærasta stjarna þessa þúsund manna
móts, sem haldið var 17.-19. ágúst sl., var hinn heimskunni 87 ára ameríski
djassharmonikuleikari Art Van Damme. Fólk flykktist alls staðar að til þess
að hlýða á meistarann, m.a. frá Norðurlöndum, þar á meðal íslandi og
einnigfrá Sviss, Póllandi, Ameríku ogvíðar.
Art Van Damme er fæddur af belgísku
foreldri 9. apríl 1920 í bænum Noregi í
Michiganfylki í Bandaríkjunum. Hin kunna
sjónvarpskona, Eli Skoland, ræddi við hann
þegar norska sjónvarpið tók upp
hádegisverðartónleika með honum í Ósló
1991. Þá sagði hann glettinn á svip, að
margir héldu hann fæddan í Noregi!
Hann þreytti frumraun sína aðeins tíu ára.
í gagnfræðaskóla stofnaði hann tríó, sem
varð síðan kvartett og kvintett 1945 og hefur
sú hljóðfæraskipan haldist sfðan. Art Van
Damme hefur verið tíður gestur í sjónvarpi
og útvarpi og þess utan leikið ásamt kunnum
djassleikurum t.d. Benny Goodman og Dizzy
Gillespie o.fl. Núorðið heldur hann einungis
tvenna til þrenna tónleika á ári, það var því
mikill gleðilegur fengur að fá hann til
Jyderup, enda ekki algengt að leikinn sé
djass á harmonikumótum. Til þess að skapa
hinn sanna “Van Damme tón” léku með
honum: Jacob Fischer á gítar, Mads Vinding
á kontrabassa, Aage Tanggaard á trommur
og hinn sænsk ættaði Anders Aström á
víbrafón.
Meðal gesta á mótinu voru íslendingarnir
Þórir Magnússon, hinn kunni og vinsæli
trommari og Þorleifur Finnsson harmoniku-
leikari, en við þremenningarnir leigðum
húsvagn á svæðinu í fjóra sólarhringa. Að
venfu var mótið haldið í tveimur stórum
tjöldum. í öðru þeirra var matsala og seldur
morgun-, hádegis- og kvöldverður við
sanngjörnu verði. Þórir Magnússon, sem
var á Jyderupmótinu í þriðja sinn, mætti
goði sínu og tók í hönd hans og hneigði sig
djúpt að hætti skartklæddra herramanna,
en meistari Van Damme kinkaði kolli og
brosti. En trommarinn með íslenska for-
mannsblóðið í æðum þvoði sér ekki um
hendur það sem eftir lifði dags. Áður en
lengra er haldið vil ég nefna sænska
harmonikusnillinginn Alf Hagedal, sem
gjarnan mætir til leiks í Jyderup, en Alf er
einmitt heiðursgestur landsmótsins á næsta
ári í Reykjanesbæ, sem haldið verður í
íþróttahúsinu við Sunnubraut í Keflavík,
dagana 3. - 5. júlí 2008.
Alf Hagedal er einn þekktasti harmoniku-
leikari á Norðurtöndum, þó ungur sé. Hann
hefur leikið inn á a.m.k. 6 geisladiska, þar
af þrjá á sl. tveimur árum, einn á liðnu ári og
tvo í ár. Á öðrum þeirra leikur með Alf hinn
kunni og margreyndi sænski harmoniku-
leikari Rolf Dahlström. Ásamt þeim á öllum
diskunum leika norski gítaristinn Reidar
Dahle og upphafsmaður og skipuleggjandi
Jydermótanna, Mogens Bækgaard á
Rasmus Mose leikur á harmoniku, Mogens Bækgðrd
leikur á bakka.
kontrabassa. En auk þess að vera afbragðs
harmonikuleikari, þá er Mogens einn
snjallasti bassaleikari á Norðurlöndum og
framundan hjá honum er að leika á bassa á
þrennskonar geisladiskum, sem verða
hljóðritaðir í Noregi.
Alf Hagedal er afar fjölhæfur músíkant.
Hann hefur t.d. sérhæft sig í svonefndri
djangótónlist, sem er einskonar sígauna-
djass, kenndur við gítaristann Django
Reinhardt. Þess má geta að Ander Larsson
hljóðritai slfka tónlist 2005, ásamt hinum
unga og snjalla gítarleikara Gustav Lundgren
og kom þá út á geisladiski, en Lundgren
hefur skipað sér á bekk með allra bestu
gítaristum Svía.
Yngsti einleikarinn í Jyderup var hin 11 ára
Pernilla Olsen frá Svallerup í Danmörku.
Hún hefur einungis leikið á harmoniku í
fjögurár, en skilaði Frosinirispu aföryggi og
með miklum sóma. Hins vegarvissi hún ekki
að meistarinn Art Van Damme, stóð nærrri
sviðinu og hlýddi á leik hennar og óskaði
henni til hamingju með skínandi gott
framlag, sem telst gott veganesti.
Nefna má annan efnilegan ungliða, hinn
íóáraRasmusMose, sem margiríslendingar
kannast við og „íslandsvininn" hinn 21 árs
Sören Brix. sem ég kom með á landsmótið í
Neskaupstað 2005 og gerði stormandi
lukku. Ef ég nefni fáeina tilviðbótar af öllum
þeim gríðarlega fjölda, sem kom fram á
mótinu, þá voru m.a. Bruno Jensen frá
Nestved, hinir sænsku Lindqvistbræður og
landar þeirra Lars Holfog Leif Linderoth. Hin
sænsku vel þekktu Anders Larsson og
Annika Andersson hafa endurvakið dúó sitt
og áttu að leika alla þrjá dagana, en vegna
lasleika Anniku varð ekki af því og var skarð
fyrir skildi. Sfðast en ekki síst ber að nefna
Mogens Bækgaard, mótsstjóra og skipu-
leggjanda, þá lék hann á harmoniku, enda
þótt oftast stæði hann á sviðinu sem kontra-
bassaleikari mótsdagana. En Mogens
heimsótti ísland 1992 og lék í húsi íslensku
óperunnar. Hann hefur oft nefnt það við
mig, að margir danskir harmonikuleikarar
séu þess fýsandi að leggja leið sína á
íslenska grund og halda tónleika. Ég hef
undanfarið unnið að því að koma dönskum
geisladiskum íverslanirá íslandi ogvonandi
tekst það með tíð og tíma.
í Jyderup skapast ávallt mikil markaðs-
stemningogt.d. ermikið úrvalafkassettum
og geisladiskum í sérstöku andrúmslofti,
sem ekki er hægt að lýsa - menn verða að
finna það á eigin skinni. Ég hef mætt þarna
í 7 ár í röð og hvert mót er með sínu sniði,
en fyrst og fremst er þetta fyrir tilstuðlan
hins framtakssama og hugmyndaríka vinar
míns Mogens Bækgaards.
Að lokum æski ég þess, að íslenska
harmonikublaðinu vaxi ásmegin og útgáfan
haldi áfram um ókomna tfð.
Hermóður Alfreðsson,
Danmörku