Harmonikublaðið - 01.12.2007, Síða 18

Harmonikublaðið - 01.12.2007, Síða 18
 ArtVan Damme Á FERÐ í JYDERUP 17. - 19. ÁGÚST 2007 Hann lítur út fyrir að vera einn af fjöldanum, í gallabuxum og blússu, þar sem hann röltir hring í sirkustjaldinu á íþróttaveilinum í Jyderup. Sá sem ekki veit giskar ekki á að þessi maður fylli 87. árið í apríl. Fólk mun ekki heldur giska á að hann sé heimsþekktur og það sama kvöld muni hann töfra fram jazztóna á harmonikuna í samspili með nokkrum afviðurkenndustu jazzspilurum Danmerkur. Daginn eftir tónleikana fengum við hann til að eiga við okkur fáein orð. Fyrst nokkrar staðreyndir: Hann er fæddur í iitla bænum Norway í Michigan. Nafnið Van Damme kemur alls ekki frá USA. Foreldrar hans voru innflytjendur frá Belgíu og fyrir þá sem hafa verið í USA þá komast menn ekki hjá að hafa borðað „belgískar vöfflur". Van Damme fjölskyldan átti einmitt þátt í upphafi þessara þykku vaffla. Það var hrein tilviljun að hann fékk níu ára gamall tilsögn í að spila á harmoniku frá kostgangara, ítölskum organista, Heinz Cavani að nafni. Eiginlega vildi Art verða hafnaboltaleikari, en í dag er hann ákafur í golfinu. Um 1930 voru erfiðir tímar í USA. Þar sem faðir hans var heppinn að fá vinnu f Chicago 1934 flutti fjölskyldan þangað. Cavani kom aðra hverja viku til að veita Art tilsögn.en þetta reyndist erfittfyrirkomulag. Hann fékk því annan kennara og stundaði klassískt tónlistarnám á aldrinum 14 - 19 ára. í dag er hann þakklátur fyrir þennan klassíska bakgrunn sinn. Þetta gerðí honum kleift að að skilja og titeinka sér nýja hluti. En hvenær kom jazzinn inn í líf þitt, spurðum við? - Þegar ég gekk í framhaldsskóla var Benny Goodman mín fyrirmynd. Ég þróaði minn eiginn stíl þegar ég fékk mitt fyrsta trío. Ég hlustaði á upptökur og reyndi að æfa þær með tríóinu. Tríóið lék á næturklúbbum í tvö ár þar til það fékk til liðs við sig fjórða manninn. Það var fyrst þegar við höfðum samsetningu af harmoniku, vibrafon, bassa og trommum að ég fann að ég hafði „rétta tóninn”. í dag kemur það mér til góða að hafa byrjað með trío þegar það kemur fyrir, þegar ég held tónleika, að ekki er hægt að fá fleiri að „láni“ til að spila með. Samtalið gengur liðugt þegar Art setur fyrst í gang, og minnið er í frábæru lagi. - Kvartettinn starfaði í Miðvestrinu í mörg ár og á einn eða annan hátt náði NBC að heyra í honum. Þetta leiddi til langvarandi samninga fyrir bæði útvarp og sjónvarp. Árið 1949 gerði ég fyrstu upptöku mína í sjónvarpi, segir Art. Ég hætti hjá NBC í Chicago árið 1960 eftir að hafa unnið hjá þeim í 15. Van Damme kom á fót bæði tónlistar- stúdíói og verslun í Chicago. - Frá 1952 til 1965 var ég með samning við Columbia Records, segir Art frá. Fyrsta ferð mín til Evrópu var til Þýskalands árið 1967 til að spila inn á plötu. Þar spilaði ég inn 16 af yfir 40 albúmum mínum. Árið 1968 flutti hann til Kaliforníu sem hefur betra loftslag fyrir heilsuna. Þetta kann að hafa gert gæfumuninn fyrir heilsu þína til áframhaldandi tónleikahalds, skiljum við. - Ég hafði ákveðið að hætta tónlistar- ferlinum 75 ára, trúir hann okkur fyrir. Það var efnt til gleðskaps, að sjálfsögðu með tónlist, ogégvar beðinn um aðspila nokkur númer. Þarna greip égtækifærið og tilkynnti að mér finndist tími til kominn að enda ferilinn. Það leið svo eitt ár án þess að ég spilaði. En dageinn fékkégsímtal um hvort ég gæti hugsað mér að halda tónleika, og þar með var ég kominn í gang á ný. - í gegnum árin hef ég sett markið við 2 til 3 tónleika á ári vegna heilsunnar. í júnítók ég þátt f Accordion Convention f Las Vegas og núna er ég hér. Síðustu tónleikar ársins verða f nóvember í Póllandi. Hvað finnst þér um jazztónlistarmennina sem þú hefur fengið til liðs við þig hér í jyderup? (Jakob Fischer (gítar), Mads Vinding (bassa), Aage Tangaard (trommur), Anders Astrand (vibrafon). - Ég ferðast jú ekki lengur með minn gamla kvintett. Þeir búa allir í Chicago og það kemur fyrir að ég taki verkefni með þeim þar. Þar fyrir utan er alltaf spennandi að vita hvaða tónlistarmenn maður fær til liðs við sig. Hér í Jyderup hef ég einmitt fengið þann besta mannskap sem ég get óskað mér. Ég hef virkilega áhuga á að spila með þeim aftur. Hér áður fyrr var Evrópa 10-20 árum á eftir USA í þróun á jazzi en staðan er öll önnur í dag. Hvaða hugmyndir hefur þú almennt um harmonikuspil í dag? - Daglega reyni ég að vera laus við polka stimpilinn. Þegar ég segi ókunnugum í USA að ég spili á harmoniku, spyrja þeir alltaf. „Svo þú spilar sem sé polka“? Því miður eru ekki alltof margir góðir jazz-tónlistarmenn vftt og breitt um heiminn, en það koma stöðugt fram nýir menn með hæfileika. Ég mæli með því að ungir harmonikuleikarar spili með öðrum hljóðfærum. Þá getur maður náð til mikið breiðari áheyrenda en ákafra harmonikuunnenda. Með allri virðingu fyrir mínum góða vini Frank Marocco sýnist mér hann hafa gert stór mistök. Þegar hann heldur einleikstónleika fyrir almenning í harmonikuklúbbum í USA (meðlimir þeirra í USA geta verið allt að 20oogerumeðsvoldiðaðra „uppbyggingu” heldur en þessir skandinavísku harmonikuklúbbar), eru þvf miður oft aðeins 10% sem raunverulega skilja hve duglegur hann er. Hinn hlutinn bíður bara eftir að hann sé tilbúinn á sviðið eins og þeir kæmu til með að spila sjálfir. Einhver sérstakur atburður sem þú minnist? - Ég var einu sinni dómari í hæfileika- keppni fyrir harmonikuspilara sem haldin var af AAA. - Einn þátttakandinn tók upp á því að leggjast á gólfið meðan hann hélt áfram að spila og reyna belghristing. Slíku gleymir maður ekki. Þessi 87 ára gamli - eða eigum við að segja ungi - maður hefur góða kímnigáfu og smitandi hlátur. Hann á 3 börn og 6 barnabörn, en ekkert þeirra spilar á harmoniku. - Elsta dóttir mín er frekar góð á píanó, en ég hef haft þá vissu að pressa ekki á þau til neins, segir Art. Tónlistin verður að koma innanfrá. www.artvandamme.com Texti og myndir: www.trekkspill.no Þýtt afritstj.

x

Harmonikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.