Harmonikublaðið - 01.12.2008, Side 17
ari kantinum. Suma texta hef ég samið
sjálfur, nokkra fékk ég frá móður minni,
meðan hennarnautvið. Einnig hefur Pétur
Stefánsson samið fyrir mig nokkra texta,
t.d. sjómannalagatexta. Svo hafa fleiri lagt
mér lið. Ég er enn að og hvergi hættur. Hef
meira að segja búið til lög f söngleik við
texta Atla Engilbertssonar, sem er ekki
frágenginn en verður vonandi að veruleika.
Það má geta þess að nokkur laga minna
hafa verið gefin út af Harmonikufélagi
Héraðsbúa”.
Lagakeppnir?
“Ég hef tekið þátt í nokkrum keppnum,
tvisvar í Evrovision, tvisvar í jólalagakeppni
Rásar 2, tvisvar tekið þátt f sjómannalaga-
keppni Rásar tvö og lögin komust í bæði
skiptin í spilun þó þau fengju ekki verðlaun.
Þá tókégnokkrum sinnum þátt í lagakepnni
H.F.H. oghlautverðlaun íþrjú skipti, þaraf
einfyrstuverðlaun. Égsendieinnignokkrum
sinnum lög í lagakeppnir á Sauðárkróki. Ég
hef einnig tekið þátt í lagakeppni á Ham-
ingjudögum hér á Hólmavík ásamt því að
taka þátt í karokee keppnum með eigin
lögum þar sem ég lenti í þriðja sæti nú f
haust. Þrjú efstu sætin verðlaunar Café Riis
með jólahlaðborði fyrir tvo, sem er nú
aldeilis fínt hjá þeim.”
Annað í sambandi við tónlist?
Fyrir mér er tónlistin eitthvað svipað og
bækur hjá öðrum. Eins og sumir lesa bækur
þá spila ég mér til skemmtunar og yndis-
auka. Við það eitt að spila þá verður e.t.v.
til lag sem getur tekið allt aðra stefnu en
þegarég byrjaði. Þetta ræðstafsvo mörgu,
t.d. hvort ég er með texta sem þarf að fylgja
og eins af ýmsu öðru, sem ekki er hægt að
útskýra með góðu móti.”
Fólk sem vert er að muna?
“Strandamaðurinn Gunnar Þórðarson er
mérofarlega íhuga. Hann flutti ungurmeð
foreldrum sínum frá Hólmavík. Fyrir
nokkrum árum keypti hann sér hús hér á
Hólmavík og hefur síðan verið hér með
annan fótinn, bæði til að hitta gamla kunn-
ingja og ekki síst til að semja tónlist. Geta
má þess að með bók um Gunnar, sem
kemur út nú fyrir jólin, fylgir hljómdiskur
sem ekki er ólíklegt að Gunnar hafi unnið
að hér á Hólmavík.
Gunnar er í einu orði sagt snillingur sem
fáir jafnast á við, þó víða væri leitað.”
Rjúpna-, refaveiðar?
“Ámínum uppvaxtarárum varégalinn upp
við ýmiskonar veiðar og fór sjálfur að
stunda þær, sérstaklega rjúpu. Á þeim árum
mátti skjóta eins mikið og hver vildi og þá
var rjúpan góð söluvara. Það sem ég fékk
mest á einum degi voru 127 rjúpur, 30. nóv-
ember 1986, eftir langvarandi norðan byl.
Þá fylltust Vestfirðir af rjúpu frá Grænlandi,
sem höfðu hrakist undan veðrinu yfir hafið.
Það haust fékk ég 1176 rjúpur og seldi þær
allar.
Mitt mat er það að margir svokallaðra
menntamanna, sem greina ástand rjúpna-
stofnsins, séu á talsverðum villigötum. Sú
aðferð sem þeir nota til að greina stofn-
stærð rjúpunnar er ekki rétt að mínu mati.
Rjúpnatalning fer alltaf fram á sömu stöð-
unum, sem er rangt að mínu mati. Til að
þetta gangi upp þarf alltaf að telja í sömu
vindátt því rjúpan heldur sig alltaf hlé
megin, eftir því sem ég best veit. Eitt er ég
viss um og það er að rjúpur frá Grænlandi
koma tii íslands þegar þær hrekjast undan
sterkum vindum sem ber þær til íslands.
Benda má á að fyrrverandi toga raskipstjóri
til margra ára, Guðjón Arnar Kristjánsson,
núverandi þingmaður, hefur tjáð mér að
oft hafi komið fyrir, á hafinu milli íslands
og Grænlands, fvondum veðrum, að rjúpur
hafi sest á skip hans og annarra á þeim
slóðum.
Ég hef einnig skotið marga refi í gegnum
árin. Að mínu mati þá hafa stjórnvöld gert
mikil mistök með að friða refinn ífriðlandi
Hornstranda. Þarna er orðin til uppeldisstöð
fyrir refinn sem flæðir síðan yfir allt hér í
miklu meira mæli en áðurvar.
Enn meiri upplýsingar um Jón fástáheima-
sídu hans www.123.is/holmavik og
www.i23/nonni sem er myndasída með
mörgum frábærum myndum.
Ýmislegtfleira barágóma en hérerstaðar
numið ogjóni þakkað viðtalið sem var tekið
ílok nóvember 2008 afHrH.
NÝ HEIMASÍÐA: www.harmonikan.com
Heimasíða Harmonikuakademíunnar á íslandi hefur nú verið opnuð og er það von stjórnar akademíunnar að hún verði öllum
félagsmönnum sem og öðrum sem áhuga hafa á töfrum og fjölbreytni harmonikunnar til fróðleiks og ánægju.
Stjórn akademíunnar mun leggja sig fram um að heimasíðan verði ávallt með nýjustu fréttir úr harmonikuheiminum, ásamt
því að færa félagsmönnum, sem og öðrum ýmsan fróðleik. Fræðsluefni, svo sem námsskrá frá ráðuneyti og upplýsingar frá
prófanefnd verður sett inn á síðuna, kennurum og nemendum í harmonikuleik til upplýsinga. Þá er á síðunni atburðadaga-
tal, þar sem hægt verður að setja inn alla viðburði erverða haldnir t.d. tónleika, innlendra ogerlendra listamanna, harmo-
nikumót, fundarboð, og skemmtanir ýmiskonar. Dagatalið ætti að nýtast öllum þeim er stuðla vilja að framgangi harmo-
nikunnar og geta þeir þá haft samband og óskað eftir að ákveðinn viðburður verði settur inn í dagatalið. Þá er hugmyndin
að koma upp veglegu myndasafni er tengist harmonikunni á síðuna. Einnig myndir frá tónleikum og öðrum viðburðum er
tengjast hljóðfærinu. Það ervel þegið að þeirsem eiga góðarmyndir, sendi þærtil birtingar á síðunni. Einnigverðuraðgangur
að öðrum áhugaverðum heimasíðum á síðunni og verður áhugaverðum tenglum bætt inn á síðuna eins og þurfa þykir.
Það ervon stjórnarHarmonikuakademíunnará íslandi að viðtökurfélagsmanna sem ogannarravið þessari heimasíðu verði
góðar og óskar stjórn þess að sem flestir sjái sér hag í að nýta sér síðuna.
Bestu kveðjur,
Stjórn Harmonikuakademíunnar á íslandi.
17