Harmonikublaðið - 01.12.2008, Blaðsíða 20

Harmonikublaðið - 01.12.2008, Blaðsíða 20
Fullthúsaf öryggi Hvað, hvar, hvernig? Til þess að sporna við eða komaívegfyrirtjón af völdum elds og vatns á heimilinu er mikilvægt að réttar forvarnir séu til staðar. Að sama skapi er einnig nauðsynlegt að forvarn- artækjum sé komið fyrir á réttum stöðum og ekki síður að allir í fjölskyldunni kunni að nota þau á réttan hátt. // Jónískur reykskynjari Hann skynjar með rafeindahólfi ósýnilegar, lyktarlausar og sýnilegar lofttegundir, sem myndast við bruna á byrjunarstigi, sérstaklega frá opnum eldi. Hann er háður loftprýstingi, rakastigi, hitastigi og loftræstingu. Jónískir skynjarar henta vel í stofur, herbergi, stigaganga, geymslur, geymsluganga og víðar. // Optískur reykskynjari Hann skynjar með innbyggðu auga sýnilegan reyk frá t.d. glóðareldi og P.V.C. plastefnum. Hann er háður rakastigi, hitastigi og loftræstingu. Optíska reykskynjara er hægt að setja upp víðast hvar um íbúðina en þeir eru sérstaklega hentugir við eldhús. // Vatnsskynjari Vatnsskynjáranum er komið fyrir niður við gólf þar sem vænta má vatns. Ef neminn skynjar vatn gefur hann frá sér hljóðmerki (85 desibel). Eins má losa botnstykki af skynjaranum og er pá skynjunin tengd 180 sm langri snúru sem lögð er þangaó sem yænta má vatns. Mjög góð viðvörun við alltof algengum óhöppum. Vatnsneminn er neðst á skynjaranum. // Léttvatnsslökkvitæki Léttvatnsslökkvitæki er mjög hentugt á heimili og í sumarhús. Léttvatnið myndar filmu yfir flötinn sem brennur og kemur í veg fyrir að súrefni komist að eldinum. Léttvatnsslökkvitæki má nota á rafmagnselda upp að 1000 voltum en mikilvægt er aó vera þá í minnst eins metra fjarlægð. Taktu pinnann úr. Þetta gerir þér kleift að nota slökkvitækið. Miðaðu á rætur eidsins. Ef þú miðar beint á logana er hættviðað slökkviefnið fari beint í gegnum eldinn. Miðaðu á rætur eldsins, því þar er mesti eldsmaturinn. Sveigðu bununa til beggja hliða. Þú skalt byrja slökkvistarfið í öruggri fjarlægð. Vertu á varðbergi eftir að eldurinn er slökktur, hann gæti blossað upp á ný. TRYGGINGAMIÐST0ÐIN / Sími515 2000 / tm@tryggingamidstodin.is / www.tryggingamidstodin.is

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.