Harmonikublaðið - 01.12.2009, Page 2

Harmonikublaðið - 01.12.2009, Page 2
Ávarp formanns Ágæti lesandi Frá því a' síðasta blað leit dagsins Ijós hefur ýmislegt gerst, en þar ber að sjálf- sögðu hæst aðalfund sambandsins sem haldinn var að þessu sinni í boði Harm- onikufélags Héraðsbúa í Svartaskógi og vil ég nota tækifærið til að þakka félögum mínum í HFH og eigendum og starfsfólki hótelsins fyrir góðan undirbúning fundar, makaferðar og skemmtikvölds svo og góðan viðurgjörning á fundinum. Þessi fundur var um ýmislegt sérstakur þó einkanlega vegna þess að tvær nefndir sem skipaðarvoru á síðasta aðalfundi skil- uðu af sér og komu með ýmislegt nýtt inn á fundinn sem stjórn er byrjuð að vinna að nú þegar. Að sjálfsögðu vil ég þakka þeim sem sátu í þessum nefndum fyrirvel unnin störf í þágu sambandsins og aðildarfélag- anna. Helstu samþykktir sem aðalfundurinn gerði voru um að Harmonikudagurinn yrði haldinn árlega í maí eins og verið hefur, en einnigyrði unnið að kynningu á harmo- nikunni f skólum og leikskólum á vegum aðildarfélaganna. Fundurinn samþykkti að lögðverði áhersla á að efla Harmonikublaðið. Ákveðið var að hækka áskriftargjaldið í kr. 2.500 en kr. 1.700 til aðildarfélaga á nýju ári. í dageru áskrifendur 500 talsins en prentað upplag er 700 stk. Á fundinum var rætt um harmonikukeppni meðalyngra fólksins og almennt séð þótti sú hugmynd góð. Talið var best að SÍHU hafi frumkvæði að slíkri keppni en menn sammála um að harmonikukennarar séu virkir þátttakendur í undirbúningi ogfram- kvæmd slíkrar keppni. Þegar er byrjað að skoða þetta mál og vonandi getur orðið eitthvað úr þessu, væntanlega á komandi vori ef allt fer að óskum. Næsta landsmótSÍHUverðurhaldiðá Hellu og mun Harmonikufélag Rangæinga sjá um mótið. Gerð var sú breyting á lögum sambandsins að einn stjórnarmaðurSÍHU mun eiga sæti í framkvæmdanefnd móts- ins hverju sinni og uppgjöri vegna lands- móts skal skila á stöðluðu formi á næsta aðalfundi eftir landsmótið. Hin nýja heimasíða SÍHU hefur litið dags- ins Ijós og lofar góðu. Auðvitað væri gott ef að fólk notaði hana meira en nú er, en samt hefur orðið umtalsverð aukning á notkun sfðunnar eftir endurnýjun hennar sem segir okkur það að til þess að sfðan geri gagn þurfum við að halda henni við, skrifa og senda inn það sem okkur finnst skipta máli að þar sé til staðar. Núna mun útdráttur úr blaðinu verða settur á síðuna sem vonandi kemurtilmeð að auka áhuga fólks á að gerast áskrifendur að blaðinu því vissulega myndi aukinn fjöldi kaup- enda auðvelda okkur rekstur þess. Ef altt hefði farið eins og við vonuðum á aðalfundinum væri örugglega stór hluti þessa blaðs tileinkaður unglingalandsmóti sem halda átti á höfuðborgarsvæðinu í umsjón Harmonikufélags Reykjavíkursem lagt hafði mikla vinnu í undirbúning og skipulag sem ég þakka þeim fyrir. Það urðu okkur í stjórn SÍHU mikil vonbrigði að mótið skyldi falla niðurvegna ónógrar þátttöku, þá ekki sístvegna þess að það var rættá aðalfundinum að aðildarfélögin myndu styrkja nemendurtilfarará mótið. Auðvitað veit ég líka að inflúensufaraldur spilar hér einnig eitthvað inn í en samt eru þetta verstu fréttir af harmonikumálum sem ég hef fengið á þessu ári. Ég hlýt að velta fyrir mér hvað sé að? Er enginn áhugi fyrir þessum mótum? Hvað erum við að gera rangt? Er það ef til vill svo að við eigum að setja það skilyrði fyrir þátttöku að viðkomandi sé félagi f harmonikufélagi og félögin taki þetta yfir í staðinn fyrir tónlistarskólana? Ég einfaldlega trúi því ekki að ungt fólk hafi ekki gaman af því að hittast svo sem eina helgi og spila saman og hvert fyrir annað. Hér hlýtur eitthvað annað að vera upp á teningnum og mér þætti vænt um að fá að vita hvað það er. Eitt varð mér þó Ijóst á aðalfundinum að þar var fólk sem var bjartsýnt á framtíðina og var tilbúið til að leggja sitt af mörkum til þess að starf félaganna og sambandsins mætti eflast og dafna og að því munum við vinna eftir bestu getu. Að lokum vil ég óska öllum lesendum blaðsins gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Jónas Þór Jóhannsson JJalmomLnsafn ÁSGEIRS S.SIGURÐSSONAR býður öldruðum harmonikum farsælt ævikvöld á Byggðasafni Vestfjarða, ísafirði. V Símanúmer: 456-3485 og 863-1642 J 2

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.