Harmonikublaðið - 01.12.2009, Síða 3

Harmonikublaðið - 01.12.2009, Síða 3
 Frá ábyrgdarmanni f 'N Harmonikublaðið ISSN16J0-200X Ábyrgðarmaður: Gunnar Kvaran, Álfaland 7,108 Reykjavík Sími 5683670, netfang: alf7@mi.is Prentvinnsla: Héradsprent, Egilsstödum, www.heradsprent.is Netfang: print@heradsprent.is Forsíðumynd: ÁsgeirS. Sigurðsson frá fsafirði. Meðal efnis: - Viðtalvið Guttorm Sigfússon - SumarmótíFannahlíð - HúsfyllirogfjöríHóiminum - Viðtalvið Viggó Brynjólfsson - Að brosa á sviðinu - Af Lása kokk - Haustkvöld í Svartaskógi - Gileyrargengið ÍTálknafirði - Frá Harmonikufélagi Selfoss - Eftirminnilegir tónleikar í Hömrum - Lagfrá Baldri Geirmundssyni - Cellini Luttbeg Auglýsingaverð: Baksída 1/1 sída kr. 23.000 1/2 síða kr. 15.000 Innsíður 1/1 sida kr. 18.400 i/2sída kr. 11.500 1/4 síba kr. 6.700 1/8 síða kr. 4.600 Smáauglýsingar kr. 2.500 Efni ínæsta blað sem kemur útímaÍ20io, þarfað berastfyrirmiðjan april 2010. V__________________________________________J Ágæti lesandi Nú er þetta þriðja biadið sem hefurverið undir stjórn og á ábyrgð nokkurra stjórnar- manna S.Í.H.U. Það má segja að útgáfa þessara blaða hefur gengið vel og hafa viðtökur lesenda verið góðar. Ekki hafa verið vandræði að útvega efni í blöðin og ber að þakka öllu þvf góða fólki sem sent hefur okkur greinar og viðtöl og nótur af iögum, ásamt myndum. Auglýsingaöflun hefði mátt ganga betur, en það verður þó að segja að miðað við þaðástand sem hefurverið íokkarþjóð- félagi er ekki þörf á að kvarta. Það væri úgáfunni mikill fengur ef einhverjir af lesendum og velunnurum blaðsins hefðu augun opin fyrirað afla blaðinu auglýs- inga í framtíðinni. Hvað varðar útgáfu Harmonikublaðsins í framtíðinni mun það ráðast fljótlega. Ekki hefur enn feng- ist aðili til að sjá um útgáfuna og mun stjórn sambandsins leggja sig fram um að ganga endanlega frá útgáfumálunum sem allra fyrst. Það er Ijóst að Harmo- nikublaðið er komið til að vera og það má alls ekki henda að útgáfa blaðsins verði lögð af. Stjórnarmenn hafa verið duglegir að afla nýrra áskrifenor. og hafa þeir einnig notið aðstoðar góðra aðila við það verk. Það er mjög árfðandi að mínu mati að allt verði gert til þess að afla nýrra félaga til að tryggja útgáfu blaðsins til framtíðar. Vill ábyrgðarmaður koma því á framfæri við áskrifendur og stjórnarmenn aðildarfélaga sambands- ins að þeir geri allt sem í þeirra valdi stendur til að fá sem flesta til að gerast áskrifendur að þessu ágæta blaði. Aðalfundursambandsins var haldinn að Hótel Svartaskógi um miðjan september og var hann í alla staði vel heppnaður. Undirritaður hefur ekki setið jafn góðan og málefnalegan aðalfund síðan hann hófafskipti af sambandinu. Sérstaklega ber að þakka staðarhöldurum í Svarta- skógi fyrir frábærar móttökur og góðan viðurgjörning þá daga sem fundurinn stóð yfir. Gunnar Kvaran 3

x

Harmonikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.